Hoppa yfir valmynd
26. maí 2010 Matvælaráðuneytið

Opinn fundur um orkunýtingu og atvinnuuppbyggingu í Þingeyjarsýslum

Fréttatilkynning nr 9/2010
Verkefnisstjórn um orkunýtingu og atvinnuuppbyggingu í Þingeyjarsýslum heldur opinn fund með Katrínu Júlíusdóttur iðnaðarráðherra og Herði Arnarsyni forstjóra Landsvirkjunar þriðjudaginn 25. maí, kl. 17:15 á Fosshótel Húsavík.

Farið verður yfir vinnu verkefnisstjórnarinnar sem skipuð var í nóvember 2009 á grundvelli sameiginlegrar viljayfirlýsingar iðnaðarráðherra, Norðurþings, Skútustaðahrepps og Þingeyjarsveitar um samstarf á sviði orkurannsókna, orkunýtingar og atvinnuuppbyggingar í Þingeyjarsýslum. Verkefnisstjórn var falið að leita mögulegra samstarfsaðila um atvinnuuppbyggingu sem byggi á hagnýtingu orkunnar frá háhitasvæðunum í Þingeyjarsýslum. Fyrsta áfanga skyldi ljúka í vor. Niðurstöður hans verða nú kynntar opinberlega ásamt hugmyndum
um næstu skref.

Dagskrá fundarins:

  •         Gunnlaugur Stefánsson, forseti sveitarstjórnar Norðurþings, býður gesti
             velkomna
  •          Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra, lýsir áherslum í orku- og atvinnumálum
  •          Reinhard Reynisson, fer yfir störf verkefnisstjórnarinnar í fyrsta áfanga
  •          Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, lýsir áherslum fyrirtækisins
  •          Fyrirspurnir frá fundargestum
  •          Iðnaðarráðherra tekur saman áherslur vegna næstu skrefa

Fundarstjóri er Örlygur Hnefill Jónsson

Verkefnisstjórn er skipuð eftirfarandi fulltrúum:

Bergur Elías Ágústsson, f.h. Norðurþings;
Margrét Hólm Valsdóttir, f.h. Skútustaðahrepps;
Tryggvi Harðarson, f.h. Þingeyjarsveitar;
Reinhard Reynisson, f.h.Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga;
Einar Mathiesen, f.h. Landsvirkjunar/Þeistareykja ehf;
Martha Eiríksdóttir, f.h. Iðnaðarráðuneytis.

                                                        Reykjavík, 25. Maí 2010

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum