Hoppa yfir valmynd
18. júní 2021 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 475/2020 - Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 475/2020

Föstudaginn 18. júní 2021

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 30. september 2020, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 30. september 2020, um ofgreiddar atvinnuleysisbætur.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 30. september 2020, var kæranda tilkynnt að hún væri í skuld við Vinnumálastofnun, að fjárhæð 124.405 kr.

Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála 30. september 2020. Með bréfi, dags. 17. nóvember 2020, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar vegna kærunnar. Sú beiðni var ítrekuð með erindi úrskurðarnefndar, dags. 27. janúar 2021. Með bréfi, dags. 2. mars 2021, barst greinargerð Vinnumálastofnunar þar sem fram kom að ranglega hafi verið staðið að ákvörðun í málinu. Vinnumálastofnun hafi leiðrétt ákvörðun í máli kæranda og hún væri því skuldlaus við Atvinnuleysistryggingasjóð. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 3. mars 2021, var óskað eftir afstöðu kæranda vegna greinargerðar Vinnumálastofnunar. Sú beiðni var ítrekuð með símtali starfsmanns úrskurðarnefndarinnar 12. apríl og 11. júní 2021. Svar barst ekki. 

II.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 30. september 2020, um ofgreiddar atvinnuleysisbætur til handa kæranda. Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndarinnar var vísað til þess að ranglega hafi verið staðið að ákvörðun í málinu og kærandi væri skuldlaus við Atvinnuleysistryggingasjóð. Úrskurðarnefndin óskaði eftir afstöðu kæranda til greinargerðar Vinnumálastofnunar en svar barst ekki.

Úrskurðarnefnd velferðarmála kveður upp úrskurði um ágreiningsefni sem kunna að rísa á grundvelli laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar, sbr. 11. gr. laganna. Af gögnum málsins verður ekki ráðið að ágreiningur sé til staðar á milli kæranda og Vinnumálastofnunar. Þar sem enginn ágreiningur er til staðar í máli þessu er kæru vísað frá úrskurðarnefndinni.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum