Hoppa yfir valmynd
16. nóvember 2022 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Alþjóðleg klasaráðstefna á Íslandi

Ísland hefur formlega tekið við kefli gestgjafa alþjóðlegrar klasaráðstefnu sem haldin er á vegum klasasamtakanna TCI Network með stuðningi háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytisins. Fjögur íslensk klasasamtök standa að undirbúningi og framkvæmd ráðstefnunnar; Íslenski ferðaklasinn, Orkuklasinn, Sjávarklasinn og Fjártækniklasinn. Meet in Reykjavík - Iceland, ráðstefnuhluti Íslandsstofu gegndi lykilhlutverki við að leiða tilboðsgerðina.

Klasaráðstefnan er haldin árlega og í nóvember á næsta ári verður Ísland áfangastaður ráðstefnugesta. Ráðstefnan var haldin í 25. sinn fyrr í mánuðinum, þá í Durban-borg í Suður Afríku en ráðstefnan ferðast á milli heimshluta með það að markmiði að hafa áhrif til góða á þau samfélög og atvinnulíf sem fyrir eru ásamt því að mynda alþjóðlegar tengingar og ný viðskiptasambönd. 

Gestgjafar eru valdir með það að leiðarljósi að þar þrífist sterkir, samkeppnishæfir klasar og rík nýsköpunarmenning. Ísland hlýtur þennan heiður þar sem landið er auðlindavin, hvort sem litið er til orku, mannauðs eða náttúru. Miðin eru gjöful og náttúruöfl sjá okkur fyrir um 99% endurnýjanlegri orku. Þá á hugvitsdrifinn mannauður stóran þátt í því að Ísland skipi sér í fremstu röð þegar kemur að menntun, jafnrétti og skapandi lausnum sem stuðla að framúrskarandi lífsgæðum. Ísland hefur mikla sögu að segja og heimurinn fylgist með. Klasaráðstefnan ber með sér tækifæri til að bjóða aðilum frá öllum heimshornum heim og miðla þannig þekkingu og skapa ný tengsl. 

Klasastarfsemi stuðlar að árangri og velsæld

Mikil uppbygging og efling klasastarfsemi hefur átt sér stað hér á landi á liðnum árum en klasar eru mikilvægt hreyfiafl nýsköpunar og drifkraftur fyrir öflugt atvinnulíf víðsvegar um landið. Framþróun í bæði efnahags- og atvinnulífi sem leiðir af sér fjölbreytt störf og skilar heilbrigðu samfélagi til lengri tíma er drifin áfram af öflugu samstarfi misunandi aðila sem vinna að sama markmiði. Klasar spila hér lykilhlutverk enda tengja þeir saman og brúa bil milli háskóla og rannsókna, stjórnvalda og atvinnulífs með það að meginmarkmiði að hraða árangri og auka velsæld. 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum