Hoppa yfir valmynd
28. mars 2011 Dómsmálaráðuneytið

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla á sjúkrahúsum, dvalarheimilum aldraðra o.fl. í Reykjavík

Kjósanda, sem er til meðferðar á sjúkrahúsi eða vistmaður þar, á dvalarheimili aldraðra og stofnun fyrir fatlaða, er heimilt að greiða atkvæði á stofnuninni. Með sama hætti fer um fangelsi og vistmenn þar. Slík atkvæðagreiðsla skal fara fram á þeim tíma sem kjörstjóri ákveður, á sjúkrahúsi sem næst kjördegi, að höfðu samráði við stjórn stofnunar.

Hér að neðan eru upplýsingar um tímasetningar vegna utankjörfundaratkvæðagreiðslu á sjúkrahúsum, dvalarheimilum aldraðra o.fl. á vegum sýslumannsembættisins í Reykjavík:

  • Skjól við Kleppsveg - þriðjudaginn 29. mars, kl. 13-15.
  • Skógarbær við Árskóga - þriðjudaginn 29. mars, kl. 16-18.
  • Seljahlíð, Hjallaseli 55 - miðvikudaginn 30. mars, kl. 16-18.
  • Droplaugarstaðir við Snorrabraut - miðvikudaginn 30. mars kl. 15-18.
  • Hlaðgerðarkot - fimmtudaginn 31. mars, kl. 15.30-17.30.
  • Vík - fimmtudaginn 31. mars, kl. 14.00-15.00.
  • Hjúkrunarheimilið Sóltún - fimmtudaginn 31. mars, kl. 13-16.
  • Landspítalinn Háskólasjúkrahús Landakot - fimmtudaginn 31. mars, kl. 15-17.
  • Eir í Grafarvogi - föstudaginn 1. apríl, kl. 13-16.
  • Kleppsspítali - föstudaginn 1. apríl, kl. 15-16.
  • Hrafnista - laugardaginn 2. apríl, kl. 11-15.
  • Dvalar- og hjúkrunarheimilið Grund - laugardaginn 2. apríl, kl. 11-15.
  • Mörkin - laugardaginn 2. apríl, kl. 11-14.
  • Hegningarhúsið við Skólavörðustíg - mánudaginn 4. apríl, kl. 16-17.
  • Landspítalinn Háskólasjúkrahús Fossvogi / Grensásdeild - fimmtudaginn 7. apríl, kl. 13-16 (Fossvogur) og 16.30-17.30 (Grensás).
  • Landspítalinn Háskólasjúkrahús Hringbraut - föstudaginn 8. apríl, kl. 14-17.




Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum