Hoppa yfir valmynd
27. mars 2019 Innviðaráðuneytið

Íbúðalánasjóði skipt upp

  - myndHaraldur Jónasson / Hari

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum síðastliðinn þriðjudag tillögu Ásmundar Einars Daðasonar, félags- og barnamálaráðherra, um að Íbúðalánasjóði verði skipt upp. Í því felst að sá hluti sem snýr að fjármálaumsýslu vegna eldra lánasafns sjóðsins verði skilinn frá meginstarfsemi hans. Legið hefur fyrir frá árinu 2012, þegar almennum lánveitingum sjóðsins til almennings vegna húsnæðiskaupa var að mestu hætt, að bregðast þyrfti við áhrifum þess á Íbúðalánasjóð. Þeim var hætt í kjölfar úrskurðar Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) um að lánin stönguðust á við reglur EES-samningsins.

Starfshópur, sem skipaður var í september síðastliðnum, hefur verið með breytta stöðu sjóðsins til umfjöllunar og var niðurstaða hópsins að leggja til við ráðherra að fara þessa leið.

Hlutverk Íbúðalánasjóðs hefur tekið miklum breytingum á síðustu árum með breytingum á lögum um húsnæðismál og er í dag sú stofnun sem fer með framkvæmd húsnæðismála hér á landi. Hún fer með stefnumótun og rannsóknir á húsnæðismarkaði, hefur umsjón með opinberum húsnæðisstuðningi og veitingu félagslegra húsnæðislána. Eftir uppskiptinguna verður til öflug húsnæðisstofnun sem gegnir lykilhlutverki á húsnæðismarkaði. Hún fer með framkvæmd og samhæfingu húsnæðismála um land allt auk þess að vera öflugur samstarfsaðili fyrir sveitarfélögin í landinu í tengslum við áætlunargerð þeirra í húsnæðismálum.

 

Starfshópur skoði stofnun nýrrar húsnæðis- og mannvirkjastofnunar með sameiningu Íbúðalánasjóðs og Mannvirkjastofnunar

Á sama fundi ríkisstjórnarinnar á þriðjudag kynnti Ásmundur Einar að til greina komi að sameina Mannvirkjastofnun við húsnæðisstofnunarhluta Íbúðalánasjóðs. Hyggst ráðherrann skipa starfshóp á næstu dögum sem ætlað er að skoða ítarlega kosti þess og galla.

Tillagan um sameiningu þessara stofnana kemur í kjölfar nýrrar verkaskiptingar innan stjórnarráðsins, en um síðustu áramót fluttust mannvirkja- og byggingarmál alfarið yfir til félagsmálaráðuneytisins. Ásmundur Einar sagði við það tilefni að mikilvægt væri að efla enn frekar stjórnsýslu á húsnæðis- og byggingamarkaði svo bregðast megi skjótar við aðstæðum á húsnæðismarkaði.

„Ég er ánægður með niðurstöðu starfshópsins um uppskiptingu íbúðarlánasjóðs en hún gerir hann að öflugri húsnæðisstofnun sem ætti að geta sinnt málaflokknum vel. Ég lagði áherslu á það þegar mannvirkja- og byggingamál færðust til félagsmálaráðuneytisins að við gætum gert margt betur á þessu sviði. Þá voru niðurstöður átakshóps í húsnæðismálum skýlaus ábending til stjórnvalda um að efla þyrfti stjórnsýslu á sviði húsnæðis- og mannvirkjamála,“ segir Ásmundur Einar

 

Starfshópur skipaður í byrjun apríl

Gert er ráð fyrir að starfshópur verði skipaður í byrjun apríl. Honum verður falið að meta kosti þess að sameina Íbúðalánasjóð og Mannvirkjastofnun í nýja Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og vinna að nauðsynlegum lagabreytingum í því sambandi. Komi til sameiningar er gert er ráð fyrir að frumvarp þess efnis verði lagt fram á Alþingi þegar í upphafi 150. löggjafarþings og að Húsnæðis- og mannvirkjastofnun taki til starfa um miðjan næsta vetur.

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum