Hoppa yfir valmynd
20. janúar 2022 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 504/2021 - Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 504/2021

Fimmtudaginn 20. janúar 2022

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 27. september 2021, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 27. september 2021, um að synja umsókn hennar um atvinnuleysisbætur.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 29. júlí 2021. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 2. september 2021, var óskað eftir að kærandi skilaði staðfestu afriti af eyðublaðinu RSK 5.04 og staðfestingu sýslumanns um skil á greiðslu tryggingagjalds og staðgreiðsluskatts síðastliðinna þriggja tekjuára. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 27. september 2021, var kæranda tilkynnt að umsókn hennar hefði verið synjað þar sem umbeðin gögn hefðu ekki borist stofnuninni. Tekið var fram að umsóknin væri ófullnægjandi og því ekki ljóst hvort hún uppfyllti skilyrði fyrir greiðslum atvinnuleysistrygginga eða skilyrði um virka atvinnuleit sem kveðið væri á um í 1. mgr. 13. gr. og 14. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála 27. september 2021. Með bréfi, dags. 29. september 2021, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Með bréfi, dags. 19. október 2021, barst greinargerð Vinnumálastofnunar og var hún send kæranda til kynningar þann 21. október 2021. Athugasemdir bárust ekki.

 

 

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru greinir kærandi frá því að hún og maðurinn hennar hafi keypt bóndabæ fyrir tveimur árum og þá hafi verið gerð sú krafa um að hún væri skráð fyrir VSK númeri og því sem við kæmi búinu. Vinnumálastofnun geri kröfu um að hún skrái sig af launagreiðendaskrá. Hún hafi leitað til Skattsins og það sé ekki hægt þar sem hún sé skráð fyrir öllu. Samkvæmt meðfylgjandi staðfestingu frá Skattinum hafi hún aldrei fengið laun frá búinu. Hún hafi verið í fæðingarorlofi, síðan í endurhæfingu hjá VIRK og loks í sumarstarfi sumarið 2021. Hún hafi sóst eftir vinnu haustið 2021 sem hún hafi ekki fengið. Önnur vinna hafi ekki verið í boði og því sé hún sannarlega atvinnulaus og án tekna. Kærandi óski eftir því að ákvörðun Vinnumálastofnunar um synjun á umsókn um atvinnuleysisbætur verði endurskoðuð.

III. Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar er greint frá því að kærandi hafi sótt um greiðslur atvinnuleysistrygginga til Vinnumálastofnunar þann 29. júlí 2021. Með erindi, dags. 2. september 2021, hafi kæranda verið bent á að skila inn nauðsynlegum gögnum innan sjö virkra daga. Stofnunin hafi óskað eftir staðfestu afriti af eyðublaðinu RSK 5.04 (Tilkynning um afskráningu af launagreiðendaskrá). Þá hafi einnig verið óskað eftir staðfestingu sýslumanns/tollstjóra um skil á greiðslu tryggingagjalds og staðgreiðsluskatts síðastliðinna þriggja tekjuára. Athygli hafi verið vakin á því að án umbeðinna gagna væri ekki unnt að taka afstöðu til réttar kæranda til atvinnuleysistrygginga. Kærandi hafi ekki skilað umræddum gögnum en hafi fært fram eftirfarandi skýringar: ,,Við erum bændur og VSK númerið er skráð á mig. Ég er ekki á launum á búinu, heldur maðurinn minn. Svo tekjur sem fara í gegnum VSK-inn eru hans tekjur.“ Með erindi, dags. 27. september 2021, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hennar um greiðslu atvinnuleysistrygginga hefði verið synjað þar sem umbeðin gögn höfðu ekki borist stofnuninni innan tilskilins frests.

 

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir. Það leiði af lögum nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar að óheimilt sé að vera með opna launagreiðendaskrá samhliða atvinnuleysisbótum, sbr. 18. gr. laganna. Í g. lið 14 gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi einnig fram að það sé skilyrði fyrir því að teljast tryggður á grundvelli laganna að atvinnuleitandi eigi ekki rétt á launum eða öðrum greiðslum í tengslum við störf á vinnumarkaði þann tíma sem hann teljist vera í virkri atvinnuleit.

 

Í 1. mgr. 18. gr. laga um atvinnuleysistryggingar nr. 54/2006 sé kveðið á um almenn skilyrði fyrir atvinnuleysistryggingum sjálfstætt starfandi einstaklinga. Í f. lið 1. mgr. sömu greinar sé tekið fram að skilyrði fyrir greiðslum atvinnuleysistrygginga sé að atvinnuleitandi hafi stöðvað rekstur, sbr. 20. gr. laganna. Þá komi fram í g. lið sömu greinar að atvinnuleitandi þurfi að leggja fram staðfestingu um stöðvun rekstrar, sbr. 21. gr. laganna, og vottorð frá skóla þegar það eigi við, sbr. 5. mgr. 19. gr. sömu laga.

 

Í athugasemdum með 21. gr. laganna komi fram að lagt sé til að sjálfstætt starfandi einstaklingur leggi fram með umsókn um atvinnuleysisbætur staðfestingu um að hann hafi stöðvað rekstur samkvæmt 20. gr. frumvarpsins. Þar á meðal sé gert ráð fyrir að umsækjandi leggi fram yfirlýsingu um að öll starfsemin sé stöðvuð og ástæður þess sem og afrit af tilkynningu til launagreiðendaskrár Ríkisskattstjóra eða vottorð frá skattyfirvöldum um að skráningarnúmer hans hafi verið tekið af skrá. Þá sé gert ráð fyrir að önnur gögn frá opinberum aðilum kunni að staðfesta að umsækjandi hafi stöðvað reksturinn, svo sem úrskurður héraðsdóms um gjaldþrotaskipti.

 

Samkvæmt 20. gr. laganna teljist einstaklingur hafa stöðvað rekstur hafi hann tilkynnt til launagreiðendaskrár Ríkisskattstjóra að hann hafi stöðvað rekstur. Þegar metið sé hvort starfsemi hafi verið stöðvuð skuli líta til hreyfinga í virðisaukaskattsskrá Ríkisskattstjóra. Heimilt sé að taka tillit til hreyfinga í virðisaukaskattsskrá vegna eignasölu, enda hafi sjálfstætt starfandi einstaklingur lagt fram yfirlýsingu þess efnis að hann hyggist hætta rekstri. Enn fremur teljist sjálfstætt starfandi einstaklingur hafa stöðvað rekstur hafi hann tilkynnt skráningarnúmer sitt af skrá, sýnt fram á að atvinnutæki hafi verið seld eða afskráð, reksturinn framseldur öðrum eða hann hafi verið tekinn til gjaldþrotaskipta. Til að hægt sé að taka afstöðu til réttar til atvinnuleysistrygginga verði ofangreind gögn að berast stofnuninni.

 

Eins og áður segi hafi Vinnumálastofnun óskað eftir staðfestu afriti af eyðublaði RSK 5.04 (Tilkynning um afskráningu af launagreiðendaskrá). Vinnumálastofnun hafi ekki borist umrætt gagn, þrátt fyrir beiðni þar um. Í ljósi alls framangreinds sé það afstaða Vinnumálastofnunar að hafna beri umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur, enda uppfylli kærandi ekki almenn skilyrði fyrir greiðslum atvinnuleysistrygginga.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 27. september 2021, um að synja umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur á grundvelli 1. mgr. 13. gr. og 14. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysisbætur.

Í 1. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar er kveðið á um gildissvið laganna, en þar segir að lögin gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verða atvinnulausir. Í 2. gr. kemur fram að markmið laganna sé að tryggja launamönnum eða sjálfstætt starfandi einstaklingum tímabundna fjárhagsaðstoð á meðan þeir eru að leita sér að nýju starfi eftir að hafa misst fyrra starf sitt.

Í 9. gr. laganna er fjallað um umsókn um atvinnuleysisbætur. Í 1. mgr. segir:

„Launamönnum og sjálfstætt starfandi einstaklingum er heimilt að sækja um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar þegar þeir verða atvinnulausir. Umsóknin skal vera skrifleg á þar til gerðum eyðublöðum og henni skal meðal annars fylgja staðfesting um stöðvun rekstrar og önnur nauðsynleg gögn að mati Vinnumálastofnunar. Í umsókn skulu koma fram allar þær upplýsingar er varða vinnufærni umsækjanda og þær rökstuddar fullnægjandi gögnum.“

Í 1. mgr. 13. gr. laganna er fjallað um almenn skilyrði þess að vera tryggður samkvæmt lögunum. Eitt af þeim skilyrðum er að vera í virkri atvinnuleit, sbr. 14. gr. Samkvæmt g. lið 14. gr. telst sá sem ekki á rétt á launum eða öðrum greiðslum í tengslum við störf á vinnumarkaði vera í virkri atvinnuleit, nema ákvæði 17. eða 22. gr. eigi við.

Í 1. mgr. 18. gr. laga nr. 54/2006 er fjallað um almenn skilyrði fyrir atvinnuleysistryggingum sjálfstætt starfandi einstaklinga. Eitt af þeim skilyrðum er að hafa stöðvað rekstur og leggja fram staðfestingu um slíka stöðvun, sbr. f- og g- liði ákvæðisins. Í 20. gr. laganna kemur fram að sjálfstætt starfandi einstaklingur telst hafa stöðvað rekstur hafi hann tilkynnt til launagreiðendaskrár Ríkisskattstjóra að hann hafi stöðvað rekstur. Enn fremur telst sjálfstætt starfandi einstaklingur hafa stöðvað rekstur hafi hann tilkynnt skráningarnúmer sitt af skrá, sýnt fram á að atvinnutæki hafi verið seld eða afskráð, reksturinn framseldur öðrum eða hann hafi verið tekinn til gjaldþrotaskipta. Samkvæmt 21. gr. laganna skal sjálfstætt starfandi einstaklingur leggja fram staðfestingu á því að hann hafi stöðvað rekstur og skal staðfestingin fela í sér yfirlýsingu um að öll starfsemi hafi verið stöðvuð og ástæður þess og afrit af tilkynningu til launagreiðendaskrár Ríkisskattstjóra um að rekstur hafi verið stöðvaður, vottorð frá skattyfirvöldum um að skráningarnúmer hans hafi verið tekið af skrá eða önnur viðeigandi gögn frá opinberum aðilum er staðfesta kunna stöðvun rekstrar.

Samkvæmt gögnum málsins óskaði Vinnumálastofnun eftir að kærandi legði fram staðfest afrit af eyðublaðinu RSK 5.04 (Tilkynning um afskráningu af launagreiðendaskrá) til að hægt væri að taka afstöðu til réttar hennar til atvinnuleysistrygginga. Kærandi upplýsti Vinnumálastofnun um að hún og maðurinn hennar væru bændur og virðisaukaskattsnúmerið væri skráð á hana. Þá lagði kærandi fram staðfestingu frá Skattinum þess efnis að hún væri ekki með skráð reiknað endurgjald í rekstrinum en þyrfti að vera með opna launagreiðendaskrá þar sem hún væri skráð fyrir virðisaukaskattsnúmerinu. Það væri allt of mikið mál að breyta því. Þar sem kærandi var með opna launagreiðendaskrá þegar hún sótti um greiðslur atvinnuleysistrygginga uppfyllti hún ekki skilyrði þess að vera tryggð samkvæmt lögum nr. 54/2006. Hin kærða ákvörðun er því staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 27. september 2021, um að synja umsókn A um atvinnuleysisbætur, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum