Hoppa yfir valmynd
18. júlí 2008 Dómsmálaráðuneytið

Fjöldi lögreglumanna á höfuðborgarsvæðinu

Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, og Ólafur F. Magnússon, borgarstjóri í Reykjavík, hittust á fundi í dag 18. júlí að ósk borgarstjóra til að ræða um löggæslu í Reykjavík, einkum miðborginni.

Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, og Ólafur F. Magnússon, borgarstjóri í Reykjavík, hittust á fundi í dag 18. júlí að ósk borgarstjóra til að ræða um löggæslu í Reykjavík, einkum miðborginni. 

Á fundinum skýrði ráðherrann frá því,  að fjárveitingar til embættis lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu hefðu fylgt almennri launa-  og verðlagsþróun og væri nú varið rúmlega þremur milljörðum króna til löggæslu á höfuðborgarsvæðinu. Hækkun eldsneytis setti hins vegar strik í reikning embættisins á þessu ári og skapaði rekstrarvanda en lögreglumannafjöldi væri nú svipaður og fyrir ári eða um 330 lögreglumenn.

Var athygli borgarstjóra vakin á því, að viðbúnaður lögregluembættisins á höfuðborgarsvæðinu að kvöldi laugardagsins 12. júlí og aðfaranótt sunnudagsins 13. júlí sl. hefði verið mun meiri en komið hefði fram í fjölmiðlum. Sagt hefði verið að aðeins 14 lögreglumenn hefðu verið á vakt á höfuðborgarsvæðinu að kvöldi 12. júlí, þeir hefðu verið 24.

Aðfaranótt sunnudagsins 13. júlí voru 29 lögreglumenn á vakt í almennri deild lögreglunnar frá kl. 23 til kl. 7.30. Til viðbótar voru tveir lögreglumenn á vakt frá kl. 23.30 til kl. 5 og tveir frá umferðardeild til kl. 2.  Á vakt voru því 33 lögreglumenn þegar mest var, en síðan 31 til kl. 5 og 29 lögreglumenn til morguns. Þessa sömu nótt voru 6 sérsveitarmenn til viðbótar við það sem áður er talið á vakt á þremur lögreglubifreiðum auk 5 lögreglumanna hjá fjarskiptamiðstöð ríkislögreglustjóra. Alls voru það því 44 lögreglumenn , þegar mest var, sem  sinntu löggæslu á höfuðborgarsvæðinu þessa laugardagsnótt. Lýsti dóms- og kirkjumálaráðherra undrun sinni yfir því, hve erfitt hefði reynst að koma hinum réttu tölum á framfæri í fjölmiðlum.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum