Hoppa yfir valmynd
22. maí 2019 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 43/2019 Úrskurður 22. maí 2019

Mál nr. 43/2019                    Eiginnafn:     Hrafnhetta (kvk.)

 

 

 

Hinn 22. maí 2019 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 43/2019 en erindið barst nefndinni 13. maí.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  • Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  • Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  • Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  • Stúlku skal gefa kvenmannsnafn og dreng skal gefa karlmannsnafn.
  • Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Eiginnafnið Hrafnhetta (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Hrafnhettu, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga um mannanöfn.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Hrafnhetta (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum