Hoppa yfir valmynd
26. júní 2019 Innviðaráðuneytið

Fjarheilbrigðisþjónusta í dreifbýli

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra boðar til fundar um fjarheilbrigðisþjónustu í dreifbýli miðvikudaginn 26. júní nk. í Norræna húsinu. Fundurinn er haldinn í tilefni af formennsku Íslands í Norrænu ráðherranefndinni og samhliða reglubundnum fundi Norrænu ráðherranefndarinnar um byggðaþróun. Á fundinum verða kynnt sænska formennskuverkefnið „Healthcare and care through distance spanning solutions“ og íslenskt verkefni á sviði fjarheilbrigðisþjónustu sem er ein af aðgerðum byggðaáætlunar 2018-2024.

Með innleiðingu fjarheilbrigðisþjónustu er leitast við að jafna aðgengi almennings um land allt að almennri og sérhæfðri heilbrigðisþjónustu. Jafnframt er rafræn miðlun heilbrigðisþjónustu nýtt til að auka aðgengi að sérfræðiþekkingu og þar með gagnkvæmri faglegri ráðgjöf, samráði og samstarfi.

Fundurinn fer fram á ensku og hefst kl. 14. Aðgangur er ókeypis og öllum opinn á meðan húsrúm leyfir. Fundinum verður streymt í beinni útsendingu á vef Stjórnarráðsins.

Dagskrá:

  • Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra opnar fundinn.
  • Niclas Forsling, verkefnastjóri hjá Miðstöð fjarheilbrigðisþjónustu (Centre for Rural Medicine) í sveitarfélaginu Storuman í Norður-Svíþjóð.
    „Healthcare and care through distance spanning solutions – upgrading rural regions into an innovation area.“
  • Sigríður Jakobínudóttir, sérfræðingur í heilbrigðisráðuneytinu og fulltrúi í stýrinefnd samnorræna verkefnisins Vård och omsorg på distans (VOPD). 
    „Plans for progress in Remote Health Care Services in Iceland.“
  • Sandra Brá Jóhannsdóttir, sveitarstjóri Skaftárhrepps og Auðbjörg B. Bjarnadóttir, hjúkrunarstjóri og ljósmóðir.
    „Pilot project in telemedicine in Klaustur.“
  • Fundarstjóri er Ragnhildur Hjaltadóttir ráðuneytisstjóri.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum