Hoppa yfir valmynd
13. desember 2023 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Kynning á tillögum starfshóps um vindorku

Starfshópur um vindorku hefur skilað tillögum sínum til Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, og verða þær kynntar miðvikudaginn 13. desember kl. 15.30. Hægt verður að fylgjast með kynningunni í beinu streymi á vef Stjórnarráðsins.

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, skipaði í júlí 2022 þriggja manna starfshóp sem fékk það hlutverk að skoða og gera tillögur til ráðherra um drög að lögum og reglugerð um vindorku, með það að markmiði að einfalda uppbyggingu vindorkuvera til framleiðslu á grænni orku, jafnframt því að tekið verði tillit til sjónrænna áhrifa, dýralífs og náttúru.

Starfshópinn skipuðu þau:

Hilmar Gunnlaugsson formaður hópsins

Björt Ólafsdóttir, fyrrv. ráðherra umhverfis- og auðlindamála

Kolbeinn Óttarsson Proppé, fyrrv. alþingismaður.

Starfshópurinn skilaði af sér stöðuskýrslu í apríl sl., þar sem dregin voru saman helstu álitaefni sem komið höfðu upp við vinnu hópsins auk þess sem settir voru fram ýmsir valkostir um hvaða leiðir væru færar til að leysa úr þeim.  Í framhaldinu voru haldnir opnir kynningarfundir um allt land þar sem starfshópurinn, ásamt umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, sátu fyrir svörum um málefni vindorkunnar.

Eftir að hafa hlýtt á sjónarmið hagaðila og almennings hefur hópurinn unnið áfram að málinu með það að markmiði að leggja til tilteknar breytingar á lagaramma um vindorku til að ná framangreindum markmiðum, sem kynntar verða á fundinum.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum