Hoppa yfir valmynd
13. nóvember 2018 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Styrkir til verkefna og rekstrar lausir til umsóknar

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um styrki til verkefna á sviði umhverfis- og auðlindamála og rekstrarstyrkja til félagasamtaka sem starfa á sviði umhverfismála. Umsóknarfrestur er til kl. 16:00 13. desember 2018. Skila skal inn umsóknum á rafrænu formi á eyðublaðavef Stjórnarráðsins.

Styrkir til verkefna

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið veitir árlega styrki til verkefna sem falla undir málefnasvið þess, sbr. forsetaúrskurð nr. 84/2017. Styrkirnir eru ætlaðir til verkefna á vegum aðila utan ríkisstofnana. Heildarfjárhæð til úthlutunar er 36,0 m.kr. en hver einstakur styrkur getur aldrei numið hærri fjárhæð en sem nemur 10% af heildarfjárheimild hvers árs.

Ráðuneytið veitir eingöngu styrki til verkefna sem sannarlega falla undir verkefnasvið þess og áskilur sér rétt til að áframsenda umsóknir til annarra ráðuneyta, í samræmi við leiðbeiningaskyldu stjórnvalda, falli verkefni betur að málaflokkum þeirra.

Hafi umsækjandi áður fengið styrk til verkefnis þarf að liggja fyrir greinargerð um framkvæmd fyrra verkefnis og ráðstöfun styrkfjárins til að ný umsókn komi til greina.

Upplýsingar um mat á umsóknum er að finna í 6. gr. úthlutunarreglna umhverfis- og auðlindaráðuneytisins.

Reglur um úthlutun verkefnastyrkja

Almennir rekstrarstyrkir til félagasamtaka

Markmið styrkjanna er að stuðla að opnum og frjálsum skoðanaskiptum um umhverfis- og auðlindamál og að efla almenna vitund um gildi umhverfismála. Heildarfjárhæð til úthlutunar 20,0 m.kr.

Umsækjendur rekstrarstyrkja ráðuneytisins þurfa að uppfylla skilyrði sem fram koma í reglum um almenna rekstrarstyrki til frjálsra félagasamtaka sem starfa að umhverfismálum.

M.a. þurfa samtökin að vera opin fyrir almennri aðild, þau skulu ekki starfa í hagnaðarskyni, hafa að lágmarki 30 félagsmenn, hafa opið og endurskoðað reikningshald og taka saman ársskýrslur. Loks þarf eigin fjáröflun að standa undir a.m.k. helmingi kostnaðar vegna almennrar starfsemi samtakanna.

Þá er í reglunum sett fram viðmið sem höfð eru til hliðsjónar við úthlutun styrkjanna.

Umsækjendur sem hlutu rekstrarstyrk fyrir árið 2018 skulu skila yfirliti yfir ráðstöfun styrksins með umsókninni.

Reglur um úthlutun almennra rekstrarstyrkja til félagasamtaka

Sótt um á eyðublaðavef Stjórnarráðsins

Vakin er athygli á að umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi á eyðublaðavef Stjórnarráðsins.

  • Hægt er að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum eða Íslykli frá Þjóðskrá.Umsækjendur skrá sig inn og finna þar viðeigandi eyðublað undir umhverfis- og auðlindaráðuneyti.
  • Úthlutað er einu sinni á ári og eigi síðar en 31. janúar ár hvert.

Umsóknir sem ekki uppfylla skilyrði auglýsingar og úthlutunarskilamála samkvæmt meðfylgjandi reglum verða ekki teknar til umfjöllunar.

Nánari upplýsingar veitir Sóley Dögg Grétarsdóttir í síma 545 8600 eða í tölvupósti á netfangið [email protected] 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum