Hoppa yfir valmynd
10. ágúst 2006 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Greiðsluafkoma ríkissjóðs janúar-júní 2006

Greiðsluuppgjör ríkissjóðs eftir fyrri árshelming 2006 liggur nú fyrir. Samkvæmt uppgjörinu jókst handbært fé frá rekstri um 29,7 milljarða króna innan ársins, sem er 16 milljörðum hagstæðari útkoma heldur en á sama tíma í fyrra. Þá er útkoman 35 milljörðum hagstæðari en gert var ráð fyrir í áætlun. Tekjur reyndust um 17 milljörðum hærri en í fyrra meðan gjöldin hækkuðu um 1,3 milljarða. Hreinn lánsfjárjöfnuður er jákvæður um 27,5 milljarða króna sem er 1,6 milljörðum betra en á sama tíma í fyrra.

Sjóðstreymi ríkissjóðs janúar –júní 2006

(Í milljónum króna)

 

 

2002

2003

2004

2005

2006

Innheimtar tekjur

113.244

130.556

133.583

165.540

182.826

Greidd gjöld

120.944

127.670

138.399

151.887

153.160

Tekjujöfnuður

-7.700

2.886

-4.816

13.653

29.666

Söluhagn. af hlutabr. og eignahl.

-39

-12.059

-

-

-

Breyting rekstrartengdra eigna og skulda

277

114

2.574

1.883

40

Handbært fé frá rekstri

-7.462

-9.059

-2.243

15.536

29.706

Fjármunahreyfingar

3.118

17.596

4.251

10.379

-2.208

Hreinn lánsfjárjöfnuður

-4.343

8.424

-858

25.915

27.498

Afborganir lána

-19.484

-17.952

-28.604

-30.002

-38.873

   Innanlands

-9.344

-5.545

-3.601

-13.775

-24.100

   Erlendis

-10.141

-12.408

-25.004

-16.227

-14.773

Greiðslur til LSR og LH

-4.500

-3.750

-3.750

-1.900

-1.980

Lánsfjárjöfnuður, brúttó

-28.328

-13.279

-33.212

-5.988

-13.355

Lántökur

24.892

14.038

34.780

9.579

16.246

   Innanlands

6.937

12.661

11.228

5.305

8.146

   Erlendis

17.955

1.377

23.552

4.274

8.100

Greiðsluafkoma ríkissjóðs

-3.435

760

9.828

3.591

2.890

 

Innheimtar tekjur ríkissjóðs námu 183 ma.kr. á fyrri helmingi þessa árs. Það er rúmum 17 ma.kr meira en á sama tíma í fyrra, eða 10,4% aukning. Ef tekið er tillit til tilfærslu milli mánaða vegna tekjuskatts lögaðila nemur aukningin 8,5%. Skatttekjur og tryggingagjöld jukust um rúm 14% að nafnvirði. Á sama tíma hækkaði almennt verðlag um 5,7% og raunaukning skatttekna og tryggingargjalda var því 8%. 41% samdráttur annarra rekstrartekna milli ára skýrist af arðgreiðslum vegna Landsímans á þessu tímabili í fyrra.

Skattar á tekjur og hagnað námu 65 ma.kr. og jukust um 16 ma.kr. frá síðasta ári, eða 33%. Þar af jókst tekjuskattur einstaklinga um 12% og lögaðila um 98% (þá er leiðrétt fyrir fyrrgreindri tilfærslu) og fjármagnstekjuskattur um 43%. Innheimt tryggingagjöld jukust um 15% milli ára, eða 6,2% umfram hækkun launavísitölu á sama tíma. Innheimta eignarskatta nam 5,5 ma.kr. sem er 27% minna en á sama tímabili í fyrra. Þar af námu stimpilgjöld 4 ma.kr. en innheimta þeirra á árinu hefur dregist saman um 18% frá fyrra ári, meðal annars vegna þess að dregið hefur úr skuldbreytingu lána.

Innheimta almennra veltuskatta gefur nokkuð góða mynd af þróun innlendrar eftirspurnar. Hún nam 82 ma.kr. á fyrri helmingi ársins og jókst um 10% að nafnvirði frá fyrra ári eða 4% umfram hækkun vísitölu neysluverðs. Tekjur af virðisaukaskatti hafa aukist um rúm 7% sem jafngildir tæplega 2% raunaukningu. Vegna lagabreytingar sem felur í sér rýmri greiðslufrest á virðisaukaskatti og aðflutningsgjöldum fer marktækni samanburðar við fyrra ár eftir því hvaða tímabil innan ársins er til skoðunar en sé litið á hreyfanlegt meðaltal nokkurra mánuða kemur fram að verulega hefur hægt á raunvexti tekna af sköttum sem lagðir eru á vöru og þjónustu. Af helstu einstökum liðum veltutengdra skatta er enn mest aukning í vörugjöldum af ökutækjum en þau skiluðu 15% meiri tekjum en á sama tíma í fyrra. Nýskráningar bifreiða á fyrri helmingi ársins voru 4,4% fleiri en á sama tíma 2005.

Greidd gjöld nema 153,2 milljörðum króna og hækka um 1,3 milljarða milli ára, eða 0,8%. Vaxtagreiðslur lækka um 7,7 milljarða, einkum vegna þess að stór flokkur spariskírteina var á innlausn í apríl í fyrra. Að vöxtum undanskildum hækka gjöldin um 8,9 milljarða eða um 6,1%. Mest munar um 2,5 milljarða hækkun heilbrigðismála og 1,9 milljarða í almannatrygginga- og velferðarmálum. Þá hækka greiðslur til menntamála um 1,6 milljarða. Samtals vega þessir þrír málaflokkar tæplega af heildargjöldum ríkissjóðs fyrir utan vexti. Greiðslur vegna almennrar opinberrar þjónustu hækka um 1,3 milljarða og greiðslur til löggæslu hækka um 1 milljarð milli ára. Greiðslur til efnahags- og atvinnumála standa í stað milli ára.

Lántökur ársins nema 16,2 milljörðum króna en afborganir lána eru 38,9 milljarðar. Mismunurinn er fjármagnaður með handbæru fé frá rekstri.

Eiginfjárframlag ríkisins í Nýsköpunarsjóði var aukið um einn milljarð króna á árinu og tveir milljarðar voru greiddir til Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins í því skyni að lækka framtíðarskuldbindingar ríkissjóðs.

Tekjur ríkissjóðs janúar–júní 2006

 

Í milljónum króna

 

Breyting frá fyrra ári, %

 

2004

2005

2006

2004

2005

2006

Skatttekjur og tryggingagjöld

124.698

148.057

172.169

 

14,7

18,7

16,3

Skattar á tekjur og hagnað

42.172

48.725

65.047

 

17,8

15,5

33,5

Tekjuskattur einstaklinga

30.973

34.156

38.315

 

11,0

10,3

12,2

Tekjuskattur lögaðila

4.876

4.820

12.787

 

126,0

-1,2

165,3

Skattur á fjármagnstekjur

6.323

9.750

13.945

 

9,9

54,2

43,0

Eignarskattar

4.781

7.497

5.449

 

17,2

56,8

-27,3

Skattar á vöru og þjónustu

62.599

74.415

81.743

 

12,5

18,9

9,8

Virðisaukaskattur

43.200

52.290

56.145

 

13,6

21,0

7,4

Vörugjöld af ökutækjum

2.904

5.120

5.879

 

39,5

76,3

14,8

Vörugjöld af bensíni

3.934

3.887

4.265

 

13,2

-1,2

9,7

Skattar á olíu

2.273

2.603

2.903

 

14,5

14,5

11,5

Áfengisgjald og tóbaksgjald

4.823

5.129

5.338

 

2,4

6,3

4,1

Aðrir skattar á vöru og þjónustu

5.465

5.386

7.213

 

1,6

-1,5

33,9

Tollar og aðflutningsgjöld

1.430

1.511

1.601

 

19,2

5,7

5,9

Aðrir skattar

268

337

375

 

.

26,0

11,1

Tryggingagjöld

13.449

15.571

17.955

 

12,3

15,8

15,3

Fjárframlög

170

234

306

 

-58,9

37,7

30,9

Aðrar rekstrartekjur

8.692

17.010

10.065

 

-5,6

95,7

-40,8

Sala eigna

23

239

287

 

-

-

-

Tekjur alls

133.583

165.539

182.826

 

2,3

23,9

10,4



Gjöld ríkissjóðs janúar-júní 2006

 

 Í milljónum króna

 

Breyting frá fyrra ári, %

 

2004

2005

2006

2005

2006

Almenn opinber þjónusta

24.694

31.884

25.513

 

29,1

-20,0

Þar af vaxtagreiðslur

8.732

14.393

6.725

 

64,8

-53,3

Heilbrigðismál

35.624

39.377

41.862

 

10,5

6,3

Almannatryggingar og velferðarmál

32.486

32.251

34.180

 

-0,7

6,0

Efnahags- og atvinnumál

19.312

19.410

19.342

 

0,5

-0,4

Menntamál

13.873

16.329

17.917

 

17,7

9,7

Menningar-, íþrótta- og trúmál

6.441

6.366

6.933

 

-1,2

8,9

Löggæsla, réttargæsla og öryggismál

4.253

4.387

5.398

 

3,2

23,0

Umhverfisvernd

1.626

1.652

1.793

 

1,6

8,5

Húsnæðis- skipulags- og veitumál

91

230

223

 

153,0

-3,0

Gjöld alls

138.399

151.887

153.160

 

9,7

0,8



 

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum