Hoppa yfir valmynd
12. september 2012 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Samið um gerð stuttmyndar vegna vitundarvakningar um kynferðislegt ofbeldi gegn börnum

Skrifað undir samning um stuttmynd vegna vitundarvakningar um kynferðislegt ofbeldi gegn börnum.
Skrifað undir samning um stuttmynd vegna vitundarvakningar um kynferðislegt ofbeldi gegn börnum.

Verkefnisstjórn innanríkisráðuneytis, mennta- og menningarmálaráðuneytis og velferðarráðuneytis um vitundarvakningu um kynferðislegt ofbeldi gegn börnum hefur undirritað samning um styrkveitingu til gerðar stuttmyndar sem ber heitið FÁÐU JÁ – stuttmynd um mörkin milli ofbeldis og kynlífs.

Handritshöfundar stuttmyndarinnar eru Brynhildur Björnsdóttir, Páll Óskar Hjálmtýsson og Þórdís Elva Þorvaldsdóttir en Zeta Productions framleiðir myndina.

Vitundarvakningin er hluti af skuldbindingum íslenskra stjórnvalda gagnvart sáttmála Evrópuráðsins um varnir gegn kynferðislegri misnotkun og misneytingu á börnum. Sáttmálinn leggur þær skyldur á herðar stjórnvalda að beina fræðslu um kynferðislegt ofbeldi að börnum og að þeim sem hafa samskipti við börn í starfi sínu. Stuttmyndin er liður í þessu en í henni verður fjallað á ábyrgan hátt um mörkin milli kynlífs annars vegar og ofbeldis hins vegar.

Allir grunnskólar landsins munu fá afhent eintak af myndinni sem þeir geta fjölfaldað að vild og eftir frumsýningu verður stuttmyndin aðgengileg á veraldarvefnum. Þótt þessum hluta vitundarvakningarátaksins sé beint að grunnskólum er vakin sérstök athygli á því að stuttmyndin mun einnig henta til sýningar og umræðna innan framhaldsskóla.
Verkefnisstjórn hefur þegar undirritað samkomulag við Brúðuleikhús Blátt áfram sem fer með brúðusýningu inn í 2. bekki í öllum grunnskólum landsins. Í október verða haldin landshlutaþing með fulltrúum allra grunnskóla þar sem fjallað verður um kynferðislegt ofbeldi gegn börnum.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum