Hoppa yfir valmynd
10. ágúst 2001 Dómsmálaráðuneytið

Mannanafnanefnd, úrskurðir 10. ágúst 2001

Ár 2001, föstudaginn 10. ágúst , var fundur haldinn í Mannanafnanefnd. Fundinn sátu Andri Árnason, formaður, Guðrún Kvaran og Margrét Jónsdóttir.

Eftirtalin mál voru tekin til afgreiðslu:

 

Mál nr. 72/2001

Eiginnafn: Frán (kvk.)

Eiginnafnið Frán tekur eignarfallsendingu (Fránar) og fullnægir því 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Frán er tekin til greina og verður það fært á mannanafnaskrá.

 

Mál nr. 73/2001

Eiginnafn: Úlfa (kvk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Eiginnafnið Úlfa tekur eignarfallsendingu (Úlfu) og fullnægir því 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Úlfa er tekin til greina og verður það fært á mannanafnaskrá.

 

Mál nr. 74/2001

Eiginnafn: Engiljón (kk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Eiginnafnið Engiljón tekur eignarfallsendingu (Engiljóns) og fullnægir því 1. mgr. 5. gr. laga um mannanöfn nr. 45/1996.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Engiljón er tekin til greina og verður það fært á mannanafnaskrá.

 

Mál nr. 75/2001

Eiginnafn: Tera (kvk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Eiginnafnið Tera tekur eignarfallsendingu (Teru) og fullnægir því 1. mgr. 5. gr. laga um mannanöfn nr. 45/1996.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Tera er tekin til greina og verður það fært á mannanafnaskrá.

 

 

Fleira ekki gert, fundi slitið.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum