Hoppa yfir valmynd
5. september 2019

Nýr fastafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum

Jörundur Valtýsson fastafulltrúi Íslands og António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna - mynd

Jörundur Valtýsson, sendiherra, afhenti í dag António Guterres, aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, trúnaðarbréf sitt sem fastafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum. Á fundinum, sem fór fram í höfuðstöðvum SÞ í New York, voru málefni norðurslóða og loftslagsmál ofarlega á baugi, en síðar í mánuðinum fer fram leiðtogafundur um loftslagsmál á vettvangi stofnunarinnar. Dagskrá allsherjarþings SÞ, framfylgd heimsmarkmiðanna og mannréttindamál voru sömuleiðis til umræðu, þ.m.t. seta Íslands í mannréttaráði SÞ sem lýkur um áramótin.

Einnig voru ræddar áherslur Íslands hjá SÞ sem meðal annars lúta að málefnum hafsins, sjálfbærri auðlindanýtingu, landgræðslu, og jafnréttismálum. Þá fagna Sameinuðu þjóðirnar 75 ára afmæli á næsta ári og var tæpt á undirbúningi í tilefni tímamótanna.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

Heimsmarkmið Sþ: 17 Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum