Hoppa yfir valmynd
23. september 2022 Matvælaráðuneytið

Matvælaráðherra heimilar flutning lamba með verndandi arfgerð gegn riðuveiki á milli landsvæða

Samkvæmt ósk Matvælastofnunar hefur Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra samþykkt breytingu á reglugerð til að flytja megi á milli landsvæða lömb sem hafa verndandi eða mögulega verndandi arfgerð gegn riðu.

Samkvæmt fyrri ákvæðum reglugerðarinnar var flutningur lamba óheimill inn á svæði þar sem greinst hafði riða. Til að vinna megi gegn sjúkdómnum telur Matvælastofnun mikilvægt að hægt sé að flytja lömb á fæti frá einu riðusvæði til annars að ákveðnum skilyrðum uppfylltum,

Skilyrði er meðal annars sett um að sóttvarnarsvæðið sem lömbin koma frá sé minna sýkt af riðu en svæðið sem þau eru flutt á, eða að útbreiðsla riðu á svæðunum sé sambærileg.

Þar sem ætla má að eftirspurn eftir þessum lömbum sé meiri en framboð hefur Matvælastofnun skilgreint hvaða svæði og bæir skuli njóta forgangs við kaup á lömbum með verndandi arfgerð gegn riðu.

„Það er sérstakt fagnaðarefni að íslenskir sauðfjárbændur eygi nú þann möguleika að vinna bug á riðu, sjúkdómi sem hefur valdið gríðarlegu tjóni í rúmlega 140 ár í íslenskri sauðfjárrækt. Sem matvælaráðherra reyni ég að styðja eftir besta megni allar aðgerðir sem hjálpa okkur að ná því marki,“ sagði Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra.

Reglugerðina  má nálgast hér.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

15. Líf á landi

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum