Hoppa yfir valmynd
9. apríl 2019 Dómsmálaráðuneytið

Nr 164/2019 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 9. apríl 2019 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 164/2019

í stjórnsýslumáli nr. KNU19030006

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 4. mars 2019 kærði einstaklingur er kveðst heita […], vera fæddur […], og vera ríkisborgari […] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 13. febrúar 2019, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa honum frá landinu.

Kærandi krefst þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að stofnuninni verði gert að taka umsókn kæranda til efnislegrar meðferðar hér á landi með vísan til 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, og 42. gr., sbr. 3. mgr. 36. gr. sömu laga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 30. október 2018. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum, þann sama dag, kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Noregi. Þann 7. nóvember 2018 var beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda í Noregi, sbr. b-lið 1. mgr. 18. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Í svari frá norskum yfirvöldum, dags. 8. nóvember 2018, samþykktu þau viðtöku kæranda á grundvelli d-liðar 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Útlendingastofnun ákvað þann 13. febrúar 2019 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 19. febrúar 2019 og kærði kærandi ákvörðunina þann 4. mars 2019 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 13. mars 2019 ásamt fylgigögnum. Frekari gögn bárust frá kæranda þann 28. mars sl.

Í greinargerð óskaði kærandi eftir að fá að koma fyrir nefndina og tjá sig um efni málsins. Kærunefnd taldi ekki ástæðu til að gefa kæranda kost á að koma fyrir nefndina, sbr. 7. mgr. 8. gr. laga um útlendinga.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kom fram að norsk stjórnvöld bæru ábyrgð á meðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Umsóknin yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Noregs ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá hefði kærandi ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar aðstæður væru fyrir hendi þannig að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hann fluttur til Noregs.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að í viðtali hjá Útlendingastofnun hafi hann mótmælt því að vera endursendur til Noregs, en þar bíði hans ekkert nema varðhald og brottvísun til heimaríkis þar sem fyrir liggi ákvörðun þess efnis frá dómstólum í Noregi. Kærandi hafi þá greint frá aðstæðum sínum í heimaríki, […]. Hann hafi þá unnið sem lögreglumaður en flúið úr starfi sínu og í kjölfarið hafi verið gefnar út handtökuskipanir á hendur honum í […] og hans bíði því fangelsisvist. Kærandi hafi þá jafnframt […], en kærandi kveður að lögreglan í Noregi geti ekki aðstoðað hann. Hvað varðar heilsufar sitt kveður kærandi að hann sé með sykursýki og þurfi að taka lyf vegna þess á hverjum degi. Þá glími hann við kæfisvefn, en hann hafi m.a. farið í aðgerð vegna þess í Noregi. Hann óttist að verði hann endursendur fái hann ekki viðeigandi þjónustu í Noregi vegna heilsufarskvilla sinna.

Í greinargerð er gerð grein fyrir aðstæðum umsækjenda um alþjóðlega vernd í Noregi. Kemur m.a. fram að norsk stjórnvöld hafi gripið til ýmissa aðgerða sem hafi leitt til skerðingar á réttindum umsækjenda. Til að mynda hafi heimildir til endursendinga á örugg svæði innan upprunalands verið rýmkaðar. […]. Í Noregi séu þá umsækjendur um alþjóðlega vernd settir í varðhald þegar tekin hafi verið ákvörðun um að brottvísa þeim frá landinu, en yfirvöld í landinu hafi um langa hríð verið gagnrýnd vegna aðstæðna í þeirri varðhaldsmiðstöð sem sé notuð. Í greinargerð er þá jafnframt gerð grein fyrir aðstæðum í heimaríki kæranda, en kærandi telur að heimildir staðfesti það að aðstæður séu þar ekki öruggar.

Kærandi byggir kröfu sína um efnismeðferð á því að 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 3. mgr. 36. gr. sömu laga, eigi við í máli hans. Hann hafi fengið lokasynjun í Noregi, auk þess sem hann hafi leitað til samtakanna NOAS (e. Norwegian Organisation for Asylum Seekers) en þau hafi synjað fyrirspurn hans um aðstoð við endurupptöku. Kærandi byggir því á grundvallarreglu þjóðaréttar um non-refoulement sem sé lögfest í 42. gr. laga um útlendinga. Í greinargerð sinni fjallar kærandi almennt um regluna, inntak hennar og gildissvið og áréttar að mikilvægt sé að íslensk stjórnvöld horfi ekki einungis til aðstæðna kæranda í Noregi, þar sem kærandi standi frammi fyrir óbeinni endursendingu í ómannúðlegar aðstæður. Í ljósi framangreinds sé ótækt að beita c-lið 1. mgr. 36. gr. í tilviki kæranda vegna reglunnar um non-refoulement.

Kærandi vísar þá til þess að sérstakar ástæður séu jafnframt fyrir hendi í máli hans í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í þeim efnum fjallar kærandi almennt um og gerir grein fyrir inntaki og túlkun á ákvæðinu, m.a. með hliðsjón af lögskýringargögnum, fyrri úrskurðum kærunefndar útlendingamála og hugtakinu sérstaklega viðkvæm staða, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Kærandi áréttar að hann glími við heilsubresti vegna sykursýki, auk þess að hafa óskað eftir að fá sálfræðiaðstoð hér á landi. Ekki sé þó ljóst hvort að hann glími við geðraskanir vegna þess að hann hafi ekki átt þess kost að fara til sálfræðings hér á landi, þrátt fyrir ítrekaða beiðni þess efnis. Þá hafi hann jafnframt orðið fyrir ofbeldi í heimaríki. Kærandi ítrekar þá athugasemdir sínar við aðstæður í Noregi og stefnu norskra stjórnvalda og bendir á að í ákvörðun útlendingastofnunar í Noregi í máli hans komi m.a. fram að […]. Kærandi gerir auk þess fleiri athugasemdir við meðferð málsins hjá stjórnvöldum í Noregi og niðurstöðu norskra stjórnvalda í máli hans, þ. á m. hafi norsk stjórnvöld metið ástand á því svæði sem kærandi sé frá stöðugt, þrátt fyrir að fjöldi heimilda sýni fram á að ástand þar sé alvarlegt. Tekur kærandi fram að […]. Kærandi bendir þá á frekari annmarka sem hann telur að hafi verið á meðferð máls hans í Noregi og telur kærandi að í ljósi þeirra sé varhugavert að senda hann til Noregs. Kærandi bendir þá á að við töku ákvörðunar í málinu hér á landi hafi Útlendingastofnun borið að horfa til þess hvort íslensk stjórnvöld myndu veita […] í sambærilegri stöðu alþjóðlega vernd. Hafi íslensk stjórnvöld vísbendingar um að synjanir á umsóknum í Noregi í sambærilegum málum séu tíðari en á Íslandi megi telja víst að mat ríkjanna tveggja sé ekki hið sama og að synjanir norskra stjórnvalda feli í nokkrum hluta umsókna í sér brot á flóttamannasamningnum og öðrum réttindum flóttamanna samkvæmt íslenskum lögum. Telur kærandi að í ljósi ofangreinds skuli taka umsókn hans til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá gerir kærandi nokkrar athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar, m.a. við mat stofnunarinnar á málsmeðferð norskra stjórnvalda í máli kæranda. Auk þess gerir kærandi athugasemd við þá afstöðu Útlendingastofnunar að ástæður flótta kæranda hafi takmarkaða þýðingu við úrlausn málsins. Telur kærandi að þar sem hann hafi fengið lokasynjun í máli sínu í Noregi þá eigi aðstæður hans í heimaríki ótvírætt að koma til skoðunar við ákvarðanatöku hérlendra stjórnvalda. Telur kærandi að Útlendingastofnun hafi brotið alvarlega á rannsóknarskyldu sinni hvað þetta varðar. Kærandi gerir þá m.a. athugasemd við þá staðhæfingu Útlendingastofnunar að hann hafi ekki borið sig eftir sálfræðiaðstoð hér á landi. Kærandi bendir á að hann hafi ítrekað óskað eftir sálfræðiþjónustu án þess að orðið hafi verið við beiðni hans. Byggir kærandi á því að við ákvarðanatöku í máli hans hafi svo gróflega verið brotið gegn rannsóknarreglu stjórnsýslulaga að ekki komi annað til greina en að ógilda ákvörðunina og leggja fyrir Útlendingastofnun að taka mál hans til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef krefja má annað ríki, sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli samninga sem Ísland hefur gert um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram hér á landi eða í einhverju samningsríkjanna, um að taka við umsækjanda. Í samræmi við samning ráðs Evrópusambandsins og Íslands og Noregs um þátttöku hinna síðarnefndu í framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerðanna samþykkti Ísland áðurnefnda Dyflinnarreglugerð, sbr. auglýsingu í C-deild Stjórnartíðinda nr. 1/2014.

Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Ábyrgð Noregs á umsókn kæranda er byggð á d-lið 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar þar sem kærandi hafi fengið synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd þar í landi. Samkvæmt framansögðu er heimilt að krefja norsk stjórnvöld um að taka við kæranda, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi einstæður karlmaður á fertugsaldri. Af gögnum um heilsufar kæranda má m.a. ráða að hann sé með insúlínháða sykursýki og þarfnist viðeigandi lyfja og hjálpartækja vegna þess. Hann glími þá jafnframt við kæfisvefn og hafi m.a. farið í aðgerð vegna þess í Noregi. Í gögnum kemur þá fram að hann hafi leitað til Göngudeildar sóttvarna þann 20. mars sl. vegna […]. Jafnframt hafi kærandi hitt sálfræðing.

Samkvæmt framangreindu er ljóst að kærandi er með sykursýki og hefur vegna þess sérþarfir sem taka hefur þurft tillit til við meðferð máls hans hér á landi, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður í Noregi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd í Noregi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • 2017 Country Reports on Human Rights – Norway (United States Department of State, 20. apríl 2018);
  • 2018 Country Reports on Human Rights – Norway (United States Department of State, 13. mars 2019);
  • Amnesty International Report 2017/18 – Norway (Amnesty International, 22. febrúar 2018);
  • Annual Report on the Situation of Asylum in the European Union 2017 (European Asylum Support Office, 18. júní 2018);
  • Freedom in the World – Norway (Freedom House, 28. maí 2018);• Informasjonsnotat om asylankomster (Utlendingsdirektoratet, 2017);
  • The Organisation of Reception Facilities for Asylum Seekers in Norway (Utlendingsdirektoratet, 2014);
  • Your rights to healthcare as a refugee or an asylum seeker (af vefsíðu lýðheilsustofnunar Noregs, www.helsenorge.no) og
  • Upplýsingar af vefsíðum landinfo (www.landinfo.no), norsku útlendingastofnunarinnar (www.udi.no), norsku kærunefndar útlendingamála (www.une.no), norska heilbrigðisráðuneytisins (www.legemiddelverket.no), um heilbrigðiskerfið í Noregi (www.helsenorge.no) og norskra hjálparsamtaka fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd (www.noas.no).

Af framangreindum skýrslum og gögnum má ráða að útlendingastofnun Noregs (n. Utlendingsdirektoratet) tekur ákvarðanir er varða umsóknir um alþjóðlega vernd þar í landi. Neikvæða ákvörðun útlendingastofnunar er þá hægt að kæra til sérstakrar kærunefndar útlendingamála (n. Utlendingsnemnda). Fái umsækjandi um alþjóðlega vernd í Noregi synjun á umsókn sinni hjá útlendingastofnun eða kærunefnd á hann möguleika á því að bera málið undir dómstóla. Þá geta umsækjendur um alþjóðlega vernd óskað eftir endurupptöku á máli sínu hjá kærunefndinni m.a. á grundvelli nýrra gagna sem gefa til kynna að úrskurður kærunefndarinnar sé byggður á röngum upplýsingum um umsækjanda eða um aðstæður hans. Þá geta umsækjendur, sem telja á sér brotið í samskiptum sínum við stjórnvöld, kvartað til umboðsmanns norska þingsins (n. Sivilombudsmannen). Umsækjendur um alþjóðlega vernd eiga þess kost að leggja fram beiðni fyrir Mannréttindadómstól Evrópu um bráðabirgðaráðstöfun skv. 39. gr. málsmeðferðarreglna dómstólsins, telji þeir endanlega niðurstöðu um synjun á alþjóðlegri vernd og brottvísun til heimaríkis hafa í för með sér hættu á ofsóknum eða að um meðferð sé að ræða sem brjóti í bága við ákvæði mannréttindasáttmálans.

Í ofangreindum gögnum kemur fram að umsækjendur um alþjóðlega vernd í Noregi geta fengið ákveðinn fjölda klukkustunda í lögfræðiþjónustu endurgjaldslaust ef umsókn þeirra um vernd hefur verið synjað af útlendingastofnun Noregs. Umsækjendur eiga því rétt á lögfræðiaðstoð sér að kostnaðarlausu við meðferð máls á kærustigi og hafa þeir nokkurt val um hvaða lögfræðingur sinni þeirra máli. Þá geta umsækjendur um alþjóðlega vernd leitað til mannúðarsamtaka sem veita lögfræðiþjónustu.

Af rannsókn kærunefndar á viðtöku umsækjenda um alþjóðlega vernd sem hafa fengið synjun í Noregi, en sæta endursendingu þangað frá öðrum aðildarríkjum Dyflinnarreglugerðarinnar, verður ráðið að þeir dvelji yfirleitt í svokölluðum viðkomumiðstöðvum (e. transit centres) þar til þeir eru endursendir til heimaríkis. Í viðkomumiðstöðvum í Noregi, líkt og í öðrum móttökumiðstöðvum, fá umsækjendur fæði og klæði eftir þörfum, auk vasapeninga. Þá eiga umsækjendur sem hafa fengið synjun á umsókn sinni rétt á nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu.

Kærunefnd hefur í öðrum málum sem nefndin hefur haft til meðferðar aflað upplýsinga frá norskum stjórnvöldum um ýmis atriði er lúta að umsækjendum um alþjóðlega vernd þar í landi, s.s. hvað varðar þjónustu, varðhald og aðstoð við heimför. Í þeim upplýsingum kemur m.a. fram að varðhaldi sé ekki beitt sjálfkrafa við endurviðtöku en lögreglan framkvæmi mat á hættu á flótta í hverju tilviki fyrir sig. Þá má ráða af fyrrgreindum upplýsingum frá norskum stjórnvöldum sem og ofangreindum skýrslum að einstaklingar sem hlotið hafa neikvæða niðurstöðu í máli sínu í Noregi geti almennt sótt um aðstoð við heimför hjá Alþjóðastofnun um fólksflutninga (e. International Organization for Migration) og norskum lögregluyfirvöldum. Þá er ljóst af ofangreindum gögnum að í Noregi sé starfandi skilvirk löggæsla sem lúti styrkri stjórn yfirvalda.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laganna kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun aðildarríkis um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið byggt á því að sú meðferð sem einstaklingur á von á við brottvísun eða frávísun verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til að ákvörðunin verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars. Við mat á umræddu alvarleikastigi hefur dómstólinn jafnframt litið til annarra þátta, t.d. hvort einstaklingurinn er í viðkvæmri stöðu, sbr. t.d. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Khlaifia o.fl. gegn Ítalíu (nr. 16483/12) frá 15. desember 2016. Í því sambandi hefur dómstólinn lagt ákveðna áherslu á að umsækjendur um alþjóðlega vernd tilheyri jaðarsettum og viðkvæmum þjóðfélagshóp sem þurfi sérstaka vernd, sbr. t.d. dóm í máli Tarakhel gegn Sviss (nr. 29217/12) frá 4. nóvember 2012. Þrátt fyrir það verði 3. gr. mannréttindasáttmálans ekki túlkuð á þann hátt að í greininni felist skylda aðildarríkja til að sjá umsækjendum um alþjóðlega vernd fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum, sbr. dóm í máli M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi (nr. 30696/09) frá 21. janúar 2011.

Með vísan til umfjöllunar um aðstæður og móttökuskilyrði umsækjenda um alþjóðlega vernd í Noregi er það niðurstaða kærunefndar að synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd leiði ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.

Áður hefur verið fjallað um málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd í Noregi, þ.m.t. möguleika umsækjenda til að fá ákvarðanir um synjun verndar endurskoðaðar hjá norskum yfirvöldum. Norsk yfirvöld eru bundin af sambærilegum reglum og Ísland um vernd gegn brottvísun umsækjenda um alþjóðlega vernd til ríkis þar sem einstaklingar eiga á hættu að verða fyrir ofsóknum og lífi þeirra og frelsi ógnað (non-refoulement), sbr. 73. gr. norskra laga um útlendinga (n. lov om utlendingers adgang til riket og deres opphold her). Að mati kærunefndar má ráða af fyrirliggjandi heimildum að málsmeðferð norskra yfirvalda veiti nægilega tryggingu fyrir því að einstaklingsbundið mat sé lagt á aðstæður umsækjenda um alþjóðlega vernd í því skyni að tryggja að enginn umsækjandi sé sendur þangað sem líf hans og frelsi er í hættu. Þá er það mat kærunefndar að gögn sem kærandi hefur lagt fram við meðferð málsins bendi ekki til þess að meðferð á umsókn hans í Noregi hafi verið óforsvaranleg. Samkvæmt framansögðu benda öll gögn til þess að kærandi hafi raunhæf úrræði í Noregi, bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. jafnframt 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem tryggja að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Samkvæmt framansögðu kemur 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga ekki í veg fyrir að umsókn kæranda verði synjað um efnismeðferð.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Aðstæðum kæranda hefur þegar verið lýst. Kærunefnd telur að aðstæður hans séu ekki þess eðlis að þær teljist sérstakar í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eða samkvæmt þeim viðmiðum sem talin eru upp í dæmaskyni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Í því sambandi hefur nefndin m.a. litið til þess að heilsufar kæranda sé ekki með þeim hætti að hann teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi eða að aðstæður hans að því leyti séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði framhjá þeim litið. Af gögnum málsins er ljóst að kærandi er m.a. með insúlínháða sykursýki og þarfnast ákveðinna lyfja og hjálpartækja vegna þess. Umsækjendur um alþjóðlega vernd sem hafa fengið synjun í máli sínu í Noregi en dvelja enn þar í landi eiga rétt á nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu gegn greiðslu en ef umsækjandi getur ekki greitt fyrir slíka þjónustu er kostnaðurinn greiddur af sveitarfélaginu eða annarri viðeigandi stofnun. Í ljósi framangreindra upplýsinga um aðstæður í Noregi telur nefndin ekki forsendur til annars en að leggja til grundvallar að kærandi getið fengið nauðsynlega heilbrigðisþjónustu þar í landi í samræmi við þarfir sínar.

Af gögnum málsins er ennfremur ljóst að kærandi hefur hlotið neikvæða niðurstöðu í máli sínu um alþjóðlega vernd í Noregi, sbr. ákvörðun útlendingastofnunar Noregs dags. 23. júní 2017, ákvörðun kærunefndar útlendingamála þar í landi dags. 24. nóvember 2017 og niðurstöðu héraðsdómstóls í Osló dags. 30. apríl 2018. Ekki er ljóst af gögnum máls hvort kærandi hafi áfrýjað þeirri niðurstöðu. Nefndin áréttar að framangreindar upplýsingar um aðstæður í Noregi benda m.a. til þess að kærandi geti óskað eftir endurupptöku á máli sínu fyrir norsku kærunefnd útlendingamála, m.a. á grundvelli nýrra gagna. Enn fremur geti kærandi borið úrskurð kærunefndar útlendingamála Noregs undir umboðsmann þar í landi. Að mati kærunefndar eru ekki forsendur til annars en að leggja til grundvallar að í Noregi séu til staðar raunhæf úrræði fyrir kæranda til að leita eftir endurskoðun á niðurstöðu í máli sínu, telji hann ástæðu til. Þá telur nefndin að telji kærandi þörf á geti hann nýtt sér framangreind úrræði og stofnanir hafi hann t.d. athugasemdir við meðferð norskra stjórnvalda á máli hans um alþjóðlega vernd. Að mati nefndarinnar benda gögn málsins ekki til þess að heilsufar kæranda eða aðstæður hans að öðru leyti séu þess eðlis að kærandi geti ekki sjálfur borið sig eftir slíkum úrræðum. Þá veiti mannúðarsamtök í Noregi t.d. lögfræðiþjónustu. Kærunefnd áréttar sérstaklega að nefndin hefur ekki tekið afstöðu til þess hvort skilyrði slíkrar endurupptöku eða kvörtunar séu fyrir hendi í máli kæranda enda er mat um það á forræði þar til bærra stofnana í Noregi. Að öllu framangreindu virtu og er það mat kærunefndar að staða kæranda í Noregi sé ekki þess eðlis að sérstakar ástæður séu fyrir hendi í málinu.

Kærunefnd telur þá rétt að taka fram, með vísan til framangreindra upplýsinga um varðhald útlendinga í Noregi, að nefndin telur ekki útilokað að kærandi kunni að vera færður í varðhald við komuna þangað. Að mati kærunefndar er málsmeðferð og aðbúnaður útlendinga sem kunna að vera settir í varðhald í Noregi ekki þess eðlis að sérstakar ástæður séu fyrir hendi í málinu.

Þá telur kærunefnd að gögn málsins beri ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að hann geti af sömu ástæðu vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki. Þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda m.a. til þess að telji kærandi sér mismunað eða óttist hann um öryggi sitt að einhverju leyti geti hann leitað aðstoðar hjá þar til bærum stjórnvöldum.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 10. desember 2018 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 30. október 2018.

Athugasemdir kæranda við ákvörðun Útlendingastofnunar

Svo sem fram hefur komið gerir kærandi í greinargerð sinni ýmsar athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar, þ. á m. við mat stofnunarinnar á stöðu hans og aðstæðum í heimaríki, og vísar af því tilefni m.a. til rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

Kærunefnd hefur farið yfir hina kærðu ákvörðun og telur ekki tilefni til þess að gera athugasemdir við hana. Hefur kærunefnd endurskoðað alla þætti málsins og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun. Að mati kærunefndar er því ekki tilefni til frekari umfjöllunar um athugasemdir kæranda.

Frávísun

Kærandi kom hingað til lands þann 30. október 2018 og sótti um alþjóðlega vernd þann sama dag. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hans um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Kærandi skal fluttur til Noregs eigi síðar en 6 mánuðum eftir birtingu þessa úrskurðar, sbr. til hliðsjónar 29. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar, nema ákveðið verði að fresta réttaráhrifum úrskurðar þessa að kröfu kæranda, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga.

Samantekt

Í máli þessu hafa norsk stjórnvöld fallist á að taka við kæranda og umsókn hans um alþjóðlega vernd á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og senda kæranda til Noregs með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Ákvörðun Útlendingastofnunar er því staðfest.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

Anna Tryggvadóttir

Erna Kristín Blöndal                                                                         Þorbjörg Inga Jónsdóttir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum