Hoppa yfir valmynd
2. febrúar 2017 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Menningarsjóður Íslands og Finnlands

Tilgangur sjóðsins er að efla menningartengsl Íslands og Finnlands. Sjóðurinn veitir árlega styrki til einstaklinga, samtaka, félaga og stofnana vegna verkefna sem geta orðið til að efla samskipti Íslands og Finnlands á sviði menningar, lista, atvinnulífs og þjóðlífs almennt.

Í tilefni þess að árið 2017 eru 100 ár liðin frá því að Finnland öðlaðist sjálfstæði mun sjóðurinn sérstaklega líta til umsókna sem tengjast finnskum menningarverkefnum á Íslandi sem tengjast 100 ára afmæli Finnlands, og í tilefni þess að árið 2018 eru 100 ár liðin frá því Ísland hlaut fullveldi mun sjóðurinn einnig líta sérstaklega til umsókna sem tengjast íslenskum menningarverkefnum í Finnlandi sem tengjast 100 ára afmæli fullveldisins.

  • Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum vegna verkefna sem eru fyrirhuguð á síðari hluta ársins 2017 og fyrri hluta ársins 2018.
  • Frestur til að leggja inn umsóknir um styrki úr sjóðnum vegna þessa tímabils rennur út 31. mars 2017.
  • Æskilegt er að umsóknir séu ritaðar á sænsku, dönsku eða norsku.
  • Einungis er hægt að sækja um rafrænt á: www.hanaholmen.fi.
  • Fyrirspurnir vegna umsókna má senda á: [email protected]

Frekari upplýsingar um Menningarsjóð Íslands og Finnlands má finna á vef mennta- og menningarmálaráðuneytis.

Stjórn Menningarsjóðs Íslands og Finnlands.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum