Hoppa yfir valmynd
6. janúar 2022 Utanríkisráðuneytið

Blóðug byrjun á nýju ári í Sýrlandi

Ljósmynd: UNICEF - mynd

„Bara síðustu fjóra daga, frá byrjun nýs árs, hafa tvö börn látið lífið og fimm til viðbótar særst í auknum átökum í norðvesturhluta Sýrlands,“ segir Kambou Fofana, starfandi yfirmaður UNICEF í Mið-Austurlöndum og Norður-Afríku.  Hann lýsir þungum áhyggjum af stöðu mála í landshlutanum en rúmlega 70 prósent allra brota gegn börnum í Sýrlandi í fyrra urðu í norðvesturhluta landsins. 

„Í vikunni var svo gerð árás á vatnsstöð sem UNICEF styrkir í þorpinu Arshani fyrir utan Idlib í norðvesturhéraðinu,“ segir Fofana í tilkynningu vegna málsins. „Árásin gerði það að verkum að þjónusta stöðvarinnar lá niðri og stöðvaði dreifingu á vatni til rúmlega 240 þúsund manns.“ 

Fofana fordæmir árásir sem þessar.

„Börn og mikilvæg þjónusta við þau ætti aldrei að þurfa að sæta árásum. Þetta skelfilega stríð gegn börnum í Sýrlandi hefur nú staðið í ellefu ár. Hversu mikið lengur getur þetta viðgengist?“ 

UNICEF á Íslandi hefur undanfarin ár haldið úti neyðarsöfnun fyrir börn í Sýrlandi. Til að styðja við neyðarsöfnunina er hægt að leggja frjáls framlög inn á 701-26-102040,  kt. 481203-2950 – eða senda SMS-ið STOPP í símanúmerið 1900 (1.900 kr.)

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

16. Friður og réttlæti
3. Heilsa og vellíðan

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum