Hoppa yfir valmynd
13. júní 2012 Dómsmálaráðuneytið

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla á sjúkrahúsum, dvalarheimilum aldraðra o.fl. í Reykjavík

Kjósanda, sem er til meðferðar á sjúkrahúsi eða vistmaður þar, á dvalarheimili aldraðra og stofnun fyrir fatlaða, er heimilt að greiða atkvæði á stofnuninni. Með sama hætti fer um fangelsi og vistmenn þar.

Slík atkvæðagreiðsla skal fara fram á þeim tíma sem kjörstjóri ákveður, á sjúkrahúsi sem næst kjördegi, að höfðu samráði við stjórn stofnunar. Hér að neðan eru upplýsingar um tímasetningar vegna utankjörfundaratkvæðagreiðslu á sjúkrahúsum, dvalarheimilum aldraðra o.fl. á vegum sýslumannsembættisins í Reykjavík:

  • Hjúkrunarheimilið Sóltún - mánudaginn 18. júní, kl. 13-15. 
  • Skjól við Kleppsveg - þriðjudaginn 19. júní, kl. 13-15.
  • Skógarbær við Árskóga - þriðjudaginn 19. júní, kl. 15:30 – 17:30.
  • Droplaugarstaðir við Snorrabraut - miðvikudaginn 20. júní kl. 15-17.
  • Seljahlíð, Hjallaseli 55 - miðvikudaginn 20. júní, kl. 15:30- 17:30. 
  • Hlaðgerðarkot - fimmtudaginn 21. júní, kl. 15:30-17:30.
  • Landspítalinn Háskólasjúkrahús Landakot - fimmtudaginn 21. júní, kl. 15-17.
  • Eir í Grafarvogi - föstudaginn 22. júní, kl. 13-16. 
  • DAS Hrafnista - laugardaginn 23. júní, kl. 11-15.
  • Dvalar- og hjúkrunarheimilið Grund - laugardaginn 23. júní, kl. 11-15. 
  • Mörkin - laugardaginn 23. júní, kl. 11-14.
  • Kleppsspítali - mánudaginn 25. júní, kl. 15-16.
  • Hegningarhúsið við Skólavörðustíg  - mánudaginn 25. júní, kl. 15:30-16:30. 
  • Landspítalinn Háskólasjúkrahús Fossvogi / Grensásdeild - fimmtudaginn 28. júní, kl. 13-16 (Fossvogur) og 16:30-17:30 (Grensás).
  • Landspítalinn Háskólasjúkrahús Hringbraut - föstudaginn 29. júní, kl. 14-17.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum