Hoppa yfir valmynd
26. apríl 2019 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 190/2019 - Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 26. apríl 2019 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 190/2019

í stjórnsýslumálum nr. KNU19030019 og KNU19030044

Kæra […]

á ákvörðunum

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 18. mars 2019 kærði einstaklingur er kveðst heita […], vera fæddur […] og vera ríkisborgari […] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 26. febrúar 2019, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa honum frá landinu. Þá framsendi Útlendingastofnun, þann 11. mars 2019, kærunefnd beiðni kæranda um endurupptöku á úrskurði kærunefndar nr. 367/2018, sbr. 2. mgr. 7. gr. laga um útlendinga.

Kærandi krefst þess aðallega að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að lagt verði fyrir Útlendingastofnun að taka umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Til vara krefst kærandi þess að mál hans sem lauk með úrskurði kærunefndar nr. 367/2018, dags. 5. september 2018, verði endurupptekið, sbr. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, þannig að umsókn hans verði tekin til efnislegrar meðferðar hérlendis í samræmi við 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga þar sem umsókn hans var til meðferðar hjá stjórnvöldum í meira en 12 mánuði.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi í fyrsta sinn þann 22. september 2017. Þann 11. júní 2018 tók Útlendingastofnun ákvörðun um að umsókn kæranda um alþjóðlega vernd yrði ekki tekin til efnismeðferðar hér á landi og að hann skyldi fluttur til Grikklands. Þann 5. september 2018 staðfesti kærunefnd útlendingamála þá ákvörðun Útlendingastofnunar. Samkvæmt gögnum málsins fór kærandi frá Íslandi til Grikklands þann 20. september 2018. Kærandi lagði öðru sinni fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 4. febrúar 2019. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun þann 11. febrúar 2019 ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað þann 26. febrúar 2019 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 5. mars 2019 og kærði kærandi ákvörðunina þann 18. mars 2019 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 28. mars 2019 ásamt fylgigögnum. Frekari gögn bárust frá kæranda þann 26. apríl 2019.

Þann 11. mars 2019 barst kærunefnd jafnframt erindi frá Útlendingastofnun þar sem stofnunin framsendi kærunefnd beiðni kæranda um endurupptöku á úrskurði kærunefndar útlendingamála nr. 367/2018, sem kærandi hafði sett fram í greinargerð sinni til stofnunarinnar. Er um að ræða sömu kröfu og fram kemur í varakröfu kæranda hér að framan. Í ljósi framangreindra atvika verður leyst úr öllum kröfum kæranda í þessum úrskurði.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kom fram að kæranda hefði verið veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi. Umsókn hans um alþjóðlega vernd yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Grikklands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá hefði kærandi ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar aðstæður væru fyrir hendi þannig að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hann fluttur til Grikklands.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram lýsing á aðstæðum hans í Grikklandi eftir að hann hafi verið fluttur þangað þann 20. september 2018. Kærandi kveður að við endurkomu til Grikklands hafi hann frá fyrsta degi sætt ofbeldi af hálfu lögreglunnar. Þá hafi dvalarleyfisskírteini hans verið útrunnið og dögum hans verið varið í að reyna að endurnýja það. Beiðni kæranda um endurnýjun á dvalarleyfi hafi verið samþykkt þann 19. desember 2018 og þá hafi hann fengið tilkynningu þann 17. janúar 2019 um að nýtt skírteini væri tilbúið. Kærandi kveði að hann hafi verið áreittur bæði af almenningi og lögreglu en að eini glæpur hans hafi verið að leita að stað til að sofa á næturnar. Þá kveði kærandi að í Grikklandi sé enga vinnu að fá og eina leiðin til að framfleyta sér þar í landi sé að gerast fíkniefnasali eða að drepa fólk. Kveði kærandi að aðalástæða þess að hann hafi sótt um alþjóðlega vernd hér á landi í annað sinn sé að honum hafi verið hótað […] og hann telji að líf sitt í hættu verði hann endursendur til Grikklands. Kærandi skammist sín fyrir að snúa aftur til Íslands. Hann sé ólæs, ekki vel greindur auk þess sem hann sé með þörf fyrir sálfræði- og læknisþjónustu. Kveði kærandi að hann upplifi sig í öruggu umhverfi hér á landi og hafi náð miklum framförum í bataferli sínu vegna andlegra veikinda.

Kærandi byggir aðalkröfu sína m.a. á því að sú málsmeðferð sem umsókn hans hafi fengið hjá Útlendingastofnun hafi ekki verið í samræmi við malsmeðferðarreglur 10. og 11. gr. stjórnsýslulaga. Í fyrsta lagi byggir kærandi á því að ranglega hafi verið komist að þeirri niðurstöðu í hinni kærðu ákvörðun að hann sé ekki einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Ljóst sé að kærandi eigi við alvarlega andlega vanheilsu að stríða og að rof á sálfræðimeðferð hans hér á landi vegna endursendingar til Grikklands hafi haft mikil áhrif á bata hans. Þá sé kærandi einnig haldinn bakverkjum. Kærandi telji að ómögulegt hafi verið fyrir Útlendingastofnun að meta heilsufar hans enda hafi stofnunin staðið í vegi fyrir að heildstætt mat færi fram t.d. með sálfræðimati. Þá byggi kærandi á því að beiðni hans um sálfræðimat hafi ekki verið afgreidd í samræmi við 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga. Beiðnin hafi verið ítrekuð við stofnunina oftar en einu einni og honum tjáð að hann fengi tíma þann 15. apríl 2019 þegar ljóst hafi verið að ákvörðun í máli hans hafi verið birt honum 5. mars 2019. Að þessu leyti hafi Útlendingastofnun brotið gróflega og vísvitandi gegn rannsóknarreglu stjórnsýslulaga og beri kærunefnd að fella mat stofnunarinnar um að kærandi falli ekki undir 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga úr gildi. Þá kveður kærandi að mál hans hafi ekki hlotið sambærilega meðferð og önnur sambærileg mál, sbr. 11. gr. stjórnsýslulaga. Nægilegar heilsufarsupplýsingar hafi ekki legið fyrir við mat á því hvort hann teldist einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga og vísar í því sambandi til úrskurða kærunefndar nr. 316/2017 og 410/2017. Kærandi telji ljóst að mál hans hafi ekki fengið sambærilegt mat í skilningi 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga þegar Útlendingastofnun hafi gert ráð fyrir að heilsufarsgögn kæmu eftir ákvörðunardag. Telji kærandi að slík málsmeðferð hafi ekki verið í samræmi við það sem gerist í sambærilegum málum og feli í sér brot á jafnræðisreglu.

Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að umsókn hans um alþjóðlega vernd verði tekin til efnismeðferðar hérlendis í samræmi við 2. mgr. 36. gr. og 42. gr., sbr. 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Telji kærandi að endursending hans til Grikklands muni leiða til brots gegn 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga þar sem hann muni verða fyrir pyndingum og ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Í þessu sambandi vísar kærandi til dóma Mannréttindadómstóls Evrópu. Má þar m.a. nefna mál Khalifia o.fl. gegn Ítalíu (nr. 16483/12), mál H.A. o.fl. gegn Grikklandi (nr. 19951/16) og mál S.D. gegn Grikklandi (nr. 53541/07). Kærandi kveði að við endurkomuna til Grikklands, á meðan hann hafi verið í haldi lögreglunnar, hafi hann orðið fyrir ofbeldi af hálfu hennar og ekki fengið að borða né drekka vatn. Opinber gögn styðji frásögn hans að þessu leyti og telur kærandi að hann muni verða fyrir ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð í skilningi 42. gr. laga um útlendinga. Þá vísi kærandi einnig til dóms Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) í tengslum við efnahagsstöðu einstaklinga og dóm Tarakhel gegn Sviss (nr. 29217/2012) sem gefi til kynna að þrátt fyrir að aðildarríki beri almennt ekki ábyrgð á að tryggja aðstoð fyrir einstaklinga sem njóti alþjóðlegrar verndar, geti það samt sem áður gerst brotlegt gegn 3. gr. mannréttindasáttamála Evrópu þegar einstaklingur er í þeirri stöðu að hann sé háður aðstoð ríkisins til nauðsynja. Sökum alvarlegra andlegra og líkamlegra veikinda sé kærandi háður aðstoð frá grískum stjórnvöldum en án slíkrar aðstoðar mun hann ekki komast hjá því að dvelja við ómannúðlegar aðstæður.

Þá byggir kærandi aðalkröfu sína á því að sérstakar ástæður í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og 32. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 mæli með því að mál hans skuli tekið til efnismeðferðar hér á landi. Kærandi kveði að ástandið í Grikklandi fyrir einstaklinga með alþjóðlega vernd sé mjög slæmt. Þrátt fyrir að handhafar viðbótarverndar hafi, samkvæmt lögum, sama rétt til heilbrigðisþjónustu, húsnæðis, atvinnu og matar og grískir ríkisborgarar þá séu lagaleg réttindi þeirra í engu samræmi við raunveruleikann og vísar kærandi til skýrslna mannréttindasamtaka máli sínu til stuðnings. Þá sé mismunun gagnvart fólki á grundvelli þjóðernis mikið vandamál sem komi í veg fyrir að einstaklingar með viðbótarvernd njóti mikilvægrar þjónustu og hafi aðgang að atvinnumarkaði. Telur kærandi að hann muni eiga erfitt uppdráttar í skilningi 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Kærandi bendi á að kærunefnd hafi áður, við mat á því hvort einstaklingur muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki, m.a. litið framhjá lagalegum réttindum einstaklinga með alþjóðlega vernd og tekið tillit til þeirra hindrana sem standi honum í vegi við aðgengi að þeim réttindum. Vísar kærandi í því sambandi til úrskurðar kærunefndar nr. 387/2018 þar sem felld hafi verið úr gildi ákvörðun Útlendingastofnunar um synjun á efnismeðferð einstaklings og endursendingar hans til Ungverjalands á grundvelli sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Verði ekki fallist á framangreint telur kærandi að ákvæði reglugerðar um útlendinga komi ekki til skoðunar í máli hans. Kærandi byggi þessa afstöðu á því að gildissvið reglugerðarinnar nái ekki til einstaklinga með mál sem falli ekki undir Dyflinnarreglugerðina. Í því sambandi vísi kærandi til synjunar þýskra yfirvalda á beiðni Útlendingastofnunar um endurviðtöku, dags. 29. september 2017, en þar komi fram að kærandi sé handhafi viðbótarverndar í Grikklandi. Í ljósi þessa byggi kærandi á því að við mat á 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga beri að líta til annarra lögskýringargagna t.d. vilja löggjafans sem endurspeglast í athugasemdum með ákvæðinu í frumvarpi því sem varð að lögunum.

Kröfu sína um endurupptöku á úrskurði kærunefndar nr. 367/2018 byggir kærandi á 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga. Kærandi byggi á því að íslensk stjórnvöld hafi hvorki framkvæmt fullnægjandi mat á aðstæðum hans né byggt á réttum upplýsingum þegar komist hafi verið að þeirri niðurstöðu að mál hans skyldi ekki tekið til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Ljóst sé að um íþyngjandi ákvörðun hafi verið að ræða í máli kæranda og telji hann að hún hafi byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik. Kærandi bendi í fyrsta lagi á að hann hafi sýnt fram á að við endurkomu hans til Grikklands muni hans bíða ómannúðlegar aðstæður. Í öðru lagi vísi kærandi til þess að hann þjáist af alvarlegum veikindum sem ekki hafi verið tekið tillit til. Í þriðja lagi byggi kærandi á því að endursending hans til Grikklands hafi verið ólögmæt með vísan til 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Mál hans hafi sætt allt annarri meðferð en sambærileg mál í skilningi 11. gr. stjórnsýslulaga. Kærandi bendi á að hann hafi verið endursendur til Grikklands eftir 11 mánaða og 29 daga dvöl á Íslandi. Kveði kærandi að gögn málsins beri með sér að úrskurður kærunefndar vegna beiðni kæranda um frestun réttaráhrifa hafi verið kveðinn upp þann 19. september 2018 og honum birt niðurstaðan sama dag. Kærandi telji að slík meðferð sé í engu samræmi við framkvæmd birtingar úrskurða kærunefndar vegna frestunar á réttaráhrifum. Það hafi verið einbeittur vilji stjórnvalda hér á landi að koma í veg fyrir að hann nyti réttarverndar í samræmi við 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og 11. gr. stjórnsýslulaga og verði það að teljast ámælisverð framkoma. Af öllu framangreindu röktu hafi fyrri ákvörðun grundvallast á röngum og ófullnægjandi upplýsingum í skilningi 1. tölul. 24. gr. stjórnsýslulaga.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málsins var kæranda veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi og hafði gilt dvalarleyfi þar í landi til 17. júlí 2018. Í viðtali kæranda hjá Útlendingastofnun kom fram að beiðni hans um endurnýjun á dvalarleyfi hans í Grikklandi hafi verið samþykkt þann 19. desember 2018. Samkvæmt samskiptum kærunefndar við grísk stjórnvöld vegna fyrri umsóknar kæranda og frásögn kæranda í viðtali hjá Útlendingastofnun 11. febrúar sl. er ljóst að kærandi er handhafi alþjóðlegrar verndar í Grikklandi og er nú með gilt dvalarleyfi þar í landi. Að mati kærunefndar felur sú vernd sem kærandi nýtur í Grikklandi í sér virka alþjóðlega vernd í skilningi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi […] einstæður karlmaður […]. Líkt og áður hefur komið fram hefur kærandi áður sótt um alþjóðlega vernd hér á landi, sbr. úrskurð kærunefndar nr. 367/2018. Í því máli kom fram að kærandi hefði glímt við bakverk og fengið ávísað verkjalyfjum vegna þess. Þá kom fram að kærandi hefði lýst áföllum sem hann hafi orðið fyrir auk þess sem að kvarðapróf (e. refugee health screener) gæfi til kynna að kærandi hafi glímt við tilfinningaleg bágindi (e. emotional distress). […]. Í því máli var það mat kærunefndar að þrátt fyrir framangreind heilsufarsvandamál væri kærandi ekki einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga.

Í gögnum málsins liggur fyrir að kærandi hefur sótt […] hér á landi sem hafi falist í tveimur viðtölum við sálfræðing. Markmið viðtalanna hafi verið að koma af stað úrvinnslu erfiðrar reynslu til þess að draga úr kvíða og vonleysi kæranda. Þá kemur fram í gögnum málsins að kærandi kveði sig hafa orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi þegar hann var ungur maður sem hafi haft afleiðingar fyrir hann.

Að mati kærunefndar er framangreind sálfræðimeðferð og gögn um heilsufar kæranda ekki þess eðlis að hann teljist hafa sérþarfir í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga sem taka þurfi tillit til við meðferð málsins. Kærandi sé því ekki í sérstaklega viðkvæmri stöðu.

Aðstæður í Grikklandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Grikklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • Freedom in the World 2018 – Greece (Freedom House, 1. ágúst 2018);
  • 2018 – Country Reports on Human Rights Practices – Greece (United States Department of State, 13. mars 2019);
  • Asylum Information Database, National Country Report: Greece (European Council on Refugees and Exiles, mars 2019);
  • Amnesty International Report 2017/18 – Greece (Amnesty International, 22. febrúar 2018);
  • World Report 2019 – European Union (Human Rights Watch, 17. janúar 2019);
  • 2017 Report on International Religious Freedom – Greece (United States Department of State, 29. maí 2018);
  • EU/Greece: Pressure to Minimize Number of Migrants Identified as ´vulnerable´ (Human Rights Watch, 1. júní 2017);
  • Reports of the Special Rapporteur on the human rights of migrants on his mission to Greece, (United Nations, General Assembly, 24. apríl 2017);
  • Migration Flows and Refugee Protection – Administrative challenges and human rights issues (The Greek Ombudsman, apríl 2017);
  • Commissioner for Human Rights: Report of the Commissioner for Human Rights of the Council of Europe, Dunja Mijatovic, following her visit to Greece from 25 to 29 June 2018 (Council of Europe, 6. nóvember 2018);
  • Petition to the European Parliament – Regarding degrading reception conditions and EU funding in Greece (Solidarity Now, mars 2017);
  • State of the World‘s Minorities and Indigenous Peoples 2016 – Greece (Minority Rights Group International, 12. júlí 2016);
  • Greece as a Country of Asylum – UNHCR‘s Recommendations (UNHCR, 6. apríl 2015);
  • ECRI Report on Greece (fifth monitoring cycle) (European Commission against Racism and Intolerance, 24. febrúar 2015);
  • UNHCR observations on the current asylum system in Greece (UNHCR, desember 2014) og
  • Upplýsingar af vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal): https://e-justice.europa.eu.

Af framangreindum gögnum má sjá að grísk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna þar í landi. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur m.a. bent á þau neikvæðu áhrif sem efnahagur Grikklands hefur haft á aðstæður einstaklinga sem hafa hlotið alþjóðlega vernd þar í landi og möguleika þeirra á að aðlagast grísku samfélagi. Að mati kærunefndar er ljóst af framangreindum gögnum að þeir einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi lifa oft á jaðri samfélagsins og búa í sumum tilvikum við félagslega einangrun. Einstaklingar með alþjóðlega vernd eiga hins vegar sama rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar og í dvalarleyfi þeirra felst nú jafnframt sjálfkrafa aðgangur að vinnumarkaði. Þá veita frjáls félagasamtök einstaklingum með alþjóðlega vernd aðstoð við að kynna sér réttindi sín í Grikklandi.

Einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi eiga rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu, þ. á m. nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu og lyfjum. Samkvæmt þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Grikklandi hefur bág fjárhagsstaða gríska ríkisins haft mikil áhrif á heilbrigðiskerfi landsins og hefur kostnaðarþátttaka almennings aukist við kaup á lyfjum og þjónustu. Þannig geti verið vandkvæðum bundið að sækja sér heilbrigðisþjónustu í Grikklandi og þá sérstaklega sérhæfða heilbrigðisþjónustu, m.a. vegna skorts á fjármagni og starfsfólki. Á þetta jafnt við um alla borgara Grikklands, bæði gríska ríkisborgara og aðra sem hafa rétt til dvalar í ríkinu.

Sem fyrr segir eiga einstaklingar með alþjóðlega vernd sama rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar en aðgengi þeirra að húsnæði er háð sömu skilyrðum og takmörkunum og aðgengi annarra ríkisborgara þriðju ríkja með löglega dvöl í Grikklandi. Fá gistiskýli eru í boði fyrir heimilislausa auk þess sem ekkert húsnæði er til staðar sem einungis er ætlað einstaklingum með alþjóðlega vernd. Erfitt getur reynst að fá pláss í gistiskýlum þar sem aðsóknin er mikil og eru dæmi um að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafist við í yfirgefnum húsum við mjög bágar aðstæður. Á þetta einnig við um einstaklinga sem hafa verið sendir til Grikklands frá öðrum Evrópuríkjum.

Í framangreindum gögnum kemur fram að grísk yfirvöld veiti einstaklingum með alþjóðlega vernd sem búa undir fátæktarmörkum fjárhagsaðstoð í formi mánaðarlegra greiðslna. Einstaklingar sem hyggjast nýta sér úrræðið þurfa að uppfylla ýmis skilyrði og má sem dæmi nefna að þeir þurfa að hafa kennitölu, skattnúmer, gilt dvalarleyfi og bankareikning. Þá þurfa þeir m.a. að framvísa leigusamningi í þeim tilvikum þegar þeir búa í leiguhúsnæði og í tilviki heimilislausra einstaklinga þurfa þeir að framvísa vottorði um heimilisleysi frá gistiskýlinu eða sveitarfélaginu þar sem þeir búa. Þá kemur fram í fyrrnefndum gögnum að engin sérúrræði eru til staðar varðandi félagsþjónustu fyrir fólk í viðkvæmri stöðu, s.s. þolendur pyndinga.

Í framangreindri skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins kemur fram að dæmi séu um að flóttafólk sé beitt ofbeldi, þ. á m. af hendi grísku lögreglunnar. Þá kemur fram að þarlend lög og stjórnarskrá leggi bann við pyndingum og annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Enn fremur séu ofbeldisbrot rannsökuð af grísku lögreglunni en embætti umboðsmanns rannsaki meint brot lögreglu. Af framangreindri skýrslu verður ráðið að ýmsir annmarkar séu á dómskerfi landsins en sjálfstæði dómstóla sé tryggt í framkvæmd, svo og réttindi brotaþola og sakborninga. Þá kemur fram á vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal) að útlendingar í Grikklandi sem séu þolendur glæpa og tali hvorki né skilji grísku eigi rétt á túlkaþjónustu og upplýsingum um mál þeirra á tungumáli sem þeir skilji.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laganna kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun aðildarríkis um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið byggt á því að sú meðferð sem einstaklingur á von á við brottvísun eða frávísun verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til að ákvörðunin verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars. Við mat á umræddu alvarleikastigi hefur dómstólinn jafnframt litið til annarra þátta, t.d. hvort einstaklingurinn er í viðkvæmri stöðu, sbr. t.d. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Khlaifia o.fl. gegn Ítalíu (nr. 16483/12) frá 15. desember 2016.

Í ákvörðun í máli Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013 fjallaði dómstóllinn um endursendingar einstaklinga til ríkja þar sem þeir hafa hlotið alþjóðlega vernd. Í ákvörðuninni kemur m.a. fram að það eitt að efnahagsstaða einstaklings versni við slíka endursendingu nái ekki alvarleikastigi 3. gr. mannréttindasáttmálans. Þá verði greinin ekki túlkuð þannig að í henni felist skylda aðildarríkja til að sjá einstaklingum sem njóta alþjóðlegrar verndar fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum. Dómstóllinn áréttaði jafnframt að einstaklingur sem stendur til að vísa brott geti ekki gert kröfu um áframhaldandi dvöl í ríki í því skyni að njóta þar heilbrigðis- eða félagsþjónustu. Veruleg skerðing lífsgæða sé ekki nægjanleg til að valda broti á 3. gr. mannréttindasáttmálans nema sérstaklega sannfærandi mannúðarástæður mæltu gegn endursendingu.

Með vísan til umfjöllunar um aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar í Grikklandi er það niðurstaða kærunefndar að synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi leiði ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Í því sambandi er sérstaklega tekið fram að kærunefnd fellst ekki á með kæranda að hann sé háður aðstoð gríska ríkisins til nauðsynja og eru aðstæður hans að því leyti í grundvallaratriðum ólíkar aðstæðum sem Mannréttindadómstóll Evrópu fjallaði um í dómi í máli Tarakhel gegn Sviss (nr. 29217/12). Vegna tilvísunar kæranda til dóms Mannréttindadómstóls Evrópu í málum H.A. o.fl. gegn Grikklandi nr. (19951/16) tekur kærunefnd jafnframt fram að ekki er fallist á með kæranda að dómurinn bendi til þess að hann eigi á hættu frelsissviptingu við endurkomu til Grikklands sem sé í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu enda varðaði málið aðstæður sem eru mjög ólíkar aðstæðum kæranda, þ.e.a.s. fylgdarlausra barna sem sættu tímabundnu varðhaldi á grundvelli þess að þau höfðu ekki leyfi til dvalar í Grikklandi.

Þar sem kærandi nýtur alþjóðlegrar verndar í Grikklandi telur kærunefnd að tryggt sé að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Áður hefur verið greint frá aðstæðum kæranda. Samkvæmt gögnum málsins glímir kærandi m.a. við tilfinningaleg bágindi sem þegar hefur verið greint frá. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Grikklandi verður ráðið að kærandi eigi rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu, þ. á m. nauðsynlegum lyfjum. Í ljósi fyrirliggjandi upplýsinga telur kærunefnd ekki forsendur til annars en að leggja til grundvallar við úrlausn málsins að kærandi geti fengið viðhlítandi aðstoð í Grikklandi vegna heilsufarsvandamála sinna. Kærunefnd telur gögn málsins ekki benda til þess að kærandi glími við mikil og alvarleg veikindi sem meðferð er aðgengileg við hér á landi en ekki í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá er það mat nefndarinnar að ekki sé fyrir hendi ástæða í máli kæranda er varðar heilsufar hans sem sé svo einstaklingsbundin og sérstök að ekki verði framhjá henni litið, sbr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Telur kærunefnd ekki forsendur til annars, í ljósi upplýsinga um heilsufar kæranda og þeirra upplýsinga sem liggja fyrir um aðstæður í Grikklandi, en að leggja til grundvallar við úrlausn málsins að kærandi geti leitað aðstoðar vegna heilsufarsvandamála sinna þar í landi í samræmi við þarfir sínar.

Þrátt fyrir ýmsar aðgangshindranir hefur kærandi heimild til að stunda atvinnu í Grikklandi og á rétt á félagslegri aðstoð til jafns við gríska ríkisborgara. Þá verður ráðið af framangreindum gögnum að kærandi geti leitað ásjár grískra yfirvalda, verði hann fyrir mismunun á grundvelli kynþáttar þar í landi. Má jafnframt ráða af fyrirliggjandi gögnum að óttist kærandi um öryggi sitt geti hann leitað til lögreglu eða annarra þar til bærra stjórnvalda sökum þess. Þá má ráða af gögnunum að embætti umboðsmanns í Grikklandi rannsaki meint brot lögreglu. Að mati kærunefndar bera gögn málsins því ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að kærandi geti af sömu ástæðu vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga.

Vegna athugasemdar í greinargerð kæranda tekur kærunefnd fram að aðstæður kæranda eru ekki sambærilegar aðstæðum sem fjallað var um í úrskurði kærunefndar útlendingamála nr. 387/2018 frá 27. september 2018. Kærunefnd telur að ekki sé hægt að jafna stöðu kæranda við stöðu kæranda í framangreindum úrskurði vegna þess að ekki er um að ræða sama viðtökuríki.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 11. febrúar 2019 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, í annað skiptið, en hann lagði fram umsókn sína þann 4. febrúar 2019.

Athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar

Í greinargerð kæranda eru gerðar athugasemdir við rannsókn Útlendingastofnunar með vísan til rannsóknarreglu 10. gr. og jafnræðisreglu 11. gr. stjórnsýslulaga. Kærandi byggir m.a. á því að ranglega hafi verið komist að því að hann sé ekki einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu og að að stofnunin hafi staðið því í vegi að heildstætt mat gæti farið fram á heilsufari hans, sbr. 2. mgr. 23. gr. og 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga. Kærandi gagnrýnir einkum að Útlendingastofnun hafi tekið ákvörðun í málinu áður en kærandi hafi átt viðtal við sálfræðing. Þá hafi mat á því hvort sérstakar ástæður væru fyrir hendi í málinu skv. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga verið ófullnægjandi.

Í máli kæranda liggur fyrir þó nokkuð af heilsufarsgögnum sem aflað var vegna fyrri umsóknar hans um alþjóðlega vernd hér á landi. Þá liggja jafnframt m.a. fyrir gögn um tvo viðtalstíma kæranda hjá sálfræðingi sem áttu sér stað eftir að Útlendingastofnun tók ákvörðun í máli hans. Kærunefnd hefur tekið afstöðu til þeirra gagna við mat á aðstæðum kæranda og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun. Kærunefnd telur ekki tilefni til að gera athugasemd við framkvæmd Útlendingastofnunar að þessu leyti en kæranda var leiðbeint um og gefinn kostur á að leggja fram gögn um heilsufar við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun. Þá er jafnframt til þess að líta að stuttur tími leið frá því að kærandi var fluttur úr landi eftir fyrri umsókn sína um vernd og þar til hann kom aftur hingað til lands og engin gögn lágu fyrir í málinu sem bentu til þess að heilsufar hans hefði breyst frá fyrri dvöl hans hér á landi. Í ljósi framangreinds er það mat kærunefndar að fyrir Útlendingastofnun hafi legið allar nauðsynlegar upplýsingar til þess að málsatvik gætu talist nægjanlega upplýst, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga. Þá telur kærunefnd einnig að úrskurðir kærunefndar nr. 316/2017 og 410/2017 sem kærandi vísar til í greinargerð séu ekki sambærilegir þessu máli og fellst ekki á að kæranda hafi verið mismunað við meðferð máls hans hjá Útlendingastofnun, sbr. 11. gr. stjórnsýslulaga.

Kærunefnd hefur farið yfir hina kærðu ákvörðun og málsmeðferð stofnunarinnar og telur ekki tilefni til þess að gera athugasemdir við hana. Kærunefnd hefur endurskoðað alla þætti málsins og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun.

Varakrafa kæranda um endurupptöku, sbr. KNU19030019

Líkt og að framan er rakið áframsendi Útlendingastofnun, þann 11. mars 2019, erindi til kærunefndar þess efnis að stofnuninni hefði borist beiðni kæranda um endurupptöku á fyrri úrskurði kærunefndar í máli kæranda, nr. 367/2018, sbr. 2. mgr. 7. gr. laga um útlendinga. Þá beiðni undirstrikaði kærandi enn frekar með varakröfu í greinargerð sinni í þessu máli þar sem fram kemur beiðni um endurupptöku á grundvelli 1. tölul. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga. Kærandi byggir kröfu sína m.a. á því að mat kærunefndar á almennum og einstaklingsbundnum aðstæðum hans hafi verið byggð á ófullnægjandi upplýsingum sem hafi leitt til rangrar niðurstöðu.

Í 1. tölul. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga segir að aðili máls eigi rétt á því að mál sé tekið til meðferðar á ný, eftir að stjórnvald hafi tekið ákvörðun og hún tilkynnt, ef ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik.

Vegna þeirrar málsástæðu kæranda að mál hans hafi sætt annarri meðferð en sambærileg mál hvað varðar birtingu úrskurðar vegna beiðni um frestun réttaráhrifa og að það hafi verið einbeittur vilji stjórnvalda að koma í veg fyrir að kærandi nyti réttarverndar í samræmi við 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, tekur kærunefnd fram að úrskurður vegna beiðni kæranda um frestun réttaráhrifa var kveðinn upp þann 19. september 2018 að undangenginni gagnaöflun í málinu. Niðurstaða úrskurðarins var tilkynnt kæranda þann sama dag af lögreglu að viðstöddum túlki. Í lögum um útlendinga er ekki fjallað um hvernig standa eigi að tilkynningu um niðurstöðu úrskurða kærunefndar útlendingamála sem varða frestun réttaráhrifa. Í framkvæmd nefndarinnar er mismunandi hvernig staðið er að slíkri tilkynningu og fellst nefndin ekki á að meðferð máls kæranda hafi falið í sér mismunun eða verið byggð á ómálefnalegum sjónarmiðum.

Að öðru leyti er það mat kærunefndar að ekkert hafi komið fram í málinu sem gefi það til kynna að ákvörðun kærunefndar, sbr. úrskurður nr. 367/2018, hafi verið byggð á röngum eða ófullnægjandi upplýsingum um aðstæður kæranda eða aðstæður í Grikklandi. Í úrskurði kærunefndar var ítarlega fjallað um einstaklingsbundnar aðstæður kæranda og gögn um heilsufar hans. Þá var ítarleg umfjöllun um aðstæður handhafa alþjóðlegrar verndar í Grikklandi. Þá er til þess að líta að kærunefnd hefur aftur komist að sömu niðurstöðu varðandi umsókn kæranda um alþjóðlega vernd, sbr. það sem áður hefur verið rakið, en við meðferð framangreinds kærumáls hefur kærunefnd farið yfir öll gögn sem lágu fyrir í máli kæranda auk nýrra gagna sem nú liggja fyrir um aðstæður í Grikklandi og einstaklingsbundnar aðstæður kæranda.

Að öllu framangreindu virtu telur kærunefnd ljóst að ákvörðun kærunefndar í máli kæranda, sbr. úrskurður nr. 367/2018, hafi ekki byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik, sbr. 1. tölul. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga. Því er beiðni kæranda um endurupptöku úrskurðar kærunefndar nr. 367/2018 hafnað.

Frávísun

Samkvæmt gögnum málsins kom kærandi hingað til lands þann 3. febrúar 2019. Hann sótti um alþjóðlega vernd þann 4. febrúar 2019. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hans um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

 

Úrskurðarorð

Í máli KNU19030044 er ákvörðun Útlendingastofnunar staðfest.Í máli KNU19030019 er beiðni kæranda um endurupptöku hafnað.

In case no. KNU19030044 the decision of the Directorate of Immigration is affirmed.In case no. KNU19030019 the appellants request of review of his case is denied.

 

Anna Tryggvadóttir

Hilmar Magnússon                                                                                  Þorbjörg Inga Jónsdóttir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum