Hoppa yfir valmynd
7. janúar 2008 Heilbrigðisráðuneytið

Biðtími styttur

Frá áramótum breyttist fyrirkomulag á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja þannig að nú verður boðið upp á sérstaka hraðþjónustu heilsugæslunnar á dagvinnutíma. Þetta þýðir að fólk sem á við skammtímavanda að etja ætti að fá mun hraðari afgreiðslu. Í tilkynningu frá Heilbrigðisstofnuninni segir um breytinguna: “Um er að ræða eins konar hraðmóttöku á dagvinnutíma þangað sem fólki er beint sem á við "skammtímavandamál" að etja. Með því er átt við fólk sem er e.t.v. að kljást við flensur, sýkingar eða eitthvað þess háttar sem hægt er að greina fljótt og veita viðeigandi meðferð. Hraðmóttakan er opin á dagvinnutíma frá kl. 08-16 og hægt að panta tíma samdægurs.Tekið er á móti pöntunum í síma 422-0500.

Sigurjón Kristinsson, yfirlæknir á heilsugæslunni, sagði í samtali við Víkurfréttir að með þessu sé verið að breyta skipulaginu og auka við þjónustu til að hægt sé að sinna fleiri sjúlkingum. Sigurjón bætir því við að nýlega hafi verið gerð könnun á biðtíma á læknavaktinni og kom þar í ljós að meðalbiðtími  á biðstofu  til læknis á HSS er um 45 mínútur. "Núna er ástandið þannig að af heildarfjölda þeirra sem leita á heilsugæsluna koma 60% á vaktina en 40% á dagvinnutíma og þvi erum við að reyna að snúa við. Með þessu nýja fyrirkomulag! i miðum við að því að sinna 28 sjúklingum aukalega á dag og 140 á viku. Þannig styttum við biðtíma eftir viðtali við lækna verulega."

Sigríður Snæbjörnsdóttir, forstjóri HSS, sagði að með þessari bættu þjónustu væri vonast til að hægt væri að mæta þörfum skjólstæðinga enn betur og fyrr. Einnig benti hún á að óvíða væri styttri biðtími eftir bráðaþjónustu heldur en HSS biði upp á núna. Auðvitað væru þó undantekningar frá þessu, eðli málsins samkvæmt, því stærri slys og meiri veikindi fengju alltaf forgang.”



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum