Hoppa yfir valmynd
26. janúar 2022 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 5/2022 Endurupptökubeiðni Úrskurður 26. janúar 2022

Mál nr. 5/2022                      Endurupptökubeiðni

 

                                               Eiginnafn:     Eldhamar (kk.)

                                               Millinafn:      Eldhamar

 

.

 

Mannanafnanefnd hefur borist beiðni, dags. 5. janúar sl., þar sem óskað er eftir endurupptöku máls nr. 150/2021. Ástæða beiðnarinnar er að í upphaflegri umsókn sinni hafði úrskurðarbeiðandi óskað eftir að taka upp nafnið Eldhamar sem millinafn, en síðar kom í ljós að hann gat ekki borið nafnið sem millinafn. Því er óskað eftir því að mannanafnanefnd taki málið upp aftur og fjalli um nafnið Eldhamar sem eiginnafn.

Að mati nefndarinnar stendur ekkert í vegi fyrir því að taka málið upp að nýju og fylgir nýr úrskurður í málinu hér á eftir sem fengið hefur málsnúmerið 5/2022.

Hinn 26. janúar 2022 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli nr. 5/2022, en erindið barst nefndinni 5. janúar.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  • Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  • Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  • Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  • Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Eiginnafnið Eldhamar (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Eldhamars, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Eldhamar (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

Millinafnið Eldhamar skal tekið af mannanafnaskrá.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum