Hoppa yfir valmynd
7. ágúst 2008 Dómsmálaráðuneytið

Fangelsið Akureyri opnað formlega eftir endurbætur

Fangelsið Akureyri var formlega opnað í dag, 7. ágúst, eftir gagngerar endurbætur. Þar með lauk öðrum áfanga í áætlun um endurnýjun og uppbyggingu fangelsa í landinu.
Fangelsið Akureyri eftir gagngerar endurbætur.
Fangelsið Akureyri var formlega opnað 7. ágúst 2008 eftir gagngerar endurbætur.

Fangelsið Akureyri var formlega opnað í dag, 7. ágúst, eftir gagngerar endurbætur. Þar með lauk öðrum áfanga í áætlun um endurnýjun og uppbyggingu fangelsa í landinu, sem mótuð hefur verið af dóms- og kirkjumálaráðuneyti og Fangelsismálastofnun.

Allur aðbúnaður í fangelsinu er góður og í samræmi við nútímakröfur. Sex fangaverðir starfa í fangelsinu og hefur stöðugildum verið fjölgað um tvö. Eftir endurbætur er unnt að vista tíu fanga í fangelsinu, þar af eru tvö rými sem geta hýst kvenfanga. Í fangelsinu eru vistaðir fyrirmyndarfangar, enda stundi þeir vinnu eða nám í fangelsinu, auk þess skulu fangar taka þátt í endurhæfingaráætlun. Fangar sjá að mestu  um sig sjálfir, þ.e. elda, þrífa, þvo þvott og þjálfast í öðru sem tengist almennri lífsleikni.  Þar með koma þeir betur undirbúnir út í samfélagið að lokinni fangavistinni og jafnframt er dregið úr líkum á frekari afbrotum síðar.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum