Hoppa yfir valmynd
30. desember 2016 Innviðaráðuneytið

Endanleg framlög Jöfnunarsjóðs á tekjutapi vegna fasteignaskatts, tekjujöfnunar og útgjaldajöfnunar

Innanríkisráðherra hefur samþykkt tillögur ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um endurskoðaða úthlutun framlaga vegna tekjutaps fasteignaskatts, tekjujöfnunarframlags og útgjaldajöfnunarframlags.

Framlag til jöfnunar á tekjutapi vegna fasteignaskatts

Innanríkisráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um endurskoðaða úthlutun framlags til jöfnunar á tekjutapi vegna fasteignaskatts fyrir árið 2016, skv. reglugerð nr. 80/2001. Endurskoðunin tekur mið af auknu ráðstöfunarfjármagni sjóðsins til greiðslu framlagsins.

Heildarúthlutun framlagsins í ár nemur 4.110,1 m.kr. Nú þegar hafa 3.845,3 m.kr. komið til greiðslu. Eftirstöðvar framlagsins að fjárhæð 264,8 m.kr. koma til greiðslu föstudaginn 30. desember.

Tekjujöfnunarframlög 2016

Innanríkisráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um endurskoðaða úthlutun tekjujöfnunarframlaga fyrir árið 2016, skv. 12. gr. reglugerðar um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, nr. 960/2010. Við endurskoðunina var tekið mið af endanlegum útsvarsstofni sveitarfélaga vegna tekna á árinu 2015.

Heildarúthlutun tekjujöfnunarframlaga í ár nemur 1.249,4 m.kr. Um ¾ hlutar framlaganna að fjárhæð 937,5 m.kr. komu til greiðslu í október. Eftirstöðvar framlaganna að fjárhæð 331,9 m.kr. koma til greiðslu föstudaginn 30. desember.

Útgjaldajöfnunarframlög 2016

Innanríkisráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um endurskoðaða úthlutun útgjaldajöfnunarframlaga fyrir árið 2016, skv. 13. gr. reglugerðar um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, nr. 960/2010. Við endurskoðunina var tekið mið af leiðréttum hámarkstekjum á íbúa í hverju sveitarfélagi.

Vegna verulegrar hækkunar á tekjum Jöfnunarsjóðs af 2,12% lögbundinni hlutdeild sjóðsins í innheimtum skatttekjum ríkissjóðs hefur heildarúthlutun útgjaldajöfnunarframlaga í ár verið hækkuð um 2.050 m.kr. eða um 30% frá áætlun ársins. Nema framlögin samtals 8.900,0 m.kr. þar af eru framlög vegna skólaaksturs úr dreifbýli á árinu samtals að fjárhæð 750,0 m.kr. Til greiðslu á árinu hafa komið samtals 5.501,9 m.kr. Eftirstöðvar framlaganna að fjárhæð 3.397,8 m.kr. koma til greiðslu föstudaginn 30. desember. Meðtalin í þeirri greiðslu eru viðbótarframlög vegna íþyngjandi kostnaðar við skólaakstur úr dreifbýli á árinu 2016 umfram tekjur að fjárhæð 175,0 m.kr.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum