Hoppa yfir valmynd
28. febrúar 2002 Utanríkisráðuneytið

Skýrsla um störf Norrænu ráðherranefndarinnar 2001

28. febrúar 2002


Ræða samstarfsráðherra Sivjar Friðleifsdóttur á Alþingi
vegna umræðna um skýrslu um störf Norrænu ráðherranefndarinnar 2001
28. febrúar 2002


Herra forseti,

Ég mæli hér fyrir skýrslu samstarfsráðherra Norðurlanda um störf Norrænu ráðherranefndarinnar árið 2001.

Finnland fór með formennsku í ráðherranefndinni það ár og beindi í formennskuáætlun sinni "Norðurlandabúi 2001" kastljósinu að einstaklingnum sem norrænum borgara. Því var í samstarfinu lögð áhersla á starfsemi sem snýr að réttindum almennings, aðallega þess hluta sem flyst milli norrænu landanna. Meðal annars var kannað hvernig þeir norrænu milliríkjasamningar reynast, sem ætlað er að bæta hag þessa hóps. Könnunin leiddi í ljós að þeim sem fara milli landanna til lengri eða skemmri tíma er margvíslegur vandi á höndum. Ein ástæða þess er að stjórnvöld, sérstaklega á lægri stigum, þekkja ekki nægilega vel til þeirra skuldbindinga sem felast í þessum norrænu samningum. Því verða í næsta mánuði lagðar fram tillögur til úrbóta. Hugmyndin er m.a. að opnaður verði aðgengileg upplýsingaveita bæði fyrir almenning og stjórnvöld þar sem unnt verður að nálgast upplýsingar um sem flest af því sem brennur á þeim sem flytja. Annar þáttur, sem trúlega er enn mikilvægari þessum hópi Norðurlandabúa, er þjónustusíminn "Halló Norðurlönd". Starfsemi hans var styrkt á árinu og hugmyndir eru uppi um enn frekari styrkingu, enda sýnir mikil aðsókn að þörfin er ótvíræð.

Starfsemi ráðherranefndarinnar er bæði víðtæk og fjölbreytt. Allir ráðherrar ríkisstjórnarinnar komu að henni á einn eða annan hátt. Þó forsætis- og utanríkisráðherrar norrænu ríkjanna sitji ekki í ráðherranefndum, eiga þeir sem aðrir ráðherrar með sér reglubundið norrænt samstarf og hafa bein tengsl bæði við ráðherranefndina og Norðurlandaráð. Að starfseminni koma og æðstu embættismenn ráðuneytanna og fjöldi annarra.

Ráðherranefndirnar áttu gott samstarf við Norðurlandaráð á starfsárinu. Sérstök alúð var af hálfu beggja lögð við að vinna úr athyglisverðri skýrslu hins svokallaða vitringahóps, "Norðurlönd umleikin vindum veraldar". Niðurstöður ráðsins og ráðherranefndarinnar um viðbrögð við skýrslunni birtust á árinu undir formerkjunum "Ný norræn dagskrá" og voru tillögurnar samþykktar á þingi Norðurlandaráðs í Kaupmannahöfn haustið 2001. Ráðið breytti þegar í kjölfarið nefndaskipan sinni, sem nú samræmist vel skipan mála hjá ráðherranefndinni en viðbrögð ráðherranefndarinnar við skýrslunni snúa nánast alfarið að áherslum samstarfsins. Samkvæmt þeirri stefnumótun sem lögð var fram í "Nýrri norrænni dagskrá" verður megináherslan næstu ár lögð á fimm víðtæk og þverfagleg svið. Þessi svið eru:

Tækniþróun, sérstaklega hvað varðar upplýsingasamfélagið og rannsókna- og vísindasvið, þar sem Norðurlönd skara fram úr;
Velferðarkerfi, þar með talin réttindi íbúa Norðurlanda og möguleikar þeirra til að búa, starfa og stunda nám í norrænu nágrannaríki, ásamt málefnum sem tengjast lýðþróun og fólksflutningum;
Innri markaður á Norðurlöndum, að meðtöldu samstarfi sem beinist að afnámi landamærahindrana;
Samstarf við nágrannalönd og -svæði og
Umhverfismál og sjálfbær þróun.

Af áherslusviðunum, sem ég tel öll vera mikilvæg við núverandi aðstæður, vil ég gera að umræðuefni þrjú, þ.e.a.s. samstarf við grannsvæðin, tækniþróun og sjálfbæra þróun.
Áherslusviðið samstarf við grannlönd og -svæði tekur í raun til alls svæðisins kringum Norðurlönd, þ.e.a.s. grannsvæðanna við Eystrasalt, Evrópusambandssvæðisins auk norðlægra og vestlægra grannsvæða.
Um samstarfið við ESB segir eftirfarandi í skýrslunni "Ný norræn dagskrá": "Samrunaferlið í Evrópu og sér í lagi stækkun ESB og framtíðarþróun þess er einn mikilvægasti viðmiðunarrammi fyrir aðgerðir Norðurlanda og norrænt samstarf. Þegar þörf og sameiginlegir hagsmunir krefjast, munu málefni sem ofarlega eru á baugi innan ESB og EES hafa áhrif á skipulag alls samstarfs innan Norrænu ráðherranefndarinnar í formi upplýsingaflæðis, samráðs, samræmingar og sameiginlegra aðgerða. Þetta starf mun í framtíðinni verða nauðsynlegur og eðlilegur þáttur í norrænu samstarfi."

Vestlæg grannsvæði Norðurlanda hafa hingað til ekki verið meðal þeirra svæða sem skilgreind hafa verið sem hluti þeirra grannsvæða sem norrænt samstarf nær til. Það er því nýmæli sem ég met mikils að slíkt skuli nú orðað í skýrslunni, þó orðalagið sé varfærið. Reyndar er þegar fyrir hendi vísir að slíku samstarfi, því í fyrra var haldin í Færeyjum gagnleg ráðstefna um verndun sjávar og sjálfbæra auðlindanýtingu í Norður-Atlantshafinu. Auk ráðherra frá öllum norrænu ríkjunum sátu ráðstefnuna ráðherrar frá Skotlandi og Kanada auk fulltrúa frá ESB og Hjaltlandseyjum. Fyrirhugað er að sömu aðilar hittist á ný á Hjaltlandseyjum árið 2003. Ég bind vonir við að þetta samráð geti leitt til gagnlegra viðbragða til hagsbóta fyrir Norður-Atlantshafssvæðið.

Annað áhersluatriðið sem ég vil nefna er tækniþróunin. Það svið tekur m.a. til samstarfs um málefni upplýsingasamfélagsins og samstarfs um rannsóknir þar sem Norðurlönd skara fram úr. Það er mikilvægt nú á tímum, þar sem hnattræn samkeppni ríkir nánast á öllum sviðum, að styrkja samkeppnisfærni Norðurlanda. Við á Norðurlöndum erum þegar í hópi þeirra þjóða, sem fremstar standa í flokki á sviði upplýsingatækni og á ýmsum öðrum sviðum vísinda og hátækni. Ætlunin er að stuðla í sameiningu að frekari framgangi á þessum sviðum en huga jafnframt að verndun tungu og menningar og jafnræði þegnanna hvað varðar möguleika á að tileinka sér þessa tækni. Undir formerkjum tækniþróunar eru einnig athyglisverð áform um stofnun norrænna öndvegissetra. Þannig gengst ráðherranefndin í samstarfi við rannsóknarráðin í löndunum fyrir áætlun um nettengingu milli vísindahópa á Norðurlöndum sem skara fram úr. Þeir hópar, sem í upphafi munu starfa saman sem norræn öndvegissetur, stunda grunnrannsóknir á áhrifum hnattrænna breytinga á veðurfræði, loftslag og hafsstrauma. Áætlun sú sem gerð hefur verið um norræn öndvegissetur nær til áranna 2002-2007.

Þriðja áherslusviðið, sem ég vil nefna, er sjálfbær þróun. Norðurlandaráð samþykkti á starfsárinu áætlun ráðherranefndarinnar um sjálfbæra þróun á Norðurlöndum fram til ársins 2020. Þetta er að mínu viti merkur áfangi, sem vert er að fylgja eftir innan og utan Norðurlanda, enda hafa norrænu umhverfisráðherrarnir ákveðið að kynna áætlunina og leggja fram á leiðtogafundi Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun í Jóhannesarborg í byrjun september n.k. Áætlunin er ein sú fyrsta sem samþykkt hefur verið í heiminum um sjálfbæra þróun á svæði sem nær yfir fleiri lönd. Jafnframt er nú unnið af hálfu umhverfisráðherranna að staðardagskrá 21 fyrir Norðurlönd og Eystrasaltslöndin.

Fjárlög ársins 2001 voru 774 millj. danskra króna, eða um 9,3 milljarðar íslenskra króna. Fjárveitingarnar skiptust þannig að þrír fjórðu fjárlaganna runnu til hefðbundins norræns samstarfs, 17% til samstarfs um málefni grannsvæðanna og 8% til samstarfs um Evrópumál.

Eins og fram kemur í skýrslu þeirri sem ég mæli fyrir var árið 2000 gerð úttekt á norrænu fjárlagagerðinni og lagðar fram fjölmargar tillögur til úrbóta. Markmiðið var að nýta fjárlögin betur en áður til að stýra fjármagninu til pólitískra forgangsverkefna. Breytingar þær sem gerðar voru í kjölfarið koma að fullu til framkvæmda við gerð fjárlaga fyrir árið 2003. Meðal helstu markmiða er að bæta forsendur Norðurlandaráðs til áhrifa á fjárlagagerðina jafnframt því sem ábyrgð fagráðherranefndanna verður aukin. Sátt ríkti í stórum dráttum um tillögur úttektarinnar nema um þann þátt er sneri að rekstri norrænu stofnananna. Hvað þær varðaði var lagt til að teknar yrðu upp af hálfu samstarfsráðherranna samningaviðræður við forsvarsmenn stofnana um róttækar breytingar á rekstrarforminu. Í stað slíkrar heildarendurskoðunar ákváðu samstarfsráðherrarnir að fela fagráðherranefndunum hverri á sínu sviði að meta ef ástæða þætti til, í samstarfi við stjórnir stofnananna, möguleika þess að bæta eða breyta rekstrinum. Ég hef þá trú að við þetta mat verði það haft að leiðarljósi að auka hagkvæmni í rekstrinum án þess að sjálf starfsemin og markmið hennar líði fyrir það.

Ég hef hér gripið niður í ýmsa þætti skýrslunnar, án þess að hafa gefið heildarmynd af samstarfinu sem er of fjölþætt til að þess sé kostur. Þess í stað vísa ég til skýrslunnar sem að venju er gerð í samstarfi allra ráðuneytanna og er afar efnismikil.

Ég tel norrænt samstarf liðins árs hafa verið frjósamt og gagnlegt. Meðal mikilvægra áfanga tel ég vera sameiginlega niðurstöðu Norðurlandaráðs og ráðherranefndarinnar um viðbrögð við Vitringaskýrslunni, sem náðist í góðu og trúnaðarfullu samstarfi þeirra. Að endingu vil ég segja að ég bind vonir við að þær breytingar, sem Norðurlandaráð og ráðherranefndin ákváðu og tóku til framkvæmda á árinu, leiði til aukins samráðs á næstu árum þeirra á milli um norrænu fjárlögin og um markmið og innihald starfsins á hinum fjölmörgu fagsviðum þess.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum