Hoppa yfir valmynd
8. nóvember 2001 Dómsmálaráðuneytið

Mannanafnanefnd, úrskurðir 8. nóvember 2001

Ár 2001, 8. nóvember 2001, var fundur haldinn í Mannanafnanefnd. Fundinn sátu Andri Árnason, formaður, Guðrún Kvaran og Margrét Jónsdóttir.

Eftirtalin mál voru tekin til afgreiðslu:

 

Mál nr. 101/2001

Eiginnafn: Christine (kvk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Christine telst ekki ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls og ekki telst vera hefð fyrir slíkum rithætti. Beiðni um Christine er því hafnað.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Christine er hafnað.

 

Mál nr. 102/2001

 

Eiginnafn: Jóndór (kk)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Eiginafnið Jóndór tekur eignarfallsendingu (Jóndórs) og telst að öðru leyti fullnægja 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Jóndór er tekin til greina og skal fært á mannanafnaskrá.

 

Mál nr. 103/2001

Eiginnafn: Marthen (kk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Eiginnafnið Marthen telst vera ritmynd af eiginnafninu Martin og skal fært á mannanafnaskrá, en hefð er fyrir slíkum rithætti í sambærilegum nöfnum.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Marthen er tekin til greina og skal það fært á mannanafnaskrá sem ritmynd af Martin.

 

Mál nr. 104/2001

Eiginnafn: Annía (kvk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Eiginnafnið Annía tekur eignarfallsendingu (Anníu) og telst að öðru leyti fullnægja 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnöfnin Annía er tekin til greina og skal það fært á mannanafnaskrá.

 

Mál nr. 105/2001

Eiginnafn: Niels (kk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Eiginnafnið Niels telst ekki vera ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls og ekki telst vera hefð fyrir slíkum rithætti í sambærilegum nöfnum.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Niels er hafnað.

 

Fleira ekki gert.

Fundi slitið.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum