Hoppa yfir valmynd
7. desember 2018 Innviðaráðuneytið

Framlög Jöfnunarsjóðs til eflingar tónlistarnáms skólaárið 2018-2019

  - myndHaraldur Jónasson / Hari

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um úthlutun framlaga á grundvelli 7. gr. reglna frá 31. ágúst 2016 vegna nemenda sem þurfa að sækja tónlistarskóla utan síns sveitarfélags fyrir skólaárið 2018-2019. Framlagið byggist á samkomulagi milli ríkis og sveitarfélaga um eflingu tónlistarnáms og jöfnun á aðstöðumun nemenda til tónlistarnáms.

Framlag á hvern nemenda fyrir skólaárið 2018-2019 er 464.098 kr. og eru samþykktar umsóknir fyrir 14 nemendur. Heildarupphæð framlaga er því um 6,5 m.kr. sem greiðist í jöfnum greiðslum á 12 mánuðum. Við greiðslu framlagsins fyrir nóvember fer jafnframt fram greiðsla vegna framlaga fyrir september og október.

Áætluð framlög til stuðnings við tónlistarnám á grundvelli 7. gr. 2018-2019

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum