Hoppa yfir valmynd
22. júlí 2004 Innviðaráðuneytið

Samgönguráðherra heimsækir Reykjavíkurhöfn

Síðastliðinn mánudag heimsótti Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra, Reykjavíkurhöfn og athafnasvæði Eimskips og Samskips, ásamt ráðuneytisstjóra, Ragnhildi Hjaltadóttur, og öðrum fulltrúum ráðuneytisins.
Hópurinn sem heimsótti Reykjavíkurhöfn
Hópurinn sem heimsótti Reykjavíkurhöfn

Með í för voru einnig fulltrúar Siglingastofnunar og lögreglunnar í Reykjavík.

Heimsóknin var farin í tilefni nýrra reglna um siglingavernd, þ.e. alþjóðlegt öryggiskerfi í höfnum og skipum, sem tóku gildi 1. júlí sl. og taka til farþega- og flutningaskipa yfir 500 brúttótonn að stærð sem eru í millilandasiglingum og hafna sem þjóna þeim.

Í heimsókninni kom fram að menn voru almennt sammála um að vel hefði tekist til með framkvæmd siglingaverndar í Reykjavíkurhöfn, t.d. á Miðbakkanum þar sem afgreidd eru skemmtiferðaskip í samræmi við kröfur siglingaverndar, en jafnframt reynt að nýta hafnarbakkann fyrir fiskiskip og hafa hann aðgengilegan almenningi þegar aðstæður leyfa.

Samgönguráðuneytið ber ábyrgð á innleiðingu og framkvæmd siglingaverndar hér á landi, en ráðuneytið hefur falið Siglingastofnun Íslands umsjón með framkvæmdinni auk m.a. Ríkislögreglustjóra og Tollstjóranum í Reykjavík. Með góðri samvinnu allra hlutaðeigandi aðila hefur tekist að leysa þetta umfangsmikla verkefni og eru Íslendingar framarlega í flokki þjóða sem voru með öryggiskröfur í lagi þegar nýju reglurnar gengu í gildi 1. júlí sl.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum