Hoppa yfir valmynd
24. febrúar 2021 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Óskað eftir tilnefningum til Kuðungsins

Merki Kuðungsins - mynd

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar eftir tilnefningum um fyrirtæki eða stofnun, sem vegna verka sinna og athafna á síðasta ári eru þess verðug að hljóta umhverfisviðurkenninguna Kuðunginn fyrir árið 2020. Kuðungurinn verður afhentur í tengslum við Dag umhverfisins.

Óskað er eftir því að stutt greinargerð fylgi með tilnefningunni. Fyrirtæki og stofnanir geta bæði tilnefnt sig sjálf eða verið tilnefnd af öðrum.

Við mat á viðurkenningarhöfum er horft til eftirfarandi þátta: Umhverfisstjórnunar, innleiðingar nýjunga í umhverfisvernd, losun gróðurhúsalofttegunda, minni efnanotkunar, lágmörkunar úrgangs, mengunarvarna, umhverfisvænni þróun á vöru eða þjónustu, framlags til umhverfismála, samstarfs í umhverfismálum og vinnuumhverfis.

Tillögur skulu berast umhverfis- og auðlindaráðuneytinu eigi síðar en 22. mars nk. merktar „Kuðungurinn“ á netfangið [email protected] eða með pósti í umhverfis- og auðlindaráðuneytið, Skuggasundi 1, 101 Reykjavík.

Á síðasta ári hlaut verkfræðistofan Efla viðurkenningu fyrir framúrskarandi starf að umhverfismálum á árinu 2019.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum