Hoppa yfir valmynd
3. nóvember 2008 Utanríkisráðuneytið

Utanríkisráðherrar Íslands og Noregs ræða efnahagsmál og undirrita samning um landgrunnsmál

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Jonas Gahr Støre
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Jonas Gahr Støre

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra tók á móti Jónasi Gahr Støre utanríkisráðherra Noregs í ráðherrabústaðnum í morgun við upphaf opinberrar heimsóknar hans hingað til lands. Ráðherrarnir ræddu stöðu Íslands og stuðning Noregs í formi lánafyrirgreiðslu og sérfræðiaðstoðar, þ.á m. vegna fyrirhugaðrar rannsóknar á atvikum sem leiddu til bankakreppunnar á Íslandi. Megináhersla beggja ráðherra á fundinum var að brýnt væri að leiða til farsælla lykta samkomulag við IMF og samfara því lán frá öðrum Norðurlöndum.

Ráðherrarnir ræddu einnig um samstarf Íslands og Noregs innan NATO, sameiginlega öryggishagsmuni og stöðu Íslands og Noregs gagnvart EES og Evrópusambandinu.

Að fundi loknum undirrituðu utanríkisráðherrarnir samning milli landanna um kolvetnisauðlindir sem liggja yfir markalínur. Samkvæmt samningnum skal í þeim tilvikum þegar kolvetnisauðlind nær yfir á landgrunn beggja landanna gera sérstakan samning um skiptingu auðlindarinnar milli landanna og um nýtingu hennar.

Enn fremur undirrituðu ráðherrarnir samkomulag þar sem er nánar kveðið á um 25% þátttökurétt Íslands og Noregs í olíustarfsemi á hluta hvors annars af landgrunninu á hinu sameiginlega nýtingarsvæði milli Íslands og Jan Mayen samkvæmt samningi landanna frá 1981.

Samningarnir eru forsenda þess að unnt verði að veita leyfi til leitar og vinnslu á kolvetnisauðlindum á Drekasvæðinu en stefnt er að því að bjóða út slík leyfi á næsta ári.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum