Hoppa yfir valmynd
28. janúar 2015 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 8/2015 úrskurður 21. janúar 2015

Mál nr. 8/2015                       Eiginnafn:      Viðjar

 

Hinn 21. janúar 2015 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 8/2015 en erindið barst nefndinni 19. janúar:

Eiginnafnið Viðjar (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Viðjars, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Viðjar (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum