Hoppa yfir valmynd
13. janúar 2020 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 20/2020 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 13. janúar 2020 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 20/2020

í stjórnsýslumálum nr. KNU19120049 og KNU19120050

Beiðni [...] og [...] um endurupptöku

 

I. Málsatvik

Þann 11. október 2019 staðfesti kærunefnd útlendingamála ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 7. júní 2019, um að taka umsóknir einstaklinga er kveðast heita [...], vera fædd [...] og vera ríkisborgari [...] og [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari [...] (hér eftir kærendur), um alþjóðlega vernd á Íslandi ekki til efnismeðferðar og vísa þeim frá landinu. Niðurstaða kærunefndar var birt kærendum þann 14. október 2019. Kærendur óskuðu eftir frestun réttaráhrifa á úrskurði kærunefndar þann 21. október 2019. Beiðni kærenda var synjað af kærunefnd þann 12. nóvember 2019. Kærendur óskuðu í fyrra sinn eftir endurupptöku á úrskurði kærunefndar þann 29. nóvember 2019. Þeirri beiðni kærenda var synjað af kærunefnd þann 19. desember 2019.

Kærendur óskuðu að nýju eftir endurupptöku á máli sínu þann 20. desember 2019 og barst greinargerð kærenda þann sama dag. Kærunefnd bárust jafnframt upplýsingar frá stoðdeild ríkislögreglustjóra og Útlendingastofnun um málsmeðferð í málum kærenda dagana 7., 9. og 10. janúar 2020.

Af endurupptökubeiðni kærenda má ætla að krafan byggi á 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Kærendur óska eftir því að kærunefnd endurupptaki mál þeirra, felli ákvarðanir Útlendingastofnunar úr gildi og geri stofnuninni að taka umsóknir þeirra til efnismeðferðar.

II. Málsástæður og rök kærenda

Í beiðni kærenda um endurupptöku er byggt á því að meira en 12 mánuðir séu nú liðnir frá því að umsóknir þeirra um alþjóðlega vernd bárust fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu málsins séu ekki á þeirra ábyrgð, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærendur hafi lagt fram umsóknir sínar á Íslandi þann 20. desember 2018. Kærendur vísa máli sínu til stuðnings til úrskurða kærunefndar útlendingamála nr. 580/2017 og nr. 552/2019.

III. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 24. gr. stjórnsýslulaga á aðili máls rétt á því að mál sé tekið upp á ný ef ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin.

Í 1. mgr. 40. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga kemur fram að flóttamaður skv. 37. gr. laganna, sem er hér á landi eða kemur hér að landi, hefur samkvæmt umsókn rétt á að fá hér alþjóðlega vernd.

Stjórnvöld geta þó, á grundvelli a-, b- og c-liðar 1. mgr. 36. gr. laganna, synjað því að taka til efnismeðferðar umsókn á grundvelli 40. gr. við þær aðstæður sem tilgreindar eru í umræddum stafliðum.

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Af orðalagi 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga leiðir að umrætt 12 mánaða tímabil hefst þegar umsækjandi leggur fyrst fram umsókn um alþjóðlega vernd hjá stjórnvöldum. Þá telur kærunefnd að tímabilinu ljúki þegar endanleg niðurstaða stjórnvalda er framkvæmd með flutningi umsækjanda til viðtökuríkis eða þegar kærandi fer úr landi sjálfviljugur eftir að ákvörðun í máli hans hefur verið tekin.

Kærunefnd telur að túlka beri 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga á þann hátt að þó að 12 mánaða fresturinn sé liðinn fari umsókn ekki í efnismeðferð af þeim sökum ef tafir á málsmeðferð eða flutningi verði raktar til athafna eða athafnaleysis umsækjanda sem hann ber að einhverju leyti ábyrgð á, nema þær tafir hafi verið óverulegar og ljóst er að hægt hefði verið að flytja kæranda áður en 12 mánaða fresturinn var liðinn.

Líkt og áður hefur komið fram sóttu kærendur um alþjóðlega vernd hér á landi þann 20. desember 2018 og hafa þau ekki enn yfirgefið landið. Því eru liðnir rúmlega 12 mánuðir frá því að umsóknir kærenda bárust fyrst íslenskum stjórnvöldum. Af upplýsingum sem kærunefnd bárust frá stoðdeild ríkislögreglustjóra og Útlendingastofnun dagana 7. og 9. janúar sl., varðandi fyrirspurn um tafir á málsmeðferð og flutningi kærenda, má ráða að þær tafir sem hafi orðið á málinu hafi ekki verið af völdum kærenda. Að auki hefur kærunefnd farið yfir málsmeðferð í málum kærenda og er að mati kærunefndar ekkert sem bendi til þess að kærendur verði taldir bera ábyrgð á töfum á afgreiðslu umsókna sinna, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Í ljósi alls framangreinds og samfelldrar dvalar kærenda hér á landi síðan kærendur lögðu fram umsókn um alþjóðlega vernd þann 20. desember 2018, er fallist á að atvik hafi breyst verulega í máli kærenda á þann hátt að þau eigi rétt á endurupptöku mála sinna, sbr. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga. Það er jafnframt niðurstaða kærunefndar að fella ákvarðanir Útlendingastofnunar úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka umsóknir kærenda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Samantekt

Það er niðurstaða kærunefndar að endurupptaka mál kærenda. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál þeirra til efnismeðferðar.  

 

Úrskurðarorð

Fallist er á beiðni kærenda á endurupptöku á málum þeirra.

Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru felldar úr gildi. Lagt er fyrir stofnunina að taka mál kærenda til efnismeðferðar.

 

The appellants requests for re-examination of their case is granted.

The decision‘s of the Directorate of Immigration are vacated. The Directorate shall examine the merits of the applicant‘s applications for international protection in Iceland.

 

Hjörtur Bragi Sverrisson                                                                     Áslaug Magnúsdóttir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum