Hoppa yfir valmynd
2. júlí 2008 Dómsmálaráðuneytið

Úlfar Lúðvíksson skipaður sýslumaður á Patreksfirði frá 15. júlí

2.7.2008

Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra hefur skipað Úlfar Lúðvíksson, skrifstofustjóra sýslumannsembættisins í Reykjavík og staðgengil sýslumanns, sem sýslumann á Patreksfirði frá og með 15. júlí 2008. Þórólfur Halldórsson, sýslumaður á Patreksfirði var skipaður sýslumaður í Keflavík þann 30. maí sl. frá og með sama tíma.

Þrjár umsóknir bárust um embættið. Auk Úlfars sóttu eftirtaldir um:

Sigríður Eysteinsdóttir, fulltrúi sýslumannsins í Reykjavík

Þorsteinn Pétursson, fulltrúi á lögmannsstofu Skúla Bjarnasonar hrl.

Reykjavík, 2. júlí 2008



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum