Hoppa yfir valmynd
28. október 2020 Utanríkisráðuneytið

Sendifulltrúi Rauða krossins á Íslandi að störfum í Jemen

Kolbrún Þorsteinsdóttir hjúkrunarfræðingur og sendifulltrúi Rauða krossins á Íslandi er að störfum á meðferðardeild fyrir einstaklinga sem veikjast af COVID-19 í Aden í suðurhluta Jemen. „Með stuðningi utanríkisráðuneytisins og Mannvina Rauða krossins getur Rauði krossinn á Íslandi stutt við jemenska Rauða hálfmánann í aðgerðum sínum, bæði í baráttunni gegn COVID-19 en einnig afleiðinga vopnaðra átaka síðastliðinna ára,“ segir í frétt frá Rauða krossinum.

Vegna viðvarandi átaka og skorts á sjúkragögnum hafa margar heilbrigðisstofnanir neyðst til að loka í Jemen. Heilbrigðiskerfið á í erfiðleikum með að veita hundruð þúsunda einstaklinga grunnþjónustu og lífi þeirra er ógnað vegna læknanlegra sjúkdóma, vannæringar og stríðstengdra áverka, að því er fram kemur í fréttinni. „Skortur á rafmagni og eldsneyti og mikil verðbólga gerir það að verkum að matur, lyf og aðrar nauðsynjavörur eru of dýrar fyrir flesta íbúa landsins og gerir erfitt líf af völdum vopnaðra átaka enn erfiðara,“ segir þar.

Heilbrigðiskerfið í Jemen er í molum eftir stríðið og hvergi hafa fleiri látist hlutfallslega af völdum veirunnar eftir afar erfiða fyrstu bylgju sjúkdómsins þar í landi. Meðferðardeildin sem Kolbrún starfar á er meðal annars útbúin 60 rúmum fyrir sjúklinga, röntgenherbergi, legudeildum, hágæslu, aðstöðu fyrir forgangsröðun sjúklinga og rannsóknarstofu. Nokkur tonn af sjúkragögnum og búnaði voru flutt á staðinn.

Kolbrún hefur nú þegar hafið störf á deildinni og verður fram í janúar. Fyrir tveimur árum fór hún sem sendifulltrúi á vegum Rauða krossins til Cox´s Bazar í Bangladess.

  • $alt

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

3. Heilsa og vellíðan
16. Friður og réttlæti
17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum