Hoppa yfir valmynd
22. október 2018 Utanríkisráðuneytið

Tólf milljónir frá utanríkisráðuneytinu vegna náttúruhamfara á Indónesíu

Ljósmynd: Rauði krossinn. - mynd

Utanríkisráðuneytið hefur ákveðið að bregðast við náttúruhamförunum í Indónesíu með því að leggja fram 100 þúsund Bandaríkjadali, tæplega 12 milljónir króna. Samhæfingarskrifstofu aðgerða Sameinuðu þjóðanna í mannúðarmálum (OCHA) ráðstafar framlaginu til að takast á við afleiðingar náttúruhamfaranna.

Að sögn Þórdísar Sigurðardóttir deildarstjóra mannúðaraðstoðar í utanríkisráðuneytinu má búast við að langan tíma taki að reisa við þau samfélög sem verst urðu úti í þessum náttúruhamförum og ljóst sé að þau þurfi umtalsverðan stuðning á meðan. „Stuðningurinn er veittur í samstarfi við heimamenn og samkvæmt viðbragðsáætlun sem gerð hefur verið og á að endurskoða að þremur mánuðum liðnum,“ segir Þórdís.

Jarðskjálftar, sá stærsti 7,5 á Richter, sem riðu yfir miðhluta Sulawesi í Indónesíu 28. september og flóðbylgjan sem skall á ströndinni í kjölfarið, hafa þegar kostað að minnsta kosti 2.100 mannslíf. Ríflega 4.600 eru alvarlega slasaðir og tæplega 700 enn týndir. Líklegt er talið að þessar tölur eigi eftir að hækka. Hátt í 80 þúsund manns eru enn án heimilis.

Auk fjárstuðningsins við OCHA er Ísland jafnframt með rammasamning við Neyðarsjóð Sameinuðu þjóðanna (CERF), sem er sérstakur sjóður undir Samhæfingarskrifstofu aðgerða SÞ í mannúðarmálum. Sjóðurinn er ætlaður til að bregðast við skyndilegu neyðarástandi og ráðuneytið leggur til 50 milljónir króna árlega í þann sjóð.

OCHA Indónesíu

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

3. Heilsa og vellíðan

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum