Hoppa yfir valmynd
25. apríl 2018 Utanríkisráðuneytið

Brugðist við ástandinu í Sýrlandi með hækkun framlaga

Utanríkisráðherra flytur ávarp sitt á ráðstefnunni í morgun. Ljósmynd: FRA - mynd
Í ljósi skelfilegra aðstæðna sem blasa við í Sýrlandi og stöðu sýrlenskra flóttamanna hefur Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra ákveðið að bæta 75 milljónum á næstu tveimur árum við framlög Íslands umfram þær 800 milljónir sem áður hafði verið heitið. Á fyrstu ráðstefnunni um málefni Sýrlands í fyrravor tilkynnti ráðherra að árlegt framlag Íslands yrði 200 milljónir króna á ári fram til ársins 2020.

Nú stendur yfir í Brussel önnur Sýrlandsráðstefnan á vegum Sameinuðu þjóðanna og Evrópusambandsins. Þar áréttaði Guðlaugur Þór að framlag Íslands yrði 200 milljónir á þessu ári, myndi hækka í 225 milljónir árið 2019 og verða 250 milljónir árið 2020. Árið 2017 voru framlögin 200 milljónir króna. Samtals hækka því framlög frá íslenskum stjórnvöldum um 75 milljónir vegna Sýrlands.

„Við hittumst í Brussel í dag, rétt eins og við gerðum fyrir ári, í kjölfar árásar þar sem efnavopn virðast hafa verið notuð. Á síðasta ári var ráðstefnan haldin eftir hræðilegar árásir á bæinn Khan Sheikhoun, og í dag hittumst við í skugga atburðanna í Douma fyrir tveimur vikum,“ sagði Guðlaugur Þór í ávarpi á ráðstefnunni fyrr í dag.

Ráðherra ítrekaði fordæmingu Íslendinga á notkun efnavopna og sagði að Ísland myndi halda áfram að styðja allar umleitanir að pólitískum lausnum. „Sýrlenska þjóðin hefur búið við þjáningar í sjö ár og horft á hundruð þúsunda falla í valinn. Hver og einn sem er í þeirri stöðu að geta haft áhrif verður að grípa til aðgerða nú þegar. Við skorum á öryggisráð Sameinuðu þjóðanna að rísa undir áskoruninni og finna leiðir til lausnar,“ sagði utanríkisráðherra og lauk ávarpi sínu með því að segja að mikilvægustu skilaboðin frá Íslandi væru þau að Íslendingar væru talsmenn fyrir friði, virðingu og von.

Ráðstefnuna í Brussel sækja rúmlega 85 sendinefndir hvaðanæva úr heiminum en markmið hennar er að fá endurnýjað umboð alþjóðasamfélagsins um öfluga mannúðaraðstoð og pólitískan og fjárhagslegan stuðning við Sýrlendinga og grannríkin sem ógnaröldin bitnar mest á.

Samhæfingarskrifstofa Sameinuðu þjóðanna í mannúðarmálum (OCHA) áætlar að yfir þrettán milljónir Sýrlendinga þurfi á neyðaraðstoð og vernd að halda. Fjöldi þeirra sem hafa þurft að flýja heimili sín er nánast fordæmalaus en samkvæmt OCHA eru 6,6 milljónir á vergangi í landinu og 5,6 milljónir sýrlenskra flóttamanna hafast nú við í grannríkjunum. OCHA telur að jafnvirði 914 milljóna króna þurfi til neyðaraðstoðar í Sýrlandi og grannríkjunum en eins og sakir standa hefur aðeins um fjórðungur þeirrar upphæðar safnast. Nánari upplýsingar eru á vefsíðu OCHA.
  • $alt

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

16. Friður og réttlæti

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum