Hoppa yfir valmynd
16. mars 2022 Utanríkisráðuneytið

Innrásin í Úkraínu gæti valdið hungursneyð í þróunarríkjum

Innrás Rússa í Úkraínu hefur kostað þúsundir mannslífa, flótta milljóna manna og valdið miklu eignatjóni, en afleiðingarnar teygja sig um allan heim og gætu valdið hungursneyð í þróunarríkjum. Að sögn Upplýsingaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna (UNRIC) hefur matur, eldsneyti og áburður snarhækkað í verði og birgðaflutningar raskast.

„Allt þetta kemur harðast niður á hinum fátækustu í heiminum,“ sagði António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna á fundi Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna í vikunni. „Nú er sáð fræjum óstöðugleika og óróa um allan heim. Við verðum að gera allt sem í okkar valdi stendur til að koma í veg fyrir flóðbylgju hungurs og hruns alþjóðlega matvælakerfisins. Þar að auki sjást þess skýr merki að þetta stríð hefur sogað til sín fjármagn og dregið til sín athygli frá öðrum svæðum þar sem neyð ríkir.”

UNRIC vekur athygli á því að rúmlega helmingur sólblómaolíu og 30 prósent hveitis komi frá Rússlandi og Úkraínu. Helmingur hveitis sem Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (WFP) kaupir í þágu bágstaddra í heiminum kemur frá Úkraínu einni.

45 Afríkuríki sem eru í hópi lágtekjuríkja heims, flytja inn að minnsta kosti þriðjung hveitis frá Úkraínu og Rússlandi. Átján þeirra flytja inn meira en helming frá þessum þjóðum.

Aðalframkvæmdastjórinn hvatti ríki heims til að fitja upp á skapandi lausnum til að fjármagna mannúðar- og þróunarstarf um allan heim, sýna rausn og láta þegar í stað af hendi fé sem lofað hefur verið.

„Í stuttu máli má segja að þróunarríkjum er greitt bylmingshögg. Þau standa andspænis hverri raun á fætur annarri. Fyrir utan stríðið í Úkraínu skulum við ekki gleyma COVID og áhrifum loftslagsbreytinga, sérstaklega þurrkum.“

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

16. Friður og réttlæti
2. Ekkert hungur
3. Heilsa og vellíðan

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum