Hoppa yfir valmynd
30. maí 2022 Utanríkisráðuneytið

Tveir nýir UNESCO skólar

Nemendur Menntaskólans á Tröllaskaga með viðurkenningarskjalið. Ljósmynd: Félag SÞ - mynd

Tveir skólar bættust nýlega við UNESCO skólanetið hér á landi, Menntaskólinn á Tröllaskaga og Patreksskóli. Þar með eru UNESCO skólarnir á Íslandi orðnir tólf talsins, sjö framhaldsskólar, fjórir grunnskólar og einn leikskóli.

Félag Sameinuðu þjóðanna fer fyrir skólanetinu á Íslandi í samstarfi við íslensku UNESCO nefndina en það byrjaði sem tilraunaverkefni árið 2015. Verkefnið er styrkt af mennta- og barnamálaráðuneytinu. Skólanet UNESCO skóla er eitt elsta skólanet í heimi en það hefur verið starfrækt frá árinu 1953. Nú eru um 11.500 skólar sem tilheyra netinu og starfa í 182 löndum um allan heim.

Að vera UNESCO-skóli felur í sér samkomulag og samvinnu milli skólans og UNESCO þar sem skólinn innleiðir verkefni tengdum einhverjum af fjórum þemum UNESCO-skóla. Þau eru: alþjóðasamvinna, starfsemi Sameinuðu þjóðanna, heimsmarkmið SÞ um sjálfbæra þróun og friður og mannréttindi.

UNESCO-skólarnir halda árlega upp á tvo ólíka alþjóðadaga Sameinuðu þjóðanna, til dæmis alþjóðadaga mannréttinda, jafnréttis, læsis, hafsins, barnsins, friðar og vísinda. Skólarnir standa jafnframt árlega fyrir einum viðburði sem tengist Sameinuðu þjóðunum. Þetta geta verið þemadagar eða viðburðir sem tengjast gildum Sameinuðu þjóðanna eða heimsmarkmiðunum.

Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi aðstoðar skóla í umsóknarferlinu og veitir ráðgjöf við innleiðingu verkefnisins. Verkefnastjóri UNESCO skóla á Íslandi er Kristrún María Heiðberg, [email protected]

  • $alt

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum