Hoppa yfir valmynd
4. október 2016 Dómsmálaráðuneytið

Stofnun þjónustumiðstöðvar fyrir þolendur ofbeldis undirbúin

Fulltrúar þeirra sem standa að þjónustumiðstöðinni undirrituðu viljayfirlýsingu um verkefnið. - mynd
Þjónustumiðstöð fyrir þolendur ofbeldis tekur til starfa í Reykjavík í byrjun næsta árs. Viljayfirlýsing samstarfsaðila þess efnis var undirrituð í nýuppgerðu húsnæði miðstöðvarinnar í Bjarkahlíð í Bústaðahverfi í Reykjavík í dag.

Reykjavíkurborg leggur til húsnæðið og kostar rekstur þess en velferðarráðuneytið veitir fé til reksturs starfseminnar. Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur, Eygló Harðardóttir félags- og húsnæðismálaráðherra, Ólöf Nordal innanríkisráðherra, lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu, Sigríður Björk Guðjónsdóttir, og fulltrúar Stígamóta, Drekaslóðar, samtaka um Kvennaathvarf, Mannréttindaskrifstofu Íslands og Kvennaráðgjafarinnar undirrituðu viljayfirlýsinguna. Áætlað er að þjónustumiðstöðin, sem fengið hefur nafnið Bjarkahlíð, taki formlega til starfa í janúar næstkomandi.

Starfsemin í Bjarkahlíð mun felast í samhæfðri þjónustu og ráðgjöf fyrir fullorðna einstaklinga sem beittir hafa verið ofbeldi, s.s. kynferðisofbeldi, ofbeldi í nánum samböndum eða eru brotaþolar í mansalsmálum og/eða vændi. Brotaþolum mun gefast kostur á stuðningi og ráðgjöf sem framangreindir aðilar veita ásamt öðrum samstarfsaðilum þeim að kostnaðarlausu. Verkefnið er að hluta til byggt á erlendri fyrirmynd þar sem meginmarkmiðið er að brotaþolar fái á einum stað þá þjónustu sem á þarf að halda í kjölfar ofbeldis.

Framlag samstarfsaðila verður með ýmsum hætti en Reykjavíkurborg leggur til húsnæði, búnað og stendur straum af rekstrarkostnaði hússins vegna þessa. Velferðarráðuneytið ábyrgist ákveðið fjármagn til rekstrarins, 10 m.kr árið 2016 og 20 m.kr. árið 2017 og og aftur 2018. Þjónustan miðast við Reykjavík til að byrja með en gert er ráð fyrir aðkomu annarra sveitarfélaga að verkefninu þegar fram í sækir. Auk þess er gert ráð fyrir að fleiri samstarfsaðilar verði hluti af starfseminni með tímanum.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum