Hoppa yfir valmynd
7. júní 2013 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Mál nr. 12/2013.  Ákvörðun kærunefndar útboðsmála

Ákvörðun kærunefndar útboðsmála 9. maí 2013

í máli nr. 12/2013:

Logaland ehf.

gegn

Landspítala

 

Með ódagsettu bréfi kærir Logaland ehf. örútboð Landspítala nr. 1212 „Latex og vinyl skoðunarhanskar – Örútboð innan rammasamnings ríkisins nr. 13.03“. Kærandi gerir eftirfarandi kröfur: 

1.      Að kærunefndin stöðvi þegar í stað innkaupaferlið sem nú fer fram á grundvelli útboðsins þar til endanlega hefur verið skorið úr kæru.

2.      Að kærunefndin felli úr gildi ákvörðun kaupanda um val á tilboðum í útboðinu og leggi fyrir hann að auglýsa útboðið á nýjan leik.

3.      Að kærunefndin láti í ljós álit sitt á skaðabótaskyldu kaupanda gagnvart kæranda.

4.      Að kærunefndin ákveði að kaupandi greiði kæranda kostnað við að hafa kæruna uppi. 

Kærða var kynnt kæran og gefinn kostur á að gera athugasemdir. Sérstaklega var óskað eftir athugasemdum kærða vegna kröfu kæranda um stöðvun innkaupaferlis. Athugasemdir kærða bárust kærunefnd útboðsmála með bréfi, dags. 17. apríl 2013. Krefst kærði þess að öllum kröfum kæranda verði hafnað. Kærði krefst þess að kærunefnd ákveði að kærði skuli greiða kostnað kærða við að verjast þessari kæru að skaðlausu samkvæmt mati kærunefndarinnar.

       Í þessum hluta málsins tekur kærunefnd útboðsmála ákvörðun um hvort afhenda skuli kæranda lýsingu kærða á prófun hanska í útboðinu, sem liggur fyrir nefndinni, en lýsingin er merkt trúnaðarmál. 

I.

Með útboðslýsingu 20. desember 2012 óskaði kærði eftir verðtilboðum frá samningsaðilum Rammasamnings Ríkiskaupa nr. 13.03 um skoðunarhanska vegna örútboðs nr. 1212. Óskað var eftir tilboðum í hreina einnota latex skoðunarhanska og hreina einnota vinyl skoðunarhanska. Örútboðið byggði á 6. mgr. 34. gr. laga nr. 84/2007 um opinber innkaup. Kærandi kærði örútboðið 15. janúar 2013 vegna meintra brota á meginreglum laga nr. 84/2007. Kröfu kæranda um stöðvun innkaupaferlis var hafnað með ákvörðun nefndarinnar 12. febrúar sama ár. Kærandi kærir örútboð nr. 1212 nú á nýjan leik. 

II.

Kærandi vísar til þess að hann hafi kært útboðið áður til kærunefndar útboðsmála með bréfi 15. janúar 2013. Hafi hann krafist þess að innkaupaferlið yrði stöðvað og útboðið fellt úr gildi. Í ákvörðun nefndarinnar 12. febrúar sama ár hafi ekki verið fallist á kröfu um stöðvun samningsgerðar. Í ákvörðuninni segi að kærunefndin telji að kærandi hafi „ekki sýnt fram á, að svo stöddu, að valforsendur séu það huglægar að kaupendur geti metið tilboðin að eigin geðþótta.“ Þá segi að kærunefnd telji „að ekki hafi verið sýnt fram á, að svo búnu máli, að brotið hafi verið gegn gagnsæi og jafnræði bjóðenda eða að verulegar líkur séu á því að brotið hafi verið gegn lögum nr. 84/2007 að öðru leyti“. Telur kærandi ljóst af orðalagi ákvörðunarinnar að kærunefndin telji að meta verði verklag kærða við mat á tilboðum til að úr því verði endanlega skorið hvort brotið hafi verið gegn lögum nr. 84/2007.

       Kærandi bendir á að honum hafi borist tilkynning um val á tilboðum í útboðinu 3. apríl 2013. Samdægurs hafi hann óskað eftir rökstuðningi kærða. Rökstuðningur hafi enn ekki borist. Þá hafi kærandi á grundvelli stjórnsýslulaga nr. 37/1993 óskað bréflega eftir því að kærunefnd afhendi lýsingu kærða á prófun hanska í útboðinu en lýsingin hafi verið merkt trúnaðarmál. Kærunefnd hafi enn ekki svarað erindinu.

       Af þessum sökum telur kærandi að hann geti ekki, að svo stöddu, leitt frekari rök að því að framkvæmd mats á tilboðum hafi verið gölluð en hann hafi þegar gert með greinargerðum sínum í máli nr. 1/2013, sem fjalli um sama útboð. 

       Telur kærandi í þessu ljósi mikilvægt að kærunefnd útboðsmála tilkynni kærða þegar í stað um kæru þessa og séð verði til þess að samningsgerð fari ekki fram að svo stöddu. Frekari athugasemdir og málsástæður verði sendar kærunefnd útboðsmála þegar rökstuðningur kærða hafi borist kæranda og afstaða kærunefndar til afhendingar áðurnefnds trúnaðarskjals liggi fyrir.

III.

Kærði svaraði kröfu kæranda um afhendingu umrædds trúnaðarskjals með tölvubréfi 6. maí 2013. Fram kemur að kærði telji rétt að aflétta trúnaði á lýsingu á prófun hanska vegna örútboðs kærða nr. 1212. Trúnaður eigi ekki lengur við nú þegar útboðið hafi farið fram og prófunum sé lokið. Kærði bendir á að rétt hafi þótt í upphafi að skjalið væri trúnaðarmál til að koma í veg fyrir að aðilar nýttu sér efni þess til að hafa áhrif á þá sem framkvæma prófanir hjá kærða.      

IV.

Í máli þessu krefst kærandi þess að kærunefnd útboðsmála afhendi sér lýsingu kærða á prófun hanska í útboðinu, sem nefndin hefur undir höndum, en skjalið er merkt trúnaðarmál. Nefndin kallaði eftir afstöðu kærða til afhendingar skjalsins. Telur kærði rétt að aflétta trúnaði af skjalinu. Verður kæranda því afhent umrætt skjal, sem merkt er fylgiskjal nr. 4 með athugasemdum kærða, Landspítala, í máli nr. 1/2013.

      

Ákvörðunarorð:

Fallist er á að kæranda, Logalandi ehf., verði afhent lýsing á prófun hanska í örútboði kærða, Landspítala, nr. 1212, sbr. fylgiskjal nr. 4 með athugasemdum kærða, Landspítala, í máli nr. 1/2013.

 

Reykjavík, 9. maí 2013

 

Páll Sigurðsson,

Auður Finnbogadóttir

Stanley Pálsson

 

 

 

Rétt endurrit staðfestir,

 

Reykjavík,  [Setja inn dags.]

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum