Hoppa yfir valmynd
3. desember 2018 Innviðaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Jöfn tækifæri til tónlistarnáms

Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra, Aldís Hafsteinsdóttir formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og Karl Björnsson framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga.  - mynd
Samkomulagi ríkisins og sveitarfélaganna um stuðning við tónlistarnám er ætlað að jafna aðstöðumun nemenda til tónlistarnáms á framhaldsstigi og söngnám á mið- og framhaldsstigi og festa betur fjármögnun námsins í sessi. Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra, Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra og Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra undirrituðu samkomulagið af hálfu ríkisins og Aldís Hafsteinsdóttir formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga og Karl Björnsson framkvæmdastjóri fyrir hönd sveitarfélaganna. Undirritunin fór fram í Söngskólanum í Reykjavík í morgun.

„Tónlistarnám er mikilvægt og gott veganesti út í lífið. Jafnt aðgengi að menntun er skilgreint sem meginmarkmið í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar og að því vinnum við. Ég fagna þessu samkomulagi og þeim einhug sem um það ríkir,“ sagði Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.

Samkomulagið byggir á gildandi samkomulagi frá 2016. Grunnfjárhæð framlags ríkisins er 545 milljónir kr. á ársgrundvelli sem greiðist til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaganna sem annast úthlutanir framlaganna. Á móti skuldbinda sveitarfélögin sig til að taka tímabundið yfir verkefni frá ríki sem nema 230 milljónum kr. á ári og sjá til þess að framlag renni til kennslu þeirra nemenda sem innritaðir eru í viðurkennda tónlistarskóla án tillits til búsetu. Samkomulagið snertir 33 viðurkennda tónlistarskóla víða um land en þar stunda nú um 600 nemendur nám á framhaldsstigi. Gildistími samkomulagsins er til ársloka 2021.

Margir tónlistarskólar bjuggu við viðvarandi rekstrarvanda á árunum 2014-2016. Um sama leyti var unnið að hugmyndum um nýjan framhaldsskóla sem seinna varð Menntaskóli í tónlist. Skólinn hóf starfsemi árið 2017 með þjónustusamningi við mennta- og menningarmálaráðuneytið sem fékk til þess fjárheimild á fjárlögum og þeir u.þ.b. 200 nemendur sem stunda nám á framhaldsstigi í þeim skóla falla utan samkomulags þess á milli ríkis og sveitarfélaga.

Í ljósi þess að fækkað hefur í hópnum sem fellur undir samkomulagið og tryggt er að það taki almennum verðlagsuppfærslum fjárlaga er grundvöllur tónlistarfræðslu á framhaldstigi nú betur tryggður en áður.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum