Hoppa yfir valmynd
27. september 2019 Forsætisráðuneytið

Frumvarp til laga um sanngirnisbætur afgreitt úr ríkisstjórn

  - myndHaraldur Jónasson / Hari

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra lagði fram í ríkisstjórn í morgun frumvarp til laga um sanngirnisbætur í kjölfar sýknudóms Hæstaréttar í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu. Var samþykkt að frumvarpið verði lagt fram á Alþingi.

Frumvarpið kveður á um heimild ráðherra til að greiða sanngirnisbætur til þeirra sem sýknaðir voru með dómi Hæstaréttar 27. september 2018. Bætur verði einnig greiddar til aðstandenda þeirra sýknuðu sem fallnir eru frá. Í greinargerð frumvarpsins er rakin forsaga málsins og hvar sáttaviðræður hafa verið á vegi staddar til þessa dags.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum