Hoppa yfir valmynd
27. febrúar 2023 Utanríkisráðuneytið

Hjálparstarfið sendir 25 milljónir króna til neyðaraðstoðar í kjölfar jarðskjálftanna

Ljósmynd: Hjálparstarf kirkjunnar - mynd

Hjálparstarf kirkjunnar sendi í liðinni viku rúmar 25 milljónir króna til systurstofnana í Alþjóðlegu hjálparstarfi kirkna, ACT Alliance, sem veita fórnarlömbum jarðskjálftanna í Tyrklandi og Sýrlandi neyðaraðstoð. Upphaflega stóð til að leggja hjálparsamtökum á svæðinu til ellefu milljónir króna en þegar ljóst er að neyð fólksins í löndunum tveimur er enn meiri en leit út fyrir í upphafi ákvað Hjálparstarfið að hækka framlagið. Framlag Hjálparstarfsins er að meðtöldum veglegum styrk utanríkisráðuneytisins til verkefnisins.

Neyðarsöfnun Hjálparstarfs kirkjunnar hófst um leið og ljóst var hversu alvarlegir atburðir voru. Þá strax höfðu systursamtök Hjálparstarfsins á staðnum hafið mat á því hvernig bregðast ætti við með sem skilvirkustum hætti. Á sama tíma var hjálpargögnum dreift; mat, lyfjum, dýnum, teppum og hlýjum klæðnaði.

Upplýsingar frá hamfarasvæðunum staðfesta nú að þörfin er margföld miðað við þá stöðu sem viðbragðsaðilar töldu í upphafi að væri við að eiga. Tyrknesk yfirvöld greindu frá því í tilkynningu á sunnudag að yfir 100.000 byggingar væru ónýtar með öllu, og þá taldar þær sem hrundu til jarðar strax eða þær sem eru svo illa farnar eftir skjálftana að niðurrif þeirra er óumflýjanlegt.

Tölfræði tyrkneskra yfirvalda er ekki síst ógnvænleg í því ljósi að í fyrrnefndum byggingum voru 384.500 íbúðir sem eru ónýtar. Ef þessi tölfræði er sett í íslenskt samhengi má vísa til Fasteignaskrár Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar þar sem segir að fjöldi íbúða á Íslandi í árslok 2022 hafi verið  158.939.

Í Sýrlandi er ljóst að eyðileggingin er gríðarleg. Greint hefur verið frá milljónum manna sem eiga hvergi höfði sínu að halla. Hins vegar berast ekki nákvæmar upplýsingar frá skjálftasvæðunum þar um umfang eyðileggingarinnar. Það er mat Hjálparstarfs kirkjunnar að vegna jarðskjálftana, sem bættu gráu ofan á svart eftir áralangt borgarastríð, muni 25 milljóna króna framlagið best nýtast systursamtökum í ACT Alliance sem starfa í Sýrlandi.

Eftirlifendur náttúruhamfaranna hafast nú við á götum úti eða í neyðarskýlum. Þeir eru allslausir að kalla og háðir neyðaraðstoð. Næstu vikurnar þarf að hlúa að slösuðum, skjóta skjólshúsi yfir þá sem hafa misst heimili sín og miðla hjálpargögnum til þeirra sem hafa misst aleigu sína. Verkefnin eru óteljandi og af margvíslegum toga.

Fram hefur komið að þegar hafa yfir 50 þúsund manns fundist látin. Hvorki tyrknesk yfirvöld né sýrlensk hafa gefið út hversu margra er saknað. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin, (WHO) telur að 26 milljónir manna í löndunum tveimur eigi um sárt að binda og þurfi á neyðaraðstoð að halda.

Nánar á vef Hjálparstarfsins

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

3. Heilsa og vellíðan

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum