Hoppa yfir valmynd
8. september 2010 Dómsmálaráðuneytið

Mannanafnanefnd, úrskurðir 8. september 2010

Mál nr. 72/2010 Millinafn: Hreinberg

Hinn 8. september 2010 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 72/2010, en erindið barst nefndinni 30. ágúst:

Millinafnið Hreinberg er dregið af íslenskum orðstofnum, hefur ekki nefnifallsendingu og hefur hvorki unnið sér hefð sem eiginnafn kvenna né sem eiginnafn karla. Nafnið er ekki heldur ættarnafn í skilningi 7. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Millinafnið Hreinberg uppfyllir þannig ákvæði 6. gr. fyrrnefndra laga.

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Hreinberg er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

Mál nr. 75/2010 Eiginnafn: Svaney

Hinn 8. september 2010 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 75/2010, en erindið barst nefndinni 6. september:

Eiginnafnið Svaney (kvk.) tekur íslenskri beygingu, Svaney – Svaneyju – Svaneyju – Svaneyjar, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Svaney (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum