Hoppa yfir valmynd
1. júní 2021 Utanríkisráðuneytið

Þættir Sjávarútvegsskólans um heimsmarkmið fjórtán sýndir á Hringbraut

Þættirnir eru sýndir á Hringbraut - Mary Frances Davidson aðstoðarforstöðumaður Sjávarútvegsskólans á myndinni. - mynd

„Í þáttunum deila nokkrir af reyndustu sérfræðingum Sjávarútvegsskólans reynslu af vinnu og rannsóknum í samstarfslöndum Sjávarútvegsskólans og ræða mikilvæg atriði sem snúa að framkvæmd á fjórtánda heimsmarkmiði Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun,“ segir Þór Ásgeirsson forstöðumaður Sjávarútvegsskólans. Þættir um fjórtánda heimsmarkmiðið – líf í vatni – eru sýndur á sjónvarpsstöðinni Hringbraut undir yfirskriftinni: Lífið í sjónum.

Fyrsti þátturinn var sýndur síðastliðið miðvikudagskvöld, annar þáttur verður sýndur annað kvöld, og tveir þeir síðustu miðvikudagskvöldin þar á eftir.

Að sögn Þórs er meðal annars notast við niðurstöður fyrrverandi nemenda Sjávarútvegsskólans til að skýra betur þau vandamál sem þjóðir glíma við þegar kemur að stjórnun, nýtingu auðlindarinnar og uppbyggingu sjávarútvegs. Í lok hvers þáttar eru settar fram spurningar til að hjálpa og hvetja áhorfendur til að skoða stöðu mála í sínu heimalandi.

Sjávarútvegsskóli GRÓ (þekkingarmiðstöðvar þróunarsamvinnu) er einn fjögurra skóla sem starfa undir merkjum Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO). Þættirnir eru framlag Sjávarútvegsskólans til framkvæmda á heimsmarkmiði 14, en fyrirheit um slíkt var gefið á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í New York árið 2017 – UN Ocean Conference – Our Oceans.

Þættirnir eru byggðir á rúmlega tuttugu ára reynslu Sjávarútvegsskóla GRÓ í að aðstoða fátækar þjóðir heims í nýtingu á sjálfbæran hátt lifandi auðlinda sjávar og vatna. Skólinn hefur frá árinu 1998 þjálfað fagfólk í sjávarútvegi í rannsóknum, nýsköpun, gagnaúrvinnslu og greiningu, ásamt stefnumótun og síðast en ekki síst samskiptum og kynningum á niðurstöðum.

Sjá nánar um innihald hvers þáttar í Heimsljósi á Stjórnarráðsvefnum.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

14. Líf í vatni
17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum