Hoppa yfir valmynd
4. mars 2016 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Greiðsluafkoma ríkissjóðs janúar-desember 2015

Greiðsluuppgjör ríkissjóðs fyrir janúar – desember 2015 liggur nú fyrir og gefur upplýsingar um afkomu ríkissjóðs á grundvelli innheimtra tekna og greiddra gjalda. Tekjujöfnuðurinn var jákvæður um 30.4 ma.kr. og nokkuð betri en gert hafði verið ráð fyrir. Innheimtar tekjur jukust um 10,4 ma.kr. milli ára en móti jukust greidd gjöld um 16,2 ma.kr. Handbært fé frá rekstri var jákvætt um tæpa 17 ma.kr. samanborið við jákvætt handbært fé upp á tæplega 81 ma.kr. 2014. Leiðrétting verðtryggðra húsnæðislána sem gjaldfærð var í lok ársins 2014 og kom til greiðslu í ársbyrjun 2015 skýrir þennan mun að mestu.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum