Hoppa yfir valmynd
27. september 2023 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 526/2023 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 27. september 2023 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 526/2023

í stjórnsýslumáli nr. KNU23050128

 

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 19. maí 2023 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Venesúela og Sýrlands (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 5. maí 2023, um að synja honum um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga.

Kærandi krefst þess aðallega að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og honum verði veitt alþjóðleg vernd á Íslandi á grundvelli 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til vara krefst kærandi þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og honum verði veitt viðbótarvernd á grundvelli 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til þrautavara krefst kærandi þess að hin kærða ákvörðun, þess efnis að veita honum dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga, verði staðfest.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.        Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi 11. september 2022. Kærandi kom í viðtal hjá Útlendingastofnun 13. október 2022 ásamt talsmanni sínum. Með ákvörðun, dags. 5. maí 2023, synjaði Útlendingastofnun kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi en veitti honum dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Var sú ákvörðun kærð til kærunefndar útlendingamála 19. maí 2023. Kærunefnd barst greinargerð kæranda 26. maí 2023 ásamt fylgigögnum. Viðbótargögn bárust frá kæranda 14. júní 2023.

III.      Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi byggi umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hann sé í hættu í heimaríki vegna almenns ástands þar í landi og vegna kynhneigðar sinnar.

Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar í máli kæranda var sú að kærandi væri ekki flóttamaður og honum synjað um alþjóðlega vernd á Íslandi samkvæmt ákvæðum 37. og 40. gr. laga um útlendinga. Kæranda var veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

IV.      Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að hann sé fæddur í Venesúela og hafi alist upp í borginni [...] í Lara fylki til [...] aldurs. Kærandi sé einnig sýrlenskur ríkisborgari og hafi búið þar með foreldrum sínum í nokkur ár. Kærandi hafi lýst sjálfum sér sem glæpamanni í Sýrlandi þar sem hann hafi ekki aðlagast menningunni þar í landi, verið í felum og verið dæmdur til dauða. Þegar kærandi hafi verið [...] hafi hann lagt fram kæru á hendur foreldrum sínum vegna misnotkunar og ofbeldis af þeirra hálfu. Yfirvöld hafi ekki aðhafst í málinu en hafi skráð það hjá sér. Í kjölfar þess og vegna kynhneigðar kæranda hafi hann flutt ásamt fjölskyldu sinni til Sýrlands þar sem kæran og [...] hafi þótt hneyksli og skömm fyrir heiður fjölskyldunnar. Í Sýrlandi hafi kærandi búið með móðurfjölskyldu sinni. Árið [...] hafi kærandi flutt aftur til Venesúela en árið [...] hafi faðir hans látist og móðir hans hafi þá flutt aftur til Sýrlands með börn sín [...]. Móðir hans hafi þvingað hann í [...] í Sýrlandi vegna kynhneigðar hans og hafi honum m.a. verið gert að taka inn geðlyf gegn [...] vegna hinna meintu ranghugmynda sem kynhneigð hans hafi átt að vera.

Kærandi hafi verið búsettur í Sýrlandi til 18 ára aldurs en flutt sjálfur til Venesúela þar sem hann hafi lokið framhaldsskólanámi á árunum [...]. Á þeim tíma hafi hann búið með frænku sinni og frænda í föðurætt sem hafi haft sömu afstöðu til kynhneigðar hans og foreldrar hans. Föðurfjölskylda kæranda kenni móður hans um andlát föður hans sem og um kynhneigð kæranda. Frændi kæranda hafi verið drykkfelldur og tvisvar gert tilraun til þess að [...]. Kærandi hafi flúið til Íslands í september 2022. Þá hafi hann sagt landið hættulegt vegna glæpamanna, fordóma vera ríkjandi og að arabíska fjölskylda hans yrði alltaf á eftir honum til að fela ófullkomleikann í fjölskyldunni, þ.e. hann sjálfan.

Kærandi kveður föður sinn hafa glímt við hjarta- og nýrnavandamál. Kærandi hafi lagt fram læknisvottorð þar sem fram komi að hann glími við kvíða og þunglyndi og sé í meðferð og eftirliti á göngudeild smitsjúkdóma vegna langvinns veirusjúkdóms og óútskýrðra verkja í kviðarholi. Þá sé hann líklega með áfallstreituröskun og hafi nýlega sögu um sjálfsvígstilraunir þar sem hann hafi tekið [...].

Í viðtali hjá Útlendingastofnun, dags. 13. október 2022, hafi kæranda verið tjáð af starfsmanni stofnunarinnar að hann hlyti vernd hér á landi þar sem hann uppfyllti öll skilyrði til þess. Þáverandi talsmaður kæranda hafi fallið frá því að skila inn greinargerð þar sem starfsmaður Útlendingastofnunar hafi beðið hann um það. Starfsmaðurinn hafi hins vegar nefnt að eina álitaefnið væri hvort kærandi hlyti vernd einnig sem sýrlenskur ríkisborgari. Í viðtali við kæranda hafi það verið rætt hvort hann hefði nægilega þekkingu á staðháttum í Sýrlandi og hafi kærandi lýst staðháttum munnlega og sýnt bæina í tölvu. Þá hafi kæranda verið tjáð að hann yrði mögulega kallaður í tungumála- og staðháttapróf til að sannreyna sýrlenskt ríkisfang hans. Talsmaður hafi þá óskað eftir skipunarbréfi sem hafi ekki gengið eftir. Hinn 9. desember 2022 hafi þáverandi talsmaður kæranda haft samband við starfsmann Útlendingastofnunar til þess að spyrja frekar út í málið og stöðu umsóknar kæranda. Honum hafi verið tjáð að kærandi hefði farið í tungumála- og staðháttapróf 8. nóvember 2022, en hann hefði ekki skilað inn ótilgreindum gögnum sem hann hefði ætlað að gera daginn eftir viðtal. Þá hafi hann verið upplýstur um að vinnureglum hafi verið breytt í millitíðinni og kærendur frá Venesúela hlytu ekki lengur vernd jafnóðum. Í því ljósi hafi talsmanni verið veittur frestur til að skila inn greinargerð en hafi samdægurs andmælt framangreindum vinnubrögðum.

Kærandi byggir á því að hin kærða ákvörðun sé haldin verulegum annmarka, einkum á grundvelli jafnræðisreglu, rannsóknarreglu og réttmætisreglu stjórnsýslu- og útlendingaréttar sem leiði til þess að fella verði ákvörðunina úr gildi. Til viðbótar sé trúverðugleikamat Útlendingastofnunar verulegum annmörkum háð sem og meðferð heimilda í ákvörðuninni allri. Kærandi fjallar um aðstæður í Venesúela en ljóst sé að spilling og einræðisstjórn hafi þrifist lengi í landinu, einnig fyrir tíma Maduro og forvera hans. Kærandi bendir á að aðstæður í Venesúela hafi ekki breyst stórvægilega á síðastliðnu ári og vísar til alþjóðlegra skýrslna máli sínu til stuðnings, m.a. skýrslna frá Amnesty International og Human Rights Watch fyrir árin 2022 og 2023. Í skýrslu HumVenezuela frá október 2022 komi fram að skortur á þeim nauðsynjum sem þurfi til að sinna grunnþörfum í samfélaginu hafi jafnvel orðið meiri í landinu en fyrir Covid-19 faraldurinn. Alvarlegur skortur á nauðsynjum sé samkvæmt skýrslunni meiri í Venesúela en gert hafi verið ráð fyrir og séu það einkum stjórnvöld sem standi í vegi fyrir því að félagasamtök geti veitt almenningi aðstoð. Þá hafi stjórnvöld ítrekað hunsað tilmæli og ráðleggingar til þess að bæta ástand mannréttindamála í landinu og hafi ekki sýnt vilja sinn í verki til þess að tryggja mannréttindi borgara í Venesúela. Kærandi gerir sérstakar athugasemdir við trúverðugleikamat og úrlausn 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga að því er varðar almenna umfjöllun um landaupplýsingar frá Venesúela og vísar til þess að um valkvæðar heimildir sé að ræða sem reifaðar séu einhliða og einangrað frá öðrum nýlegum skýrslum um aðstæður þar í landi. Með samanburði á heimildum verði ekki ráðið að mati kæranda að aðstæður hafi breyst frá mati kærunefndar útlendingamála í júlí árið 2022.

Kærandi vísar til þess að í hinni kærðu ákvörðun séu aðeins teknar til umfjöllunar aðstæður kæranda í Venesúela, sbr. 2. máls. 2. tölul. A-liðar 1. gr. Flóttamannasamningsins, en fyrir liggi að kærandi sé einnig sýrlenskur ríkisborgari og hafi nú lagt fram sýrlenskt vegabréf því til stuðnings. Kærandi telji í ljósi þess vafa sem skapast hafi á milli túlkunar kærunefndar og Útlendingastofnunar á aðstæðum í Venesúela að rétt hefði verið, m.t.t. rannsóknarreglu stjórnsýslu- og útlendingaréttar, vandaðra stjórnsýsluhátta og réttar kæranda á meðferð á máli fyrir tveimur stjórnsýslustigum, að taka bæði ríkin til skoðunar, enda hafi kærunefnd ekki talið að öryggisástand og almennar aðstæður í Venesúela hafi tekið framförum á undanförnum árum og úrskurðir nefndarinnar auk annarra landaupplýsinga hafi borið með sér raunhæfa ástæðu til þess að ætla að einstaklingar frá Venesúela eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð verði þau send aftur til heimaríkis, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi bendir á að fullt tilefni hafi verið til að leggja aðstæður í Sýrlandi jafnframt til grundvallar og taka mið af því að fjölskylda kæranda sé sýrlensk og líf hans hafi mótast af því, s.s. þegar komi að viðhorfum gegn [...].

Kærandi hafi lýst því að hafa orðið fyrir grófu kynferðisofbeldi og tilraunum til þess. Í hinni kærðu ákvörðun komi fram að með lagabreytingum árið 2021 hafi verið tekin upp ný refsiákvæði gegn kynbundnu ofbeldi, refsingar hafi verið þyngdar og stofnaðir hafi verið sérhæfðir dómstólar og saksóknaradeildir vegna kynbundins ofbeldis. Þá hafi verið stofnaðar skrifstofur sem ætlað sé að aðstoða þolendur kynbundins ofbeldis en jafnframt hafi landsnefnd verið sett á laggirnar sem samráðsvettvangur stjórnvalda og félagasamtaka. Um sé að ræða einu umfjöllun stofnunarinnar í trúverðugleikamati sem gefi til kynna að kæranda bjóðist einhver aðstoð vegna nauðgana sem hann hafi þurft að þola í Venesúela. Auk þess hafi kærandi lýst heimilisofbeldi sem hafi ekki hlotið sérstaka umfjöllun í hinni kærðu ákvörðun. Í hinni kærðu ákvörðun hafi það ekki verið dregið í efa að kærandi væri [...] og það lagt til grundvallar við úrlausn málsins. [...] sé ekki refsiverð í Venesúela en fordæmi Hæstaréttar landsins um bann við mismunun á grundvelli kynhneigðar sé sjaldan fylgt eftir í framkvæmd. Alþjóðlegar skýrslur sýni fram á alvarlega stöðu [...] í Venesúela, sbr. m.a. skýrsla EASO frá 2020. Kærandi telji að meta verði skort á opinberum gögnum um stöðu hinsegin fólks í Venesúela kæranda í hag en ekki öfugt. Þá bendir kærandi á skýrslu kanadísku flóttamannanefndarinnar þar sem fram komi að lögregla í Karakas hafi gerst sek um mismunun og glæpi gegn hinsegin fólki og að lögreglan rannsaki ekki glæpi gegn hinsegin fólki með fullnægjandi hætti.

Í ljósi framangreinds sé það mat kæranda að ekki sé ástæða til annars en að leggja til grundvallar frásögn hans. Jafnframt telji hann að unnt sé að leggja til grundvallar huglægan ótta hans um aðgerðarleysi yfirvalda. Kærandi hafi m.a. lýst nauðgunum og sálfræðilegum bælingarmeðferðum vegna kynhneigðar sinnar, auk grimmilegrar meðferðar í Sýrlandi þar sem fjölskylda hans hafi dvalið með honum. Hins vegar komi fram í hinni kærðu ákvörðun að kærandi hafi ekki upplifað áreiti eða ofbeldi af hálfu stjórnvalda eða fjölskyldu sinnar sem geti náð því alvarleikastigi að teljast ofsóknir, ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð sem venesúelsk stjórnvöld vilji ekki eða geti ekki veitt honum aðstoð eða vernd gegn. Með því að slá því föstu í trúverðugleikamati að áreiti og ofbeldi vegna kynhneigðar sem kærandi hafi lýst nái ekki því alvarleikastigi sem varði við 1. og 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga sé meirihluti af þeim persónubundna grundvelli sem kærandi byggir á við úrlausn á alþjóðlegri vernd útilokaður í framhaldi málsins. Í þessu tilliti sé byggt á því að kærandi hafi ekki sýnt fram á að hann hafi upplifað eða eigi á hættu að upplifa ofsóknir, ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð í heimaríki sínu af hálfu stjórnvalda eða annarra aðila og gengið út frá því að honum standi til boða vernd og aðstoð yfirvalda telji hann ástæðu til slíks. Telur kærandi að um misbeitingu á trúverðugleikamati sé að ræða sem varði við rannsóknarreglu stjórnsýslu- og útlendingaréttar og réttmætisreglu stjórnsýsluréttar.

Kærandi byggir á því að fyrri reynsla hans og yfirvofandi aðstæður í heimaríki samræmist hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga þar sem lífi og frelsi hans hafi verið ógnað vegna kynhneigðar. Þá verði að framkvæma heildarmat á einstaklingsgrundvelli í samræmi við málsatvik. Þær ofsóknir sem eigi við í máli kæranda samsvari því sem fram komi í a- til d-liðum 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga enda hafi kærandi orðið fyrir margþættu ofbeldi og upplifað aðgerðarleysi stjórnvalda, m.a. vegna kæru sem hann hafi lagt fram þegar hann hafi verið [...]. Þeir sem staðið hafi að ofsóknum kæranda séu aðallega fjölskyldumeðlimir hans, sbr. c-liður 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, en einnig ríkið, sbr. a-liður 4. mgr. 38. gr. laganna. Hvað varði ofsóknir í samræmi við 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga byggir kærandi á ástæðuríkum ótta sínum við ofsóknir í fyrsta lagi á grundvelli aðildar að þjóðfélagshópi, sbr. d-liður 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, sem [...] karlmaður. Að mati kæranda sé það fullvíst að hann muni ekki njóta verndar yfirvalda gagnvart ofsóknum í sinn garð vegna kynhneigðar og að ófullnægjandi aðstoð yfirvalda og réttarkerfisins myndi standa honum til boða. Því til viðbótar bendir kærandi á að samsafn athafna geti verið virt sem svo að það varði við ofsóknir, enda séu fjölmargir þættir í venesúelsku samfélagi sem leiði til ólögmætrar mismununar gegn honum vegna kynhneigðar sem hafi eða geti haft sömu eða sambærileg áhrif á hann sem einstakling og ofsóknir.

Kærandi byggir einnig á ástæðuríkum ótta við ofsóknir á grundvelli trúarbragða, sbr. b-liður 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, þar sem hann sé af sýrlenskum uppruna og felli sig ekki við trúarbrögð í umhverfi sínu. Þá sé kynhneigð hans ósamrýmanleg ríkjandi menningarlegum og trúarlegum viðhorfum. [...] sé refsiverð í Sýrlandi. Kærandi gerir athugasemdir við umfjöllun í ákvörðun Útlendingastofnunar þar sem fram komi að frásögn kæranda og gögn bendi ekki til sérstakrar hættu vegna kynhneigðar hans umfram mismunun sem almennt þekkist í landinu gagnvart [...] og teljist ekki til ofsókna. Kærandi vísar í því samhengi til skýrslu EASO frá árinu 2020 sem fjalli m.a. um takmarkaðan vilja og getu stjórnvalda til að veita hinsegin fólki vernd gegn glæpum. Með vísan til framangreinds telur kærandi að hann hafi sýnt fram á rökstuddan ótta við ofsóknir í heimaríki sínu á grundvelli kynhneigðar og beri því að veita honum vernd á grundvelli 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá liggi fyrir að kærandi hafi ekki og geti ekki fengið vernd yfirvalda í Venesúela enda séu yfirvöld sjálf valdur að ofsóknum með ýmsum hætti, sbr. a-liður 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.

Kærandi gerir athugasemdir við það sem fram kemur í ákvörðun Útlendingastofnunar að einhverjir af þeim sem taldir séu upp í 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga þurfi að vera taldir valda þeirri ómannúðlegu eða vanvirðandi meðferð sem fjallað sé um í 2. mgr. 37. gr. laganna. Gerendur séu ekki á meðal afmarkaðs hugtaksskilyrðis sem fram komi í texta 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga eða í 15. gr. tilskipunar nr. 2004/83/EB um flóttamenn. Þá vísar kærandi til þess að mat á 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga hafi hingað til ekki verið þáttur í úrlausn stofnunarinnar á 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Kærandi vísar til þess að dómar mannréttindadómstóls Evrópu sem Útlendingastofnun hafi vísað til í ákvörðun sinni komi ekki í veg fyrir veitingu viðbótarverndar í málum frá Venesúela. Nákvæmlega sömu dómafordæmi hafi ekki komið í veg fyrir veitingu viðbótarverndar í sambærilegum málum síðastliðin ár og telji kærandi spursmál hvers vegna inntak 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu ætti að breytast í túlkun stofnunarinnar eða nefndarinnar. Sá hluti viðbótarverndar sem snúi að 15. gr. c í tilskipun 2011/95/ESB hafi í framkvæmd verið metinn sjálfstætt frá 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Við túlkun á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu hafi Mannréttindadómstóllinn bent á að ef alvarleg mannúðarkrísa í landi stafi meðal annars af aðgerðum eða aðgerðarleysi stjórnvalda sem og annarra aðila sem stjórnvöld bregðist ekki við geti sú staða leitt til þess að endursending til þess ríkis teljist vera vanvirðandi meðferð sem brjóti gegn ákvæðum mannréttindasáttmálans, sbr. mál Sufi og Elmi gegn Bretlandi nr. 8319/07 og 1149/07 frá 28. nóvember 2011. Kærandi telur að dómaframkvæmd Mannréttindadómstólsins bendi til þess að ekki verði útilokað að ríki geti borið ábyrgð samkvæmt 3. gr. sáttmálans á meðferð einstaklinga sem væru algjörlega undir stuðning ríkisins komnir ef þeir mættu opinberu afskiptaleysi þegar þeir liðu alvarlegan skort sem væri andstæður mannlegri reisn. Telur kærandi að dómafordæmi hafi verið nýtt við úrlausn sambærilegra mála og hans og þegar litið sé til alvarleika á inntaki 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu geti aðstæður einstaklinga í Venesúela náð því marki að falla þar undir. Að lokum áréttar kærandi að þrátt fyrir samspil flókinna þátta beri stjórnvöld í Venesúela ábyrgð á stöðu mála þar.

Kærandi bendir á að persónubundnar aðstæður virðast ekki hafa legið til grundvallar við úrlausn á 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi hafi sjálfur borið því við að eiga yfir höfði sér ómannúðlega og vanvirðandi meðferð vegna kynhneigðar sem eigi sér stoð í heimildum um Venesúela. Kærandi byggir á því að á grundvelli heimilda og reynslu hans í heimaríki sem [...] maður nái dvöl hans því alvarleikastigi sem felist í 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Fjöldi heimilda bendi til þess að stjórnvöld standi að ofbeldisbrotum og ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð, þ.m.t. gegn [...] mönnum. [...] einstaklingar í Venesúela séu viðkvæmur samfélagshópur sem hafi orðið verr fyrir barðinu á efnahagsástandinu þar í landi. Þá hafi hrun heilbrigðiskerfisins orðið til þess að skortur á lyfjum og lækningum hafi sérstök áhrif á [...] sem hafi sérstök áhrif á kæranda. Hrun réttarkerfisins og skortur á lögregluvernd hafi eins sérstaka þýðingu fyrir kæranda sem áður hafi verið þolandi ofbeldis í landinu. Þá telur kærandi það annmarka að í ákvörðun Útlendingastofnunar hafi ekki verið fjallað um ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð vegna kynhneigðar kæranda í tengslum við 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, heldur látið duga að fjalla um þá málsástæðu í tengslum við 1. mgr. 37. gr. laganna og vísað til þess rökstuðnings.

Kærandi vísar til þess að í hinni kærðu ákvörðun komi fram að leiðbeiningar flóttamannastofnunar hafi takmarkað vægi. Kærandi bendir á að í 3. mgr. 23. gr. laga um útlendinga komi fram að við meðferð mála skuli íslensk stjórnvöld við framkvæmd ákvarðana eiga í samvinnu við flóttamannastofnun, m.a. um framkvæmd og túlkun flóttamannasamningsins og laga um útlendinga. Kærandi telji það vekja upp spurningar hvaða samvinna endurspeglast í því að gagnrýna, efast um réttmæti og fara þvert á leiðbeiningar stofnunarinnar líkt og gert sé í hinni kærðu ákvörðun.

Kærandi vísar til þess að ef fallist verði á að ástandið í Venesúela hafi snöggbatnað svo verulega frá því í júlí 2022 að það geti ekki lengur varðað við 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga sé samt sem áður ófyrirséð að um virka vernd sé að ræða í landinu. Aðstæður í Venesúela hafi verið erfiðar í um áratug og tæpt hálft ár í því samhengi sé afar lítið og sýni ekki raunverulega fram á bættar aðstæður til lengri tíma með þeim hætti að vernd verði talin virk í skilningi ákvæðisins. Í ljósi þess að yfirvöld í heimaríki kæranda séu meðal þeirra sem ábyrg séu fyrir þeirri alvarlegu stöðu sem þar ríki og heimildir beri með sér að ástandið sé sambærilegt í landinu hvað varðar stöðu [...] verði ekki talið raunhæft eða sanngjarnt að ætlast til þess að kærandi setjist annars staðar að í heimaríki sínu, sbr. 4. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Til þrautavara byggir kærandi á því að engar forsendur séu til að hnekkja ákvörðun Útlendingastofnunar um að veita kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 74. gr. laga um útlendinga. Þá vísar kærandi til þess að verði hann sendur til heimaríkis feli það í sér brot gegn grundvallarreglu þjóðaréttar um bann við endursendingu. Þá myndi slík ákvörðun brjóta í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, 6. og 7. gr. samnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna.

V.         Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Auðkenni

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærandi framvísað venesúelsku vegabréfi. Var það mat Útlendingastofnunar að kærandi hefði sannað með fullnægjandi hætti hver hann væri.

Við meðferð málsins hefur kærandi einnig greint frá því að vera ríkisborgari Sýrlands. Lagði Útlendingastofnun til grundvallar að kærandi væri venesúelskur og sýrlenskur ríkisborgari. Kærunefnd telur ekki tilefni til að draga framangreint í efa og leggur til grundvallar við úrlausn málsins að kærandi sé með ríkisfang bæði í Venesúela og Sýrlandi.

Þar sem kærandi er ríkisborgari Venesúela og eins og aðstæðum er háttað í máli þessu telur kærunefnd aðeins þörf á að fjalla um aðstæður kæranda í Venesúela, sbr. 2. mgr. A-liðar 1. gr. Flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna.

Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Venesúela, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • 2022 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 20. mars 2023);
  • 2021 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 12. apríl 2022);
  • Amnesty International Report 2022/23: Venezuela (Amnesty International, 27. mars 2023);
  • Annual Report 2020 – Chapter IV.B: Venezuela (Inter-American Commission on Human Rights, 2021);
  • Annual Report 2022 – Chapter IV.B: Venezuela (Inter-American Commission on Human Rights, 2023);
  • Bolivarian Republic of Venezuela interim country strategic plan 2023-2025 (World Food Programme, 1. febrúar 2023);
  • Country of Origin Information Report. Venezuela Country Focus (European Asylum Support Office, ágúst 2020);
  • Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (United Nations. Human Rights Council, 15. september 2020);
  • Election Observation Mission – Venezuela 2021 (European Union, 22. febrúar 2022);
  • Fostering Impunity: The Impact of the Failure of the Prosecutor of the International Court to Open an Investigation into the Possible Commission of Crimes against Humanity in Venezuela (Organization of American States, OAS, 2. desember 2020);
  • Freedom in the World 2022 – Venezuela (Freedom House, 28. febrúar 2022);
  • Freedom in the World 2023 – Venezuela (Freedom House, 10. mars 2023);
  • General Country of Origin Information Report. Venezuela 2020 (Netherlands. Ministry of Foreign Affairs, júní 2020);
  • Guidance Note on International Protection Considerations for Venezuelans – Update I (UNHCR, maí 2019);
  • Human Rights Violations in the Bolivarian Republic of Venezuela: A Downward Spiral with No End in Sight (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights, OHCHR, júní 2018);
  • Humanitarian Access overview (ACAPS, desember 2022);
  • Humanitære forhold (Landinfo, 2. mars 2023);
  • Independence of the justice system and access to justice in the Bolivarian Republic of Venezuela, including for violations of economic and social rights, and the situation of human rights in the Arco Minero del Orinoco region (United Nations High Commissioner for Human Rights, OHCHR, 29. september 2020);
  • Informe Annual de Violencia 2022 (Observatorio Venezolano de Violencia, 29. desember 2022);
  • Latest Asylum Trends (European Union Agency for Asylum, 17. maí 2023);
  • Outcomes of the investigation into allegations of possible violations of the human rights to life, liberty, and physical and moral Integrity in the Bolivarian Republic of Venezuela (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights, OHCHR, 17. september 2020);
  • Quarterly Report April – June 2023 – Venezuela (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);
  • Report of the General Secretariat of the Organization of American States and the Panel of Independent International Experts on the Possible Commission of Crimes Against Humanity in Venezuela. Second Edition (Organization of American States, OAS, mars 2021);
  • Report of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (Human Rights Council, 18. september 2023);
  • Rise of the Criminal Hybrid State in Venezuela (InSight Crime, júlí 2023);
  • Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights, OHCHR, 16. júní 2021);
  • Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (The United Nations High Commissioner for Human Rights, OHCHR, 4. júlí 2023);
  • Situation of Venezuelans who have returned and seek to return to their country in the context of COVID-19 (Organization of American States, OAS, september 2020);
  • UNHCR Venezuela Annual Report 2022 (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);
  • UNHCR Response – Venezuela, January – June 2023 (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);
  • Vefsíða Sameinuðu þjóðanna (http://news.un.org/en/story/2023/01/1132957 – sótt 20. júní 2023);
  • Venezuela: Availability of health care, including for persons with disabilities and older persons; treatment of persons with disabilities and older persons within the healthcare system (2021-January 2023) (Immigration and Refugee Board of Canada, 13. febrúar 2023);
  • Venezuela: Humanitarian Action, (OCHA, 30. nóvember 2022);
  • Venezuela: Humanitarian Response Plan 2022-2023 (OCHA, 7. september 2022);
  • Venezuela in 2022: Building solutions with communities affected by armed violence (International Committee of the Red Cross, 6. janúar 2023);
  • Venezuela Country Focus (European Asylum Support Office, EASO, ágúst 2020);
  • Venezuela Country Report 2022 (Bertelsmann Stiftung, 2022);
  • Venezuela’s Humanitarian Emergency (Human Rights Watch, 4. apríl 2019);
  • Venezuela: Joint Statement on Venezuela Negotiation in Mexico (The Diplomatic Service of the European Union, 26. nóvember 2022);
  • Venezuela: Los Colectivos (Landinfo, 1. október 2019);
  • Venezuela Organized Crime Observatory (InSightCrime, síðast uppfært 14. júní 2023);
  • Venezuela: Overview of U.S. Sanctions (Congressional Research Service, 30. nóvember 2022);
  • Venezuela: Overview of U.S Sanctions (Congressional Research Service, 8. ágúst 2023);
  • Venezuela: Political Crisis and U.S Policy (Congressional Research Service, 1. september 2023);
  • Venezuela: Progress Report March – April 2023 (OCHA, 31. maí 2023);
  • Venezuela: Sikkerhetssituasjonen for sivilbefolkningen (Landinfo, 14. apríl 2020);
  • Venezuela: Tidligere og nåværende protestaksjoner, og retursituasjonen for personer som deltok i de store demonstrasjonene i 2017-2019 (Landinfo, 30. maí 2023);
  • Venezuela: Ytringsfrihet og kritiske ytringer i sosiale medier (Landinfo, 28. júní 2023);
  • Venezuela situation (UNHCR, janúar 2023);
  • Venezuela Situation Fact Sheet (UNHCR, 8. mars 2023);
  • Venezuela: Treatment of citizens by the authorities based on whether or not they participate in anti-government protests, including whether some are more targeted than others and for what reasons; whether access to social security programs may be affected by political activities (2017-January 2021) (Immigration and Refugee Board of Canada, 3. febrúar 2021);
  • Venezuela: UN Experts warn of persisting attacks on civil society, media and trade union leaders (UNCHR, 22. mars 2023);
  • Venezuela: Utsatte grupper og reaksjoner fra myndighetene (Landinfo, 11. júní 2020);
  • Venezuela: Treatment of citizens by the authorities based on whether or not they participate in anti-government protests, including whether some are more targeted than others and for what reasons; whether access to social security programs may be affected by political activities (2017–January 2021) (Immigration and Refugee Board of Canada, 3. febrúar 2021);
  • The World Factbook – Venezuela (Central Intelligence Agency, síðast uppfært 29. ágúst 2023);
  • What’s Ahead for Venezuela’s Crisis (World Politics Review, 20. apríl 2023);
  • World Report 2022 – Venezuela (Human Rights Watch, 15. janúar 2022) og
  • World Report 2023 – Venezuela (Human Rights Watch, 12. janúar 2023).

Venesúela er stjórnarskrárbundið lýðveldi með rúmlega 30 milljónir íbúa. Í landinu aðhyllast um 96% íbúa kristna trú, þar af meirihlutinn rómversk-kaþólska trú. Hinn 15. nóvember 1945 gerðist Venesúela aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi ásamt alþjóðasamningi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1978. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um afnám allrar mismununar gegn konum árið 1983 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1991.

Í framangreindum skýrslum, þ. á m. skýrslum bandarísku utanríkisþjónustunnar frá 2022 og 2023, bandarísku leyniþjónustunnar frá 2023 og Human Rights Watch frá 2023, kemur fram að Venesúela sé fjölflokka lýðræðisríki að nafninu til. Nicolás Maduro, forseti landsins frá árinu 2013, hafi hins vegar styrkt völd sín jafnt og þétt og um leið veikt löggjafar-, framkvæmdar- og dómsvald landsins. Stjórnarkreppa hafi ríkt í Venesúela frá árinu 2019. Forsetatíð Nicolás Maduro hafi lokið 10. janúar 2019, en hann hafi neitað að afsala sér völdum og haldið því fram að hann hafi unnið sigur í forsetakosningum árið áður. Niðurstöður kosninganna, sem hafi sætt mikilli gagnrýni og hvorki talist óháðar né sanngjarnar, hafi verið ógiltar af venesúelska þinginu. Hinn 23. janúar 2019 hafi stjórnarandstaðan lýst Juan Guaido, forseta venesúelska þingsins, forseta til bráðabirgða. Guaido hafi haft fullt stjórnskipulegt umboð frá þinginu og yfir 50 ríki hafi viðurkennt lögmæti hans sem bráðabirgðaforseta, þ. á m. Bandaríkin og flest ríki innan Evrópusambandsins. Þrátt fyrir það hafi Maduro farið með stjórn allra ríkisstofnana landsins auk þess sem hann hafi notið stuðnings öryggissveita. Guaido hafi því ekki getað beitt valdheimildum sínum og aðeins haft yfirráð yfir nokkrum sendiráðum og eignum Venesúela erlendis. Samkvæmt skýrslu Evrópusambandsins frá árinu 2022 hefur stjórnarandstaðan sniðgengið þrennar kosningar í landinu frá árinu 2015 vegna skorts á lýðræðislegum skilyrðum en hafi árið 2021 verið boðið að sitja í kjörstjórn sveitastjórnarkosninga og hafi sendinefnd á vegum Evrópusambandsins verið boðið að fara með kosningaeftirlit þeirra. Stjórnarandstaðan hafi tekið þátt í kosningunum en framkvæmd þeirra hafi hins vegar verið ábótavant. Í nóvember 2022 hafi samningaviðræður milli stjórnarandstöðunnar og ríkistjórnar Maduro hafist að nýju en þær hafi legið niðri síðan í október 2021. Samningsaðilar hafi komist að samkomulagi um að bæta mannúðarástand í landinu með stofnun sjóðs á vegum Sameinuðu þjóðanna sem sótt gæti fjármagn í frystar eignir Venesúela erlendis. Í desember 2022 í kjölfar viðræðnanna hafi stjórnaraðstaðan dregið stuðning sinn við Guaido til baka og leyst upp bráðabirgðastjórn hans í landinu þar sem honum hafi mistekist að ná þeim yfirráðum sem stefnt hafi verið að. Markmið stjórnarandstöðunnar sé enn að koma Maduro frá völdum en hún telji Guaido ekki réttan fulltrúa sinn. Vonir standi til þess að þær viðræður sem hafi hafist í nóvember 2022 leiði til frjálsra lýðræðislegra kosninga árið 2024. Stjórnarandstaðan stefni að því að velja sinn fulltrúa í kosningunum haustið 2023.

Í skýrslu EASO frá 2020 kemur fram að fljótlega eftir að Maduro hafi orðið forseti árið 2013 hafi olíuverð farið hríðlækkandi. Olía hafi lengi verið helsta tekjulind Venesúela og hafi um helmingur af árlegum tekjum ríkissjóðs komið til vegna olíuvinnslu. Lækkun olíuverðs hafi, ásamt efnahagsstefnu stjórnvalda og íþyngjandi regluverki er snúi að atvinnulífinu, átt þátt í niðursveiflu hagkerfisins í Venesúela. Óðaverðbólga og kreppa hafi dregið verulega úr kaupmætti almennings í landinu og orsakað skort á matvælum, lyfjum og öðrum nauðsynjavörum. Þrátt fyrir að lágmarkslaun hafi verið hækkuð hafi meginþorri almennings ekki getað keypt nauðsynjavörur eða framfleytt sér án fjárhagsaðstoðar. Þá kemur fram að öll aðstoð sé veitt í gegnum föðurlandskerfið og föðurlandskortið (s. sistema Patria, Carnet de la Patria) en kortið sé forsenda þess að geta fengið opinbera aðstoð, m.a. matvælaaðstoð í formi svokallaðra CLAP matarpakka (s. Comité Local de Abastecimiento y Producción). Kerfið hafi verið notað til að fylgjast með íbúum og upp hafi komið tilvik þar sem einstaklingum hafi verið neitað um aðstoð vegna þess að þeir hafi verið taldir á móti ríkisstjórn landsins. Þannig hafi föðurlandskortið verið verkfæri til samfélagsstjórnunar í gegnum matvæla- og fjárhagsaðstoð. Í skýrslu Human Rights Watch frá árinu 2023 kemur fram að flestir íbúar Venesúela séu í þörf fyrir aðstoð vegna skorts á mat, vatni, heilbrigðisþjónustu og hreinlæti. Rúmlega sjö milljónir venesúelskra ríkisborgara hafi lagt á flótta eða séu á vergangi vegna ástandsins í landinu og venesúelska flóttamannakrísan sé talin eitt alvarlegasta vandamál nútímans og fólksflutningarnir þeir fjölmennustu í nútímasögu Suður-Ameríku.

Í skýrslu Landinfo frá mars 2023 kemur fram að árið 2021 hafi aukning orðið í olíuframleiðslu í landinu, en Maduro hafi slakað á þeim ströngu reglum sem gilt höfðu um gjaldeyrismál og gefið leyfi fyrir auknum viðskiptum í erlendri mynt. Í kjölfar þess hafi hagkerfið farið að vaxa að nýju eftir að hafa verið í frjálsu falli síðustu ár og talið sé að hagkerfið hafi styrkst um 15% árið 2022. Fátæktin sé þó enn mikil, sérstaklega hjá þeim sem ekki hafi aðgang að erlendum gjaldeyri. Þá kemur fram að efnahagsástand í landinu hafi farið batnandi síðan árið 2019 þrátt fyrir að enn sé langt í land. Í kjölfar afléttinga ýmissa innflutningshafta og lækkunar verðbólgu hafi framboð af matvælum og lyfjum aukist. Samt sem áður hafi fæstir efni á að nálgast slíkt sökum lágra launa og hækkandi matvöruverðs. Flestir sem yfirgefi landið geri það af efnahagslegum ástæðum. Ástandið í Karakas sé mun betra en á öðrum svæðum þar sem rafmagnsleysi hafi áhrif á aðgengi fólks að bæði rafmagni og rennandi vatni. Samkvæmt skýrslunni hafi um 50% heimila í Venesúela verið undir fátæktarmörkum árið 2022 samanborið við 65% árið 2021 og 87% árið 2017.

Í skýrslu Freedom House frá 2021 kemur fram að strangar hömlur hafi verið settar á grundvallarréttindi venesúelskra ríkisborgara, þ. á m. á tjáningar-, samkomu- og félagafrelsi. Stjórnarandstæðingar, blaðamenn, aðgerðarsinnar, mótmælendur og einstaklingar sem taldir séu andsnúnir ríkistjórninni hafi verið skotmörk yfirvalda og hafi m.a. þurft að sæta handahófskenndum rannsóknum og handtökum. Í skýrslu Freedom House frá 2023 kemur fram að yfirvöld í landinu hafi takmarkað borgaraleg réttindi og sótt til saka pólitíska andstæðinga sína án réttlátrar málsmeðferðar. Þrátt fyrir að efnahagur landsins hafi náð vexti á ný eftir margra ára samdrátt sé enn mannúðarkrísa í landinu sem drifin sé af pólitísku ójafnvægi. Í skýrslu Human Right Watch frá 2023 kemur fram að ríkisstjórn landsins hafi fangelsað pólitíska andstæðinga sína. Að minnsta kosti 114 pólitískir fangar hafi dvalið í meira en þrjú ár í gæsluvarðhaldi sem samræmist ekki hegningarlögum landsins. Öryggissveitir og vopnaðir hópar sem styðji ríkisstjórnina hafi ítrekað ráðist á mótmælendur með ofbeldisfullum árásum, barsmíðum og skotárásum. Dómskerfi landsins hafi hætt að starfa sem óháð ríkisvald árið 2004 og hafi dómsmálayfirvöld verið samsek venesúelskum yfirvöldum í misnotkun á kerfinu, t.a.m. með því að gefa út afturvirkar heimildir til handtöku og fyrirskipa gæsluvarðhöld á grundvelli ónægra sönnunargagna. Í samantekt rannsóknarnefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá 22. mars 2023 kemur m.a. fram að yfirvöld handtaki enn pólitíska andstæðinga sína, hindri mótmæli verkalýðsfélaga og loki fjölmiðlum. Varðhald og pyndingar af hálfu stjórnvalda hindri tjáningarfrelsi og réttinn til mótmæla. Handahófskennd gæsluvarðhöld af pólitískum ástæðum séu enn áhyggjuefni og séu að minnsta kosti 282 einstaklingar enn í haldi, þ. á m. óbreyttir borgarar og hermenn.

Í skýrslu EASO frá 2020 kemur fram að morðtíðni í Venesúela sé ein sú hæsta í Mið- og Suður-Ameríku. Frá 2018 til 2019 hafi morðum fækkað en það sé ekki til marks um að ofbeldi í landinu hafi farið minnkandi. Vopnahópum hafi tekist að viðhalda yfirráðasvæðum sínum og komið á fót eiginlegum smáríkjum (e. micro-states) innan Venesúela sem hafi gert það að verkum að dregið hafi úr átökum milli stríðandi fylkinga. Þá megi rekja fækkun morða til aukinnar fátæktar og flutnings fólks úr landi. Mannránum hafi einnig fækkað og megi rekja það til erfiðleika við greiðslu lausnargjalda vegna óðaverðbólgu. Á sama tíma hafi tíðni annarra glæpa aukist, s.s. fjárkúgun, fíkniefnasala og heimilisofbeldi. Venezuelan Observatory of Violence gefur árlega út skýrslu um glæpatíðni í landinu. Í skýrslu þeirra frá desember 2020 kemur fram að morðtíðni í landinu það ár hafi verið um 45,6 morð á hverja hundrað þúsund íbúa. Þá hafi orðið aukning í morðum af hálfu yfirvalda en árið 2020 hafi verið fyrsta árið, frá árinu 2016, þar sem skráð morð af hálfu lögreglu hafi verið fleiri en af hálfu annarra gerenda. Í skýrslu þeirra frá desember 2021 kemur fram að morðtíðni það ár hafi verið 40,9 morð á hverja hundrað þúsund íbúa og a.m.k. 6,3 morð hafi verið framin á hverjum degi af hálfu yfirvalda. Aukning hafi orðið á morðum sem skráð séu óupplýst og því óvíst um gerendur og þá hafi orðið aukning í óútskýrðum mannshvörfum, eða um 4,4 mannshvörf á dag árið 2021. Í skýrslu þeirra frá desember 2022 kemur fram að morðtíðni fari lækkandi en tíðni síðasta árs hafi verið um 40,4 morð á hverja hundrað þúsund íbúa.

Samkvæmt framangreindum skýrslum, m.a. skýrslu bandarísku leyniþjónustunnar (CIA) frá árinu 2023 og skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2022, heyra lögreglu- og öryggismál landsins m.a. undir alríkislögregluna, herlögregluna, svæðisbundin lögregluembætti og lögregluembætti sveitarfélaga. Um 45 þúsund lögreglumenn starfi hjá alríkislögreglunni en yfirvöld hafi gefið það út að stefnt sé að því að fjölga þeim í 100 þúsund árið 2024. Í fyrrnefndri skýrslu bandarísku utanríkisþjónustunnar kemur fram að stjórn yfirvalda yfir öryggissveitum landsins hafi minnkað undanfarin ár. Hin ólögmæta og sífellt óvinsælli ríkisstjórn Maduro hafi treyst á hersveitir-, leyniþjónustu og vopnahópa (Colectívos) til þess að veikja stöðu stjórnarandstæðinga og draga úr vilja almennings til mótmæla. Í skýrslu Landinfo frá 2019 kemur fram að Colectívos sé sameiginlegt heiti yfir vopnahópa sem starfi í Venesúela og styðji ríkisstjórnina. Colectívos, sem samanstandi af allt að 100 mismunandi vopnahópum, séu með viðveru um land allt. Óljóst sé að hve miklu leyti vopnahópunum sé stjórnað af yfirvöldum en Colectívos hafi verið þátttakendur í aðgerðum yfirvalda gegn mótmælendum og stjórnarandstæðingum ríkisstjórnar Maduro. Í niðurstöðuskýrslu óháðrar nefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna (e. Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela) frá 2020 er fjallað um ítarlega rannsókn á aðgerðum yfirvalda í Venesúela frá árinu 2014. Nefndin komst að þeirri niðurstöðu að yfirvöld í Venesúela og vopnahópar á þeirra vegum hafi framið svívirðilega glæpi, þ. á m. kerfisbundnar pyndingar og aftökur án dóms og laga, sem geti fallið undir skilgreiningu á glæpum gegn mannkyni (e. crimes against humanity). Meirihluti glæpanna hafi verið hluti af kerfisbundnu ofbeldi gegn almenningi í samræmi við eða til að framfylgja stefnu stjórnvalda, m.a. í því skyni að þagga niður, letja eða brjóta á bak aftur andstöðu tiltekinna einstaklinga við ríkisstjórn Maduro og að berjast gegn glæpum. Þá hafi háttsettir embættismenn og herforingjar haft vitneskju um glæpina og ekki gripið til aðgerða til að sporna gegn þeim. Samtök Ameríkuríkja (e. Organization of American States, OAS) hafa í skýrslum sínum frá 2020 og 2021 komist að sömu niðurstöðu. Í skýrslunum kemur m.a. fram að umfang og alvarleiki glæpa gegn mannkyni í Venesúela hafi aukist frá því að fyrri skýrsla samtakanna hafi verið gefin út árið 2018. Skráð tilvik aftaka án dóms og laga séu yfir 18 þúsund og fjöldi einstaklinga hafi þurft að sæta handahófskenndum handtökum og varðhöldum. Þvinguð mannshvörf hafi verið tíð og yfirvöld hafi beitt ýmsum aðferðum við pyndingar, s.s. kynferðislegu ofbeldi. Samkvæmt skýrslu Human Rights Watch frá 2023 gaf saksóknari alþjóðlega sakamáladómstólsins (International Criminal Court (ICC)) út yfirlýsingu í nóvember 2021 um þá ákvörðun sína að hefja rannsókn á ætluðum glæpum gegn mannkyni sem framdir hafi verið í Venesúela. Í mars 2022 hafi saksóknarinn fengið heimild til að opna skrifstofu sína í Karakas og samkvæmt skýrslu mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá júní 2022 og september 2023 hefur dregið verulega úr dauðsföllum í aðgerðum öryggissveita þó nefndin telji að slíkar aðgerðir hafi haldið áfram.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023 kemur fram að konur njóti sömu réttinda og karlar samkvæmt stjórnarskrá landsins. Konur og karlar séu lagalega jöfn í hjónabandi, lögin kveði á um jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði og vinnuveitendur megi ekki mismuna konum varðandi laun eða vinnu. Engu að síður sé ójöfnuður á vinnumarkaði viðvarandi og lögum ekki framfylgt. Í skýrslunni kemur einnig fram að dómsmálaráðherra Venesúela hafi sett á fót stofnun sem taki á móti kvörtunum vegna ofbeldis gegn konum og börnum. Ráðherra hafi sett saman teymi lögfræðinga, geðlækna og annarra sérfræðinga sem eingöngu hafi sinnt málum er tengjast morðum á konum, kynbundnu ofbeldi og öðrum glæpum gegn konum.  Nauðgun sé refsiverð í Venesúela og geti varðað fangelsi allt að 14 árum. Þá kveði lögin á um tuttugu til þrjátíu ára fangelsisrefsingu fyrir morð á konum og refsingu fyrir líkamlegt, kynferðislegt eða andlegt ofbeldi. Lögreglan í landinu sé þó treg við að grípa inn í og koma í veg fyrir ofbeldi í samböndum og sé ekki þjálfuð til að takast á við slík mál. Þrátt fyrir að lög í landinu kveði á um refsingar fyrir ofbeldi gegn konum sé lögunum sjaldan fylgt í raun.

Samkvæmt skýrslum mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna, innflytjenda- og flóttamannanefndar Kanada og Landinfo frá 2023 eru bæði opinberar og einkareknar heilbrigðisstofnanir í Venesúela en aðeins 3% íbúa Venesúela hafi tök á að nýta sér þjónustu einkarekinna heilbrigðisstofnana. Yfir 200 opinber sjúkrahús og fjöldi heilsugæslustöðva séu í landinu en þar hafi skort allar helstu nauðsynjar til að sinna sjúklingum síðustu ár. Í framangreindum skýrslum, þ. á m. skýrslum Human Rights Watch frá 2022 og 2019 og EASO frá 2020, kemur fram að frá árinu 2012 hafi heilbrigðisþjónusta í landinu farið versnandi. Innviðir heilbrigðiskerfisins séu veikburða og skortur sé á heilbrigðisvörum og lyfjum. Árið 2022 hafi stjórnvöld áfram stutt við aðgengi að heilbrigðisþjónustu og lyfjum á fátækustu svæðum landsins en aðbúnaði sé ábótavant og skortur sé á heilbrigðisstarfsfólki sem hafi flúið land í miklum mæli. Fjölda sjúkrahúsa hafi verið lokað undanfarin ár og afkastageta þeirra sjúkrahúsa sem enn séu starfrækt hafi verið takmörkuð, t.a.m. hafi mörg þeirra ekki haft reglulegan aðgang að rafmagni og vatni. Umfang vandans liggi ekki fyrir vegna vanrækslu yfirvalda við birtingu heilbrigðisupplýsinga. Þó liggi fyrir að barnadauði og útbreiðsla sjúkdóma sem hefði mátt koma í veg fyrir með bólusetningum, s.s. barnaveiki, malaríu og mislinga, hafi aukist verulega á undanförnum árum. Heilbrigðiskerfið í Venesúela hafi verið illa undirbúið fyrir Covid-19 faraldurinn og hafi einstaklingar sem greinst hafi með sjúkdóminn ekki fengið viðeigandi meðferð. Þá hafi læknar og annað heilbrigðisstarfsfólk sætt hótunum og jafnvel handtökum af hálfu yfirvalda hafi þau tjáð skoðanir sínar opinberlega á stöðu heilbrigðiskerfisins og aðgerðarleysi stjórnvalda í þeim málum. Í skýrslu Human Rights Watch frá árinu 2023 kemur fram að Venesúela standi enn frammi fyrir alvarlegri mannúðarkrísu þar sem milljónir hafi ekki aðgang að fullnægjandi heilbrigðisþjónustu og næringu. Í mars 2023 hafi rúmlega átta milljónir alvarlega veikra einstaklinga átt í erfiðleikum með að fá heilbrigðisþjónustu í Venesúela og meira en níu milljónir sem þurft hafi á lyfjum eða heilbrigðisþjónustu að halda hafi ekki haft efni á að nálgast slíkt. Aðgangur að drykkjarvatni og hreinlætisaðstöðu hafi dregist saman frá árinu 2021 til ársins 2022 sem m.a. hafi leitt til þess að rúmlega fjórar milljónir séu í mikilli þörf fyrir drykkjarvatn.

Í framangreindum skýrslum, m.a. skýrslu EASO, hollenska utanríkisráðuneytisins frá 2020 og skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 kemur fram að sambönd einstaklinga af sama kyni séu ekki refsiverð í Venesúela. Stjórnarskrá Venesúela leggi bann við mismunun á grundvelli kynhneigðar og kynvitundar. Þrátt fyrir það verði LGBTI+ einstaklingar fyrir mismunun, þ. á m. á atvinnu- og leigumarkaði sem og í mennta- og heilbrigðiskerfinu. Þeir hópar sem verði aðallega fyrir ofbeldi og mismunun séu trans- og intersex einstaklingar. LGBTI+ einstaklingar verði ekki fyrir kerfisbundnu ofbeldi af hálfu yfirvalda en lögreglumenn hafi meinað þeim um aðgang að opinberum stöðum og notfært sér lagalegt tómarúm til að áreita og beita slíka einstaklinga ofbeldi. Í skýrslu kanadíska flóttamanna- og innflytjendaráðsins frá 2021 kemur fram að LGBTI+ einstaklingar geti lagt fram kvartanir vegna mismununar og brota gegn þeim en ekkert kerfi hafi verið til staðar til að taka við kvörtunum og leysa úr þeim með fullnægjandi hætti. Þá veigri einstaklingar sem verði fyrir ofbeldi vegna kynhneigðar sinnar sér við því að leita sér aðstoðar vegna vantrausts í garð lögregluyfirvalda. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins kemur fram að í maí 2022 hafi verið sett á fót sérstök skrifstofa sem ætlað sé að rannsaka brot á réttindum LGBTI+ hópsins. Í fyrrnefndri skýrslu EASO kemur fram að hagsmunasamtök berjist fyrir réttindum LGBTI+ einstaklinga í Venesúela. Í skýrslu flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá 8. ágúst 2023 kemur fram að gefnar hafi verið út leiðbeiningar til að stuðla að því að LBGTI+ einstaklingar hljóti vernd og aðstoð í mannúðaraðgerðum. Leiðbeiningarnar feli í sér leiðsögn til mannúðarsamtaka, embættismanna, stofnana Sameinuðu þjóðanna og frjálsra félagasamtaka í landinu um hvernig veita eigi LBGTI+ einstaklingum viðeigandi þjónustu og stuðning án mismununar. Í ávarpi mannréttindastjóra Sameinuðu þjóðanna, Volker Türk, til mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna, dags. 5. júlí 2023, kemur fram að í mars 2023 hafi hæstiréttur Venesúela ógilt ákvæði í lögum landsins um herrétt (e. The Code of military justice) sem lagði refsingu við samkynja samböndum innan hersins. Þá hvatti Türk stjórnvöld í Venesúela til þess að vinna áfram að því að bæta réttindi LGBTI+ hópsins í landinu.

Í framangreindum skýrslum, m.a. skýrslu hollenska utanríkisráðuneytisins frá 2020, kemur fram að einstaklingar af arabískum uppruna í Venesúela séu um 1,6 milljón og eigi aðallega rætur sínar að rekja til Sýrlands og Líbanon. Þá kemur fram að heimildir bendi til þess að venesúelskir ríkisborgarar af arabískum uppruna fái ekki að neinu leyti öðruvísi meðferð en aðrir í samfélaginu og tilheyri öllum stéttum samfélagsins.

Frá árinu 2021 hefur hagkerfi landsins farið að vaxa að nýju og í skýrslu mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá september 2023 kemur fram að hagvöxtur hafi aukist um 17,3% árið 2022. Þrátt fyrir hagvöxt hafi önnur atvik og aðstæður áfram haft neikvæð áhrif á nauðsynlega almannaþjónustu, s.s. samgöngur, menntun og heilbrigðisþjónustu. Í framangreindri skýrslu Human Right Watch frá árinu 2023 kemur fram að nýkjörinn forseti Kólumbíu hafi tilkynnt að hann hygðist opna landamærin að Venesúela að nýju og hafi skipað sendiherra sem tekið hafi við embætti í Karakas 29. ágúst 2022. Í apríl 2022 hafi argentínsk yfirvöld tilkynnt áform sín um að endurnýja stjórnmálasamband við Venesúela. Í mars og júní 2022 hafi Bandaríkin sent opinberar sendinefndir til Venesúela í fyrsta sinn í mörg ár til samræðna vegna áhuga stjórnar landsins á að opna fyrir olíuviðskipti við Venesúela að nýju. Í nóvember 2022 hafi orðið vendipunktur í stjórnarfari Venesúela þegar ríkisstjórn Maduro og stjórnarandstaðan hafi undirritað samkomulag um að auka mannúðaraðstoð í landinu. Samkomulagið kveði á um úthlutun þriggja milljarða Bandaríkjadala til velferðarmála, m.a. til að tryggja betri heilbrigðisþjónustu, fæðuöryggi og rafmagn í landinu, en fram að þessum tíma hafi Maduro, forseti landsins, verið tregur við að þiggja mannúðaraðstoð þrátt fyrir þrýsting frá Bandaríkjunum og öðrum löndum. Þá hafi samningsaðilar samþykkt að halda viðræðum áfram um hin ýmsu mannréttindamál og ákvarða nákvæma tímasetningu kosninga í landinu árið 2024. Bandaríkin hafi í nóvember 2022 dregið úr viðskiptaþvingunum í kjölfar samningaviðræðna ríkistjórnar landsins og stjórnarandstöðunnar og hafi heimilað bandarísku fyrirtæki að hefja að nýju vinnslu á olíu frá Venesúela og innflutning á henni til Bandaríkjanna. Samkvæmt sameiginlegri yfirlýsingu Evrópusambandsins, Bandaríkjanna, Kanada og Bretlands 26. nóvember 2022 hyggjast ríkin endurskoða viðskiptaþvinganir sínar verði sýnt fram á lýðræðislegar umbætur í Venesúela. Samkvæmt frétt á heimasíðu Sameinuðu þjóðanna fór mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna, Volker Türk, í opinbera heimsókn til Venesúela í janúar 2023. Türk fundaði með Maduro forseta landsins sem lýsti opinberlega yfir vilja til að vinna að því að bæta réttarkerfi landsins. Türk hafi þá boðið fram stuðning og sérfræðiþekkingu til að fylgja því eftir. Türk hafi einnig hitt varaforseta landsins, háttsetta embættismenn, yfirmann dómstóla, stjórnarandstöðu og fleiri háttsetta aðila sem allir hafi viðurkennt þörfina á umbótum í landinu. Ítrekaði Türk þá tilmæli sín til aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna um að fresta eða aflétta ráðstöfunum sem grafi undan mannréttindum í landinu. Þá hafi Türk hvatt yfirvöld í Venesúela til að efla samstarf sitt við stofnanir Sameinuðu þjóðanna til að tryggja frjálsa, örugga og virðulega endurkomu þeirra sem kjósi að snúa aftur til heimaríkis. Í skýrslu Landinfo frá árinu 2023 kemur fram að frá árinu 2019 hafi Sameinuðu þjóðirnar aukið viðveru sína og mannúðaraðstoð í landinu. Þá hafi aðgengi ýmissa hjálparsamtaka að landinu aukist en aðstoðin komi aðallega frá Sameinuðu þjóðunum, Rauða krossinum og öðrum alþjóðlegum félagasamtökum. Í ávarpi mannréttindastjóra Sameinuðu þjóðanna, Volker Türk til mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna, dags. 5. júlí 2023, kemur fram að skráðum tilvikum drápa af hálfu öryggisstofnana, og tilkynningum um pyndingar og illa meðferð haldi áfram að fækka. Stjórnvöld hafi haldið áfram að saksækja og refsa embættismönnum sem gerst hafi sekir um pyndingar og illa meðferð. Þó þurfi stjórnvöld að halda áfram að bregðast við tilkynningum um slíka glæpi án undantekninga og af gagnsæi. Í skýrslu hinnar óháðu nefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna um stöðu mála í Venesúela, frá 18. september 2023, kemur fram að einhver árangur hafi náðst við að draga þá til ábyrgðar sem framið hafi þau brot sem nefndin hafi rannsakað. Þó telji nefndin ástæðu til að ætla að stjórnvöld hafi ekki gert nauðsynlegar breytingar á stofnunum og hafi jafnvel stuðlað að framgangi þeirra sem beri ábyrgð á ofbeldinu. Þá hafi árásum á borgaralegum og lýðræðislegum vettvangi fjölgað á ný. Sé það einkum vegna stefnu stjórnvalda er miði að því að þagga niður í stjórnarandstöðu og gagnrýni á forseta landsins og ríkisstjórn hans. Þrátt fyrir að nefndinni hafi borist færri tilkynningar um meint alvarleg mannréttindabrot síðasta ár en undanfarin ár, hafi hún skrásett fjölda slíkra brota gegn raunverulegum og ætluðum andstæðingum ríkisstjórnarinnar. Brotin hafi einkum beinst að ákveðnum meðlimum borgaralegs samfélags, þ. á m. verkalýðsleiðtogum, blaðamönnum og baráttufólki fyrir mannréttindum.

Ákvæði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 37. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki, verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.

Kærunefnd hefur við mat sitt á umsókn kæranda haft til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá hefur aðferðarfræði trúverðugleikamats kærunefndar tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Mat á trúverðugleika frásagnar kæranda er byggt á endurritum af viðtölum hans hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki kæranda.

Kærandi byggir umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hann sé [...], hann hafi orðið fyrir ofbeldi og tilraunum til nauðgunar af hálfu fjölskyldu sinnar í Venesúela. Þá byggir hann á því að þar séu almennt fordómar gagnvart [...]. Kærandi byggir jafnframt á því að hann hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir á grundvelli trúarbragða þar sem hann sé af sýrlenskum uppruna og felli sig ekki við trúarbrögð í umhverfi sínu.

Kærunefnd telur ekki ástæðu til að draga frásögn kæranda í efa og verður því lagt til grundvallar að kærandi sé [...] og hafi orðið fyrir ofbeldi af hálfu fjölskyldu sinnar.

Kærandi hefur ekki borið fyrir sig að hafa sætt ofsóknum eða að hann óttist ofsóknir af hálfu yfirvalda í heimaríki sem hafi eða gætu náð því alvarleikastigi sem 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga mælir fyrir um. Þá benda önnur gögn málsins ekki til þess að slíkar ofsóknir hafi átt sér stað eða að kærandi eigi þær á hættu.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að frændi hans hafi [...] í Venesúela, [...] og þá hafi foreldrar hans beitt hann ofbeldi þegar hann var barn. Þá kvað kærandi að maður hafi [...] honum í Sýrlandi og telur kærandi að sá maður [...]. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023 kveða lög í Venesúela á um refsingu gegn hvers konar líkamlegu, kynferðislegu og andlegu ofbeldi, m.a. sem framið sé inni á heimilum. Frásögn kæranda ber ekki með sér að hann hafi leitað aðstoðar yfirvalda í Venesúela vegna þess ofbeldis sem hann hafi orðið fyrir af hálfu frænda síns eða bekkjarfélaga en hann greindi frá því við meðferð málsins að hafa lagt fram kæru til lögreglu vegna ofbeldis foreldra sinna árið [...], lögreglan hafi skráð niður kæruna en ekki aðhafst frekar. Í nótum frá [...] er reifuð saga kæranda sem hann gaf þar í kjölfar innlagnar. Þar kemur fram að kærandi hafi verið beittur ofbeldi af hálfu foreldra sinna þegar hann hafi verið barn. Þegar hann hafi mætt í skóla hafi starfsfólk skólans tekið eftir áverkum á líkamana hans og hafi ofbeldið verið tilkynnt og rannsakað af yfirvöldum. Vegna rannsóknar og kæru yfirvalda hafi foreldrar kæranda ákveðið að flytja til Sýrlands til þess að vernda ímynd fjölskyldunnar. Af þessari frásögn er ljóst að yfirvöld hafi brugðist við framangreindu ofbeldi en málinu hafi ekki verið lokið þar sem að fjölskyldan hafi ekki lengur búið í Venesúela.

Þau gögn sem kærunefnd hefur yfirfarið bera með sér að [...] eigi á hættu að verða fyrir félagslegri mismunun í Venesúela en ekki sé um kerfisbundnar ofsóknir að ræða. Lög banni mismunun á þeim grundvelli auk þess sem starfandi séu í landinu ýmis frjáls félagasamtök sem berjist fyrir réttindum LGBTI+ einstaklinga. Þá bendi nýlegar aðgerðir stjórnvalda og nýlegur dómur hæstaréttar landsins til þess að stjórnvöld vinni að því að bæta stöðu þessara einstaklinga í landinu. Verður ekki talið að sú mismunun eða áreiti sem LGBTI+ einstaklingar kunni að eiga á hættu nái því alvarleikastigi að fela í sér ofsóknir eða ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. og 3. mgr. 38. gr. laganna. Þótt fallast megi á að skilvirkni lögregluyfirvalda og dómstóla í heimaríki kæranda sé að nokkru leyti ábótavant og spilling sé talsverð í dómskerfinu er það mat kærunefndar, með vísan til þeirra gagna sem nefndin hefur kynnt sér að yfirvöld í Venesúela geti almennt veitt vernd gegn ofbeldi, m.a. með því að ákæra eða refsa fyrir athafnir sem feli í sér ofsóknir, sbr. c-lið 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Þá verður ekki talið að þrátt fyrir mögulega erfiðleika sé kæranda ómögulegt að leita aðstoðar lögreglu í landinu sökum kynhneigðar sinnar.

Kærandi byggir jafnframt á því að hann hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir á grundvelli uppruna síns í Venesúela. Hann sé af sýrlenskum uppruna og felli sig ekki við trúarbrögð í umhverfi sínu enda sé kynhneigð hans ósamrýmanleg ríkjandi menningarlegum og trúarlegum viðhorfum innan samfélags Sýrlendinga í Venesúela. Í framangreindum skýrslum, m.a. skýrslu hollenska utanríkisráðuneytisins frá 2020, kemur fram að einstaklingar af arabískum uppruna í Venesúela séu um 1,6 milljón og eigi aðallega rætur sínar að rekja til Sýrlands og Líbanon. Þá kemur fram að heimildir bendi til þess að venesúelskir ríkisborgarar af arabískum uppruna fái ekki að neinu leyti öðruvísi meðferð en aðrir í samfélaginu og tilheyri þeir öllum stéttum samfélagsins. Það er því mat kærunefndar að aðstæður kæranda vegna uppruna hans séu ekki þess eðlis að þær eigi undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. mgr. 38. gr. laganna.

Með vísan til framangreinds er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki með rökstuddum hætti leitt líkur að því að hann hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. mgr. 38. gr. laganna.

Er því ljóst að kærandi uppfyllir ekki skilyrði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi.

Ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram þegar metið er hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008, 110 mgr., og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997, 40. mgr.).

Mannréttindadómstóll Evrópu hefur talið ómannlega meðferð vera m.a. þá sem beitt er að yfirlögðu ráði, í margar klukkustundir í senn og veldur annað hvort líkamlegu tjóni eða alvarlegum andlegum eða líkamlegum þjáningum, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Kudła gegn Póllandi (nr. 30210/96) frá 26. október 2000, 92. mgr., og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, (nr. 30696/09) frá 21. janúar 2011, 220. mgr. Þá hefur dómstóllinn talið meðferð vera vanvirðandi í skilningi 3. gr. mannréttindasáttmálans þegar meðferðin niðurlægir eða lítillækkar einstakling, sýnir skort á virðingu fyrir eða gerir lítið úr mannlegri reisn hans, eða skapar ótta, angist eða vanmátt, sem er til þess fallið að brjóta niður líkamlegt eða andlegt mótstöðuafl viðkomandi, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Pretty gegn Bretlandi (nr. 2346/02) frá 29. apríl 2002, 52. mgr., og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Dómurinn hefur talið að þó að líta verði til þess hvort meðferðin sé af ásetningi sé það ekki að öllu leyti útilokað að hún teljist brot á 3. gr. þó svo hafi ekki verið, sbr. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Peers gegn Grikklandi (nr. 28524/95) frá 19. apríl 2001, 74. mgr. Þá hefur dómurinn sagt að ef alvarleg mannúðarkrísa í landi stafi m.a. af aðgerðum eða aðgerðarleysi stjórnvalda sem og aðgerðum annarra aðila sem stjórnvöld bregðist ekki við geti slík staða leitt til þess að endursending til þess ríkis teljist vanvirðandi meðferð sem brjóti gegn 3. gr. mannréttindasáttmálans, sbr. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Sufi og Elmi gegn Bretlandi (nr. 8319/07 og 11449/07) frá 28. nóvember 2011, 282. og 283. mgr. Sé þá rétt að horfa til nálgunar dómsins í M.S.S gegn Belgíu og Grikklandi frekar en í N. gegn Bretlandi (nr. 2656/05) frá 27. maí 2008. Þannig skuli horft til möguleika umsækjanda á því að fullnægja grunnþörfum sínum, líka á að hann verði fyrir illri meðferð og hvort aðstæður hans muni batna innan skynsamlegs tímaramma.

Á árunum 2018 til 2020 veitti Útlendingastofnun umsækjendum um alþjóðlega vernd frá Venesúela viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga með vísan til almennra aðstæðna í heimaríki óháð einstaklingsbundnum aðstæðum hvers umsækjanda. Í maí og júní árið 2021 bárust kærunefnd kærur í fjórum málum þar sem Útlendingastofnun hafði synjað venesúelskum ríkisborgurum um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Í ákvörðunum Útlendingastofnunar var m.a. vísað til samantektarskýrslu EASO, dags. 4. júní 2020, um framkvæmd annarra Evrópuríkja í málum umsækjenda um alþjóðlega vernd frá Venesúela (e. Policy and Practice toward Venezuelan applicants for international protection). Þá var vísað til dóma Mannréttindadómstóls Evrópu og úrskurðar kærunefndar útlendingamála í Noregi (n. Stornemnd), dags. 12. júní 2020, þar sem meirihluti nefndarinnar komst að þeirri niðurstöðu að almennt öryggisástand í Venesúela væri ekki með þeim hætti að allir ríkisborgarar landsins ættu rétt á viðbótarvernd.

Með úrskurðum kærunefndar nr. 451/2021, 452/2021, 453/2021 og 454/2021, dags. 16. september 2021, voru framangreindar ákvarðanir Útlendingastofnunar felldar úr gildi. Í úrskurðum kærunefndar kom m.a. fram að samkvæmt heimildum hefði öryggisástand og almennar aðstæður í Venesúela ekki tekið framförum á undanförnum árum. Þvert á móti hefðu nýleg gögn, þ. á m. skýrsla OAS frá 2020, gefið til kynna að ástandið í landinu hefði farið versnandi og að umfang og alvarleiki glæpa gegn mannkyni hafi aukist. Var því ekki ráðið af upplýsingum um ástandið í Venesúela af hvaða ástæðum Útlendingastofnun hefði talið rétt að breyta fyrri framkvæmd sinni og synja kærendum um viðbótarvernd hér á landi.

Hinn 17. desember 2021 tilkynnti Útlendingastofnun um breytta stjórnsýsluframkvæmd við mat á þörf ríkisborgara Venesúela fyrir viðbótarvernd. Breytingin, sem tók gildi, 1. janúar 2022, fól það í sér að Útlendingastofnun lagði einstaklingsbundið mat á umsóknir ríkisborgara Venesúela um vernd hér á landi og hafði það í för með sér að einstaklingar fengu ekki skilyrðislaust viðbótarvernd á grundvelli almennra aðstæðna í heimaríki. Umsækjendur kærðu ákvarðanir Útlendingastofnunar sem byggðu á framangreindri framkvæmd til kærunefndar. Með úrskurði kærunefndar nr. 231/2022, dags. 18. júlí 2022, felldi nefndin ákvörðun Útlendingastofnunar um synjun á umsókn venesúelsks ríkisborgara um alþjóðlega vernd hér á landi, sbr. 1. og 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, úr gildi og veitti kæranda þess máls viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Komst nefndin að þeirri niðurstöðu að ástandið í Venesúela hefði ekki breyst til batnaðar frá þeirri framkvæmd sem mörkuð hafði verið af Útlendingastofnun frá árinu 2018. Var það niðurstaða nefndarinnar að þegar markvissar aðgerðir stjórnvalda til að bæla niður stjórnarandstöðu í landinu, alvarlegt efnahagsástand þar sem laun dygðu ekki til að uppfylla grunnþarfir almennings í landinu, skortur á hreinu drykkjarvatni, há glæpatíðni, skortur á lögregluvernd og algert hrun réttarkerfisins legðust saman gætu aðstæður einstaklinga við endursendingu til Venesúela náð því marki að rétt væri að veita þeim viðbótarvernd hér á landi. Hefði því ástandið í Venesúela ekki breyst til batnaðar síðan nefndin úrskurðaði í sambærilegum málum árið 2021 og því væru ekki forsendur til að komast að annarri niðurstöðu og þannig víkja frá þeirri framkvæmd. Mat nefndin það sem svo að aðstæður í Venesúela væru slíkar að raunhæf ástæða væri til þess að ætla að kærandi ætti á hættu að sæta þar meðferð sem næði því marki að teljast ómannúðleg eða vanvirðandi, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Var það mat nefndarinnar byggt á alþjóðlegum skýrslum og heildstæðu mati á aðstæðum kæranda í Venesúela og því ástandi sem þá ríkti. Þá tók nefndin það fram í niðurstöðu sinni að ljóst væri að aðgerðir og aðgerðarleysi stjórnvalda í Venesúela ykju enn fremur á alvarleika ástandsins þar í landi. Þá mætti ætla að vegna skoðana kæranda og andstöðu hans við stjórnvöld myndu stjórnvöld í Venesúela hvorki hafa vilja né getu til að veita honum þá aðstoð sem honum væri nauðsynleg til að vera öruggur og mæta grunnþörfum sínum.

Í nóvember 2022 ákvað Útlendingastofnun að stöðva tímabundið afgreiðslu mála er vörðuðu umsóknir einstaklinga frá Venesúela um alþjóðlega vernd hér á landi og beið stofnunin með að taka ákvarðanir í slíkum málum fram í mars 2023. Með ákvörðunum Útlendingastofnunar í málum kærenda, dags. 31. mars 2023, komst stofnunin að þeirri niðurstöðu að gögn um Venesúela bæru ekki með sér að almennar aðstæður í landinu næðu því alvarleikastigi að þær einar og sér ættu að leiða til þess að allir sem staddir væru í Venesúela ættu á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð vegna aðstæðna sem stjórnvöld eingöngu eða að mestu leyti hafi valdið. Þá taldi Útlendingastofnun gögn benda til þess að efnahags- og mannúðarástand hefði stöðugt batnað í landinu frá árinu 2019. Var það mat Útlendingastofnunar að þrátt fyrir aðgerðir stjórnvalda til að bæla niður andstöðu í landinu næðu þær aðgerðir ekki því alvarleikastigi að þær teldust einar og sér leiða til þess að allir sem staddir væru í Venesúela ættu á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Gögnin bæru með sér að aðgerðir og athafnir venesúelskra stjórnvalda sem talist gætu ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð hafi beinst að tilteknum einstaklingum sem álitnir væru andstæðingar stjórnvalda. Þá hafi Útlendingastofnun horft til upplýsinga frá mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna þess efnis að dauðsföllum vegna öryggisaðgerða stjórnvalda og andlátum vegna ofbeldis hefði fækkað verulega, auk þess sem alþjóðlegar skýrslur bæru með sér að hætta á dauðsföllum í öryggisaðgerðum stjórnvalda væri bundin við tengsl eða ætluð tengsl við glæpastarfsemi og að þær öryggisaðgerðir ættu sér aðallega stað í jaðarsettum hverfum þar sem fátækt væri mikil. Þá hafi gögn bent til þess að þrátt fyrir að skort hafi á skilvirkni í réttarvörslukerfi landsins þá veitti lögregla í landinu almenningi aðstoð. Þá bæru gögnin einnig með sér að aðstæður hvers og eins í Venesúela væru breytilegar og bæru ekki með sér að allir íbúar landsins liðu alvarlegan skort sem væri ósamrýmanlegur mannlegri reisn. Það var því mat Útlendingastofnunar í ljósi þess að ástandið í Venesúela færi batnandi ásamt því að stjórnvöld hafi sýnt vilja og getu til að bæta aðstæður einstaklinga þar í landi að aðstæður nú væru ekki þær sömu og voru uppi þegar úrskurður kærunefndar útlendingamála nr. 231/2022 var kveðinn upp í júlí árið 2022. Því þyrfti að meta hverja og eina umsókn út frá einstaklingsbundnum aðstæðum og fyrirliggjandi heimildum.

Af stöðu og hlutverki kærunefndar útlendingamála gagnvart Útlendingastofnun leiðir að úrskurðir nefndarinnar eru bindandi sem fordæmi fyrir stofnunina. Á grundvelli jafnræðisreglu 11. gr. stjórnsýslulaga eiga aðilar mála hjá Útlendingastofnun jafnframt rétt á því að mál þeirra fái sambærilega úrlausn og meðferð og sambærileg mál sem hafa fengið úrlausn kærunefndar útlendingamála, þ.m.t. að matskenndum lagaheimildum sé beitt með sama hætti við úrlausn sambærilegra mála. Til þess er að líta að flóttamannaréttur er kvikt réttarsvið að því leyti að matið á því hvort einstaklingar geti átt rétt á alþjóðlegri vernd vegna aðstæðna í heimaríki miðast ávallt við aðstæður í viðkomandi ríki á hverjum tíma og persónubundnum aðstæðum umsækjanda. Geta aðstæður í einstaka ríkjum breyst með skömmum fyrirvara og því mikilvægt að stjórnvöld sem taka ákvarðanir vegna umsókna um alþjóðlega vernd rannsaki vandlega aðstæður í heimaríki umsækjenda á þeim tíma sem ákvörðun er tekin. Hafa því fordæmi æðra setts stjórnvalds í slíkum málum, hvað aðstæður í viðkomandi ríki áhrærir, aðeins gildi svo fremi að aðstæðurnar hafi ekki breyst.

Í framangreindum gögnum kemur fram að yfirvöld í Venesúela og vopnahópar á þeirra vegum eru talin hafa, frá árinu 2014, framið glæpi sem geta fallið undir skilgreiningu á glæpum gegn mannkyni (e. crimes against humanity). Hafi meirihluti glæpanna verið hluti af kerfisbundnu ofbeldi gegn almenningi í samræmi við eða til að framfylgja stefnu stjórnvalda, m.a. í því skyni að þagga niður, letja eða brjóta á bak aftur andstöðu tiltekinna einstaklinga við ríkisstjórn Maduro og að berjast gegn glæpum. Að virtum gögnum um Venesúela, m.a. nýjum alþjóðlegum skýrslum, verður þó ekki ráðið að í landinu sé stríð eða útbreidd vopnuð átök. Öryggisástand er þó ótryggt og glæpa- og morðtíðni há. Aftur á móti hefur dregið úr átökum í landinu undanfarin ár og hafa þau að mestu verið staðbundin við svæði við landamæri Kólumbíu. Verður því, líkt og í úrskurði kærunefndar nr. 231/2022, ekki talið að aðstæður í landinu nái því marki að sérhver einstaklingur sem þangað fari eigi á hættu að láta lífið eða verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum.

Líkt og fram kemur í framangreindum landaupplýsingum hefur efnahagsástandið í Venesúela þokast í rétta átt að nýju frá árinu 2021 með afléttingum ýmissa viðskiptaþvingana, innflutningstakmarkana og verð- og gjaldeyrisstýringar. Alþjóðlegar skýrslur bera með sér að ákveðnar breytingar hafi orðið á stjórnarfari landsins síðasta árið. Með því samkomulagi sem ríkisstjórn Maduro og stjórnarandstaðan undirrituðu í nóvember 2022 virðist viðhorf samningsaðila hafa breyst og bendir það til þess að aðilar séu tilbúnir að vinna saman að bættum aðstæðum í landinu. Gefur það jafnframt tilefni til að ætla að aðstæður í landinu séu aðrar en þegar framangreindur úrskurður kærunefndar frá 18. júlí 2022 var kveðinn upp. Framangreindur samningur og samtal milli stjórnar og stjórnarandstöðu í landinu bera með sér að dregið hafi úr því pólitíska ójafnvægi sem áður ríkti þegar íbúar Venesúela og aðrar þjóðir skiptust í fylkingar með tveimur sitjandi forsetum landsins. Nú hafa stjórnvöld í Venesúela viðurkennt þörfina á mannúðaraðstoð og greint frá þeim vilja sínum að vinna að bættu réttarkerfi í landinu en ríkisstjórn Maduro hafði fram að því hafnað allri mannúðaraðstoð og lokað fyrir innflutning til landsins. Auk þess höfðu fjölmörg ríki heims sett á Venesúela viðskiptaþvinganir sem vonir standa til að létt verði á vinni stjórnvöld í Venesúela með alþjóðasamfélaginu að umbótum í landinu. Í niðurstöðu úrskurðar kærunefndar 18. júlí 2022 byggði nefndin m.a. á því að aðgerðir og aðgerðarleysi stjórnvalda í Venesúela hafi aukið enn fremur á alvarleika ástandsins í landinu, sbr. einnig dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Sufi og Elmi gegn Bretlandi (nr. 8319/07 og 11449/07) frá 28. nóvember 2011. Samkvæmt framangreindum skýrslum lítur út fyrir að forsetakosningar verði í landinu árið 2024, efnahagur landsins hefur þokast í rétta átt síðustu árin, olíuviðskipti hafa hafist að nýju og samningur verið gerður milli stjórnar og stjórnarandstöðu um aukna mannúðaraðstoð í landinu. Með hliðsjón af framangreindu og áður rakinnar dómaframkvæmdar Mannréttindadómstóls Evrópu er það mat kærunefndar að þrátt fyrir alvarlega stöðu í heimaríki kæranda þá nái almennar aðstæður í Venesúela ekki því alvarleikastigi að hver sem þar sé staddur teljist eiga á hættu dauðarefsingu eða ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Er það því mat kærunefndar að frekari persónulegir þættir þurfi að vera til staðar svo umsækjandi um alþjóðlega vernd frá Venesúela teljist eiga á hættu meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur umsjón með framkvæmd flóttamannasamningsins frá árinu 1951. Samkvæmt 35. gr. samningsins hafa samningsríki skuldbundið sig til þess að eiga í samvinnu við Flóttamannastofnun m.a. til að auðvelda stofnuninni eftirlitshlutverk sitt. Á grundvelli ákvæðisins gefur stofnunin út leiðbeiningar til aðildarríkja og stöðuskýrslur um aðstæður í einstaka ríkjum sem m.a. eigi að auðvelda stofnuninni að sinna áðurnefndri eftirlitsskyldu sinni og aðstoða samningsríki við túlkun og beitingu samningsins.

Árið 2019 gaf Flóttamannastofnun út leiðbeiningar vegna umsókna venesúelskra ríkisborgara um alþjóðlega vernd. Í leiðbeiningunum kemur fram að það sé mat stofnunarinnar að meirihluti venesúelskra ríkisborgara hafi ríka þörf fyrir vernd vegna ástandsins í Venesúela. Atburðir undanfarinna ára hafi raskað allsherjarreglu í landinu og sé líf borgara landsins, öryggi og frelsi því í hættu. Í ljósi ástandsins hafi Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hvatt aðildarríki til þess að beita ekki þvinguðum endursendingum gagnvart ríkisborgurum Venesúela. Hinn 19. apríl 2022 sendi kærunefnd fyrirspurn á Flóttamannastofnun og óskaði eftir upplýsingum um hvort framangreind afstaða þeirra hefði tekið breytingum. Í svari, dags. 22. apríl 2022, kom fram að engin breyting hefði orðið á afstöðu Flóttamannastofnunar til endursendinga til Venesúela. Leiðbeiningar stofnunarinnar frá árinu 2019 um að senda venesúelska ríkisborgara ekki aftur til Venesúela gegn þeirra vilja væru því enn í gildi. Kærunefnd sendi að nýju fyrirspurn til Flóttamannastofnunar, dags. 12. júlí 2023. Í svari Flóttamannastofnunar, dags. 26. júlí 2023, kom fram að stofnunin hafi ekki sett fram nýjar leiðbeiningar síðan árið 2019.

Leiðbeiningar Flóttamannastofnunar eru leiðbeinandi fyrir aðildarríkin en ekki bindandi að lögum og eru ekki fyrirvaralaust lagðar til grundvallar í hverju máli. Samkvæmt upplýsingum á vefsíðu Flóttamannastofnunar ber að líta til leiðbeininganna og stöðuskýrslnanna svo fremi sem ekki liggi fyrir nýjar upplýsingar um aðstæður í viðkomandi ríki og ber því að leggja mat á gildi þeirra hverju sinni. Kærunefnd hefur í framkvæmd almennt litið til leiðbeininga Flóttamannastofnunar varðandi endursendingar til annarra ríkja, sbr. 3. mgr. 23. gr. laga um útlendinga, enda liggi ekki fyrir gögn og upplýsingar sem gefi til kynna að aðstæður í viðkomandi ríki hafi breyst til batnaðar frá því að viðkomandi leiðbeiningar Flóttamannastofnunar voru gefnar út. Samkvæmt því sem að framan er rakið liggja nú fyrir alþjóðlegar skýrslur sem benda til þess að ástandið í Venesúela hafi breyst til hins betra frá því framangreindar leiðbeiningar stofnunarinnar voru settar fram árið 2019. Verður því við úrlausn máls þessa höfð hliðsjón af leiðbeiningum Flóttamannastofnunar en jafnframt byggt á nýjustu heimildum um aðstæður í Venesúela.

Heimabær kæranda, [...], er staðsettur í Lara fylki í norðvesturhluta Venesúela. Samkvæmt vefsíðu InSight Crime hefur hópurinn Colectivos farið með ákveðin völd í Lara fylki síðustu ár. Er um herskáan borgaralegan hóp að ræða sem hefur haft það hlutverk að bæla niður andstöðu við ríkisstjórn Maduro forseta. Þrátt fyrir að hópurinn fari með völd yfir innviðum fylkisins bera heimildir ekki með sér að vopnuð átök eða árásir á almenna borgara séu tíðar í heimabæ kæranda. Með vísan til framangreinds verður ekki talið að kærandi eigi á hættu að verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum verði hann sendur aftur til heimaríkis. Með vísan til fyrri umfjöllunar er það mat kærunefndar að þrátt fyrir að kærandi tilheyri minnihlutahópi í heimaríki sínu sem [...] einstaklingur og sé [...], leiði sérstakar aðstæður hans ekki til þess að hann eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu snúi hann til baka.

Í ljósi þess sem að framan er rakið og þeirra gagna sem liggja fyrir um heimaríki kæranda telur kærunefnd að aðstæður kæranda í Venesúela séu ekki með þeim hætti að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Uppfyllir kærandi þannig ekki skilyrði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi. 

Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærunefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. eða 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga á kærandi ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.

Kærandi krefst þess til þrautavara að ákvörðun Útlendingastofnunar þess efnis að veita honum dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða verði staðfest, m.a. með tilliti til kynhneigðar, heilsufars og erfiðs sambands kæranda við fjölskyldu sína.

Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi m.a. til erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu og þá aðstöðu að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að með erfiðum almennum aðstæðum sé vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki sem ekki séu staðbundin, svo sem vegna langvarandi stríðsátaka. Þá kemur fram að erfiðar almennar aðstæður taki að jafnaði ekki til neyðar af efnahagslegum rótum eða náttúruhamfara, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Eigi það m.a. við þegar í heimaríki viðkomandi ríki óðaverðbólga, atvinnuleysi í ríkinu sé mikið eða lágmarkslaun dugi ekki fyrir framfærslu.

Af framangreindum gögnum að ráða hafa yfirvöld í Venesúela og vopnahópar á þeirra vegum síðustu ár framið glæpi sem fallið geta undir skilgreiningu á glæpum gegn mannkyni (e. crimes against humanity) og hafi meirihluti glæpanna verið hluti af kerfisbundnu ofbeldi gegn almenningi í þeim tilgangi að efla stjórn ríkisins. Almennir borgarar hafi hvorki getað treyst á vernd lögregluyfirvalda né opinbera aðstoð. Þá benda heimildir til þess að sú alvarlega staða sem ríkt hefur í landinu hvað varðar efnahag þess og aðgang almennings að fæðu, hreinu vatni og heilbrigðisþjónustu hafi fyrst og fremst stafað af aðgerðum og aðgerðarleysi stjórnvalda en ekki af utanaðkomandi þáttum líkt og þurrkum eða öðrum náttúruhamförum. Af þeim gögnum og skýrslum sem kærunefnd hefur farið yfir má ráða að þrátt fyrir það ótrygga ástand sem ríkt hefur í landinu síðustu ár hafi ástandið undanfarna mánuði breyst til batnaðar m.a. með breyttu viðhorfi stjórnvalda til mannúðaraðstoðar og vilja til að vinna að bættu réttarkerfi landsins. Þá er hvorki stríð í landinu né útbreidd vopnuð átök. Með vísan til fyrri umfjöllunar um aðstæður kæranda, aðstæður í heimaríki hans og framangreindrar afstöðu kærunefndar hvað varðar leiðbeiningar Flóttamannastofnunar frá árinu 2019, er það niðurstaða kærunefndar að gögn málsins bendi ekki til þess að almennar aðstæður sem bíði kæranda í heimaríki nái því alvarleikastigi sem 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kveði á um.

Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 með síðari breytingum og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans. 

Samkvæmt gögnum málsins var kærandi greindur [...] í fyrstu læknisskoðun hér á landi og er í meðferð hérlendis af þeim sökum. Þá á kærandi sögu um kvíða, þunglyndi og sjálfsvígstilraunir. Í gögnum málsins er að finna fjölda heilsufarsgagna. Kemur þar m.a. fram í gögnum frá bráðadeild Landspítalans, dags. 11. mars 2023, að kærandi hafi komið á bráðadeild eftir að hafa [...] eftir sjálfskaða. Í nótu frá 13. mars 2023 kemur fram að kærandi hafi legið inni á [...] frá 11. – 13. mars 2023. Í gögnum frá bráðaþjónustu geðsviðs, dags. 16. mars 2023, kemur fram að kærandi hafi verið sendur í eftirlit á heilsugæslu og hafið viðtalsmeðferð hjá sálfræðingi. Samkvæmt gögnum frá smitsjúkdómalækni, dags. 17. mars 2023, hafi staðið til að senda kæranda í speglun á maga og vélinda vegna einkenna úr kviðarholi. 

Í skýrslu Human Rights Watch frá árinu 2023 kemur fram að milljónir einstaklinga í Venesúela hafi ekki aðgang að fullnægjandi heilbrigðisþjónustu og næringu þar í landi. Í mars 2023 hafi rúmlega átta milljónir alvarlega veikra einstaklinga átt í erfiðleikum með að fá heilbrigðisþjónustu í Venesúela og meira en níu milljónir sem þurft hafi á lyfjum eða heilbrigðisþjónustu að halda hafi ekki haft efni á að nálgast slíkt. Samkvæmt upplýsingum um heilbrigðisþjónustu í Venesúela var Venesúela eitt fremsta ríki heims í meðhöndlun og þróun lækninga og meðferða við [...] í kringum síðustu aldamót. Í valdatíð Maduro forseta hefur meðferðum við [...] í Venesúela þó hrakað verulega. Í skýrslu mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá 4. júlí 2023, kemur fram að veitt hafi verið gjaldfrjáls ráðgjöf á vegum heilbrigðisráðuneytis landsins og unnið að því í samstarfi við fulltrúa Sameinuðu þjóðanna í landinu að styrkja heildstæð viðbrögð við sjúkdómnum í landinu, m.a. með því að auka aðgengi að lyfjum en enn sé þó þörf á frekari aðgerðum.

Samkvæmt upplýsingum um [...] sem gefnar voru út af Landspítala Íslands árið 2014 fer ónæmiskerfi einstaklings sem smitast hefur af [...] í þrot átta til tíu árum eftir smit fái hann ekki viðeigandi meðferð. Fyrir liggur að kærandi greindist [...] hér á landi og hefur því ekki reynslu af meðferð í heimaríki eða hvort hægt sé að nálgast slíka meðferð eða lyf þar í landi.

Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga er jafnframt fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við heimkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli.

Kærandi hefur greint frá erfiðum félagslegum aðstæðum í heimaríki. Hann hafi orðið fyrir ofbeldi af hálfu foreldra sinna vegna kynhneigðar sinnar og [...] hafi hann kært foreldra sína fyrir ofbeldi. Í kjölfarið hafi fjölskyldan flutt til Sýrlands þar sem foreldrar hans hafi [...]. Faðir kæranda hafi látist á [...] aldursári kæranda og móðir hans og systir búi í Sýrlandi. Kærandi hafi flutt aftur til Venesúela 18 ára gamall til að stunda þar nám. Hann hafi dvalið hjá föðurfjölskyldu sinni í Venesúela og frændi hans hafi [...] og hafi samband þeirra verið erfitt. Kærandi sé hræddur við fjölskyldu sína í Venesúela sem sé afar fordómafull í garð kynhneigðar kæranda.

Samkvæmt framansögðu hefur kærandi lýst margvíslegu ofbeldi sem hann hafi orðið fyrir í heimaríki og ekki er ástæða til annars en að leggja þá frásögn hans til grundvallar. Þá liggja fyrir gögn sem sýna fram á [...] hans. Þótt kærandi hafi ekki lagt fram gögn sem styðja við frásögn hans af áreiti í heimaríki telur kærunefnd að upplýsingar um heimaríki kæranda bendi til þess að kærandi muni eiga á hættu mismunun sökum kynhneigðar sinnar auk þess sem staða hans sé verri en annarra í sömu stöðu þar sem hann njóti ekki stuðnings fjölskyldu sinnar. Þá sé staða hans sérstaklega erfið þar sem hann glími við [...] og erfitt geti verið að nálgast lyf og meðferð við því í heimaríki hans.

Þegar einstaklingsbundnar aðstæður kæranda og upplýsingar um heimaríki hans eru virtar í heild er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ríka þörf á vernd vegna heilsufars og erfiðra félagslegra aðstæðna hans í heimaríki.

Að öllu framangreindu virtu er það niðurstaða kærunefndar að kærandi uppfylli skilyrði fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að veita kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.


 

Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

 

Þorsteinn Gunnarsson

 

 

 

Bjarnveig Eiríksdóttir                                                     Gunnar Páll Baldvinsson

 

 

 

Sandra Hlíf Ocares                                                                         Sindri M. Stephensen

 

 

 

Valgerður María Sigurðardóttir                                                                 Þorbjörg I. Jónsdóttir

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum