Hoppa yfir valmynd
7. febrúar 2025 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 10/2025 Úrskurður 7. febrúar 2025

Mál nr. 10/2025                    Eiginnafn:     Hrafnrós (kvk.)

Hinn 7. febrúar 2025 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 10/2025 en erindið barst nefndinni 24. janúar 2025.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  1. Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  2. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  3. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  4. Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Eiginnafnið Hrafnrós (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Hrafnrósar, og uppfyllir að öðru leyti ákvæði 5. gr. laga um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Hrafnrós (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta