Hoppa yfir valmynd
1. mars 2022

Stytta eftir Ásmund Sveinsson gefin íslenska ríkinu

Unnur Orradóttir Ramette, sendiherra, tók í gær, fyrir hönd íslenska ríkisins, á móti einstakri gjöf frá Françoise Voillery. Um er að ræða fallega litla styttu eftir myndhöggvarann Ásmund Sveinsson sem frú Voillery fékk í brúðkaupsgjöf þegar hún og Claude Voillery gengu í hjónaband á Íslandi árið 1948. Tengdafaðir Françoise Voillery var Henri Voillery, konsúll og síðar sendiherra Frakklands á Íslandi (1947-1959).

Frú Voillery hafði fyrir nokkru einnig gefið sendiráðinu málverk eftir listmálarann Eggert Guðmundsson, sem henni og eiginmanni hennar hafði áskotnast við sama tækifæri.
  • Stytta eftir Ásmund Sveinsson gefin íslenska ríkinu - mynd úr myndasafni númer 1
  • Stytta eftir Ásmund Sveinsson gefin íslenska ríkinu - mynd úr myndasafni númer 2
  • Françoise Voillery og Unnur Orradóttir-Ramette við málverk Eggerts Guðmundssonar - mynd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum